Fréttablaðið - 03.03.2010, Blaðsíða 42
1.340 13 3,7þúsund krónur eru mánaðar-laun forstjóra Landsvirkjunar og Landspítalans. milljarða viðskiptahalli var á öðrum ársfjórðungi hérlendis. milljarðar eru skuldir fjárfestingafélags Finns Ingólfssonar, fyrrverandi ráðherra og seðlabankastjóra.
SÍMA NÚM ER MARKAÐARINS: 512 5000, fax: 512 5301, rit stjorn@markadurinn.is Aug lýs ingadeild: auglys ing ar@markadurinn.is Veffang: visir.is
B A N K A H Ó L F I Ð
Hljóðlausa lofthreinsitækið hreinsar loftið 24 tíma
á sólarhring og þú þarft aldrei að skipta um fílter.
Hreinsar loftið,
eyðir lykt og
drepur bakteríur!
Kröftugt jónastreymi
Gefur frá sér mínus hlaðnar jónir sem hjálpa
til við að eyða bakteríum, ryki, mengun,
veirum og frjódufti. Heldur loftinu hreinu
og bætir heilsuna.
Bakteríudrepandi útfj ólublár lampi
Útfj ólubláa ljósið drepur ýmsa sýkla og bakteríur.
Áhrifamikil lyktareyðing
Tækið eyðir lykt auðveldlega svo sem
reykingalykt, matarlykt og fúkalykt.
Kröftug ryksöfnun
Ryðfrí stálblöð safna á sig ryki og öðrum
óhreinindum í stað hefðbundins fílters.
Falleg og hentug hönnun
Tækið er afar vel hannað bæði með útlit
og notagildi í huga.
GRENSÁSVEGI 3
SÍMI 581 1006
www.ecc.is
Þeir sem sitja í skilanefndum og
slitastjórnum gömlu bankanna
hafa mátt þola pot úr öllum áttum
frá því að Fjármálaeftirlitið og
héraðsdómur setti þá í nefndir
og stjórnir. Bæði þykja launa-
kjörin há og hver hreyfing
þeirra sveipuð heilmikilli dulúð.
Á daginn hefur komið að kjör
skilanefndar- og slitastjórnar-
fólksins eru ekkert til að hrópa
húrra fyrir í alþjóðlegu sam-
hengi, sérstaklega ef miðað er
við kollega þeirra í sambærilegu
starfi í Bretlandi. Þar á ofan
þykir vinnuálagið síst henta fjöl-
skyldufólki – jafnvel gæti það
talist í bága við kjarasamninga.
Ómagar í alþjóð-
legum samanburði
Og meira um skilanefndir og
slita stjórnir gömlu bankanna.
Formenn skilanefnda og slita-
stjórna og aðrir starfsmenn
undir þeim flagga sumir áratuga
reynslu af gjaldþrotameðferð og
uppgjöri fyrirtækja.
Starfsmennirnir hafa flestir
hverjir haft meira en nóg að gera
frá hruni, í einstaka tilvikum
þurft að vaka heilu næturnar til
að halda efnahagslífinu í föstum
skorðum á bak við tjöldin. Það
hefur tekið lengri tíma en í fyrstu
var ætlað. Á sama tíma hefur
heyrst að fastakúnnar þeirra
fyrir hrun hafi haft skilning á
annríkinu í fyrstu. Þegar bið varð
ítrekað á að skila- og slitastjórn-
arfólkið lét gömlu kúnnana vita af
sér hafi þeir einn af öðrum horfið
af við-
s k i p t a -
m a n n a -
skránni.
Eins dauði …
Ólafur Þór Hauksson, sérstak-
ur saksóknari vegna efnahags-
hrunsins, sá ástæðu til þess í
gær að gefa út yfirlýsingu þar
sem því var vísað á bug að
starfsmenn embættisins lækju
upplýsingum um tiltekin mál til
fjölmiðla. Í tilkynningunni segir
að fátt bendi til leka. Sérstakur
saksóknari tiltekur nokkrar hjá-
leiðir, sem skoða megi nánar.
Hann bendir þar á meðal á að
gögn um rannsóknir hafi verið
afhent verjendum sakborninga
í málum sem séu til rannsóknar
við embættið. Gárungarnir bentu
á það í gær að Ólafur ætti að
vera mun tortryggnari en þetta
og líta sér nær, jafnvel nær en
hann hafi þorað. Lekana megi jú
finna víða, ekki síst hjá þeim sem
tíðir gestir eru í settinu hjá Agli
Helgasyni á
sunnudög-
um á RÚV
og gegna
n a f n i n u
Eva Joly.
Fræ tortryggni