Fréttablaðið - 03.03.2010, Blaðsíða 39
MARKAÐURINN
F R É T T I R
9MIÐVIKUDAGUR 3. MARS 2010
534 1020
www.atvinnueignir.is
Til leigu
Helgi Bjarnason, viðskiptafræðingur, MBA, löggiltur leigumiðlari og löggiltur fasteignasali Ólafur Jóhannsson, rekstrarfræðingur, löggiltur leigumiðlari
Borgartún 26 – Til leigu 1.124 fm glæsileg-
asta skrifstofuhúsnæði landsins. Nýinnréttað
á besta og glæsilegasta máta. Aldrei verið notað.
Laust strax.
Hlíðasmári – um 1.600 fm á tveimur hæðum.
Laust fl jótlega. Hægt að skipta niður í um 400 fm.
Innréttað fyrir tölvufyrirtæki, bæði skrifstofur og
opin rými.
Höfðabakki – Til leigu allt að 6.000 fm skrifstofu-
húsnæði innréttað að þörfum leigjanda. Verið er
að breyta húsnæðinu og umhverfi nu í skrifstofu-
garða. Nýr leigutaki kominn í 3.800 fm. Tilbúnar
fl jótlega, frá 300 fm. Möguleiki á leigu án vsk.
Suðurlandsbraut 14 – Heil húseign, um 3.100
fm. Skiptist í 1.250 fm á 1. hæð, 1.300 fm á 2.
hæð og 550 fm á 3. hæð. Laust strax en þarf að
endurinnrétta að hluta. Gamla B & L húsið.
Höfðatorg – Turninn – Til leigu heilar hæðir í
turninum, neðri hluta 1.850 fm og efri hluta 830
fm. Innréttað að óskum leigjanda. Afhendingartími
3-4 mánuðir. Hægt að leigja niður í um 330 fm.
Kringlan 1 – Til leigu um 3.700 fm á tveim ur
hæðum. Laust strax. Var áður skrifstofur
Morgunblaðsins og síðan notað af Háskólanum
í Reykjavík.
Smáratorg – Turninn - Til leigu heil hæð, 830
fm, tilbúin. Laus strax. Hægt að leigja hálfa hæð.
Súðavogur 1-5 – Til leigu, um 1.500 fm verslun ar-
og skrifstofuhúsnæði, 5.000 fm vörugeymslur og
1.300 fm opin skýli. Mikið útipláss. Laust strax.
Hægt að skipta niður í minni einingar.
- Upplýsingar um þessi atvinnuhúsnæði gefur Helgi í síma 663-2411
Heil húseign, miðsvæðis
Til leigu um 2.400 fm auk bílakjallara, mjög vel
innréttað skrifstofuhúsnæði. Getur verið laust
fl jótlega. Skiptist upp í fyrstu hæð sem er um
1.200 fm, 2., 3. og 4. hæð samtals um 1.200 fm,
auk bílakjallara sem er að hluta til innréttaður sem
tölvuver.
Allar frekari upplýsingar um
þessi og önnur atvinnuhús-
næði veita:
Helgi Bjarnason
í síma 663-2411
Ólafur Jóhannsson
í síma 824-6703
Helgi Már Karlsson
í síma 897-7086
Þorvaldur Þorláksson
í síma 897-0789
Guðsteinn Bjarnason
skrifar
George Papaconstantinou, fjármálaráðherra Grikk-
lands, vonast til þess að Evrópusambandið bregð-
ist skjótt við þegar nýjar og hertar aðhaldsaðgerð-
ir verða kynntar í dag og leggi án tafar mat á gildi
þeirra.
Telji Evrópusambandið aðgerðirnar nægilega öfl-
ugar gæti það dugað til þess að róa markaði og jafn-
framt gera gríska ríkinu kleift að taka lán á sömu
kjörum og önnur ríki Evrópusambandsins sæta.
Papaconstantinou segist sannfærður um að fái
Grikkir ekki þessi lánakjör, þá verði afleiðingarn-
ar skelfilegar. Ölli skiptir að Evrópusambandið fall-
ist á aðgerðir stjórnvalda svo hægt verði að halda
áfram.
Stjórnin ætlar að bíða eftir viðbrögðum markað-
arins áður en gefin verða út ný ríkisskuldabréf, sem
eiga að afla ríkinu tekna upp í skuldir.
Á mánudaginn sagði Olli Rehn, sem er nýtekinn
við sem fjármálastjóri Evrópusambandsins, að þær
aðhaldsaðgerðir sem gríska stjórnin kynnti í síðasta
mánuði dugi ekki til. Draga þurfi enn frekar úr rík-
isútgjöldum til þess að leysa megi úr fjármálakrepp-
unni sem er ein sú versta í Evrópu.
Skuldir ríkisins eru hærri en svo að sjáanlegt sé
hvernig þær verði greiddar niður. Skuldastaða ríkis-
ins hefur meðal annars bitnað á evrunni, sameigin-
legum gjaldmiðli sextán Evrópusambandsríkja.
Mikil ólga er í landinu vegna efnahagsástandsins.
Verkalýðsfélög hafa efnt til verkfallsaðgerða til að
mótmæla aðhaldsaðgerðunum, sem bitna á almenn-
ingi og þykja ósanngjarnar.
Þær fela meðal annars í sér hærri eldsneytis-
skatta, frystingu launa og niðurfellingu kaupauka
ríkisstarfsmanna, auk þess sem eftilaunaaldur verð-
ur hækkaður.
Grískir fjölmiðlar telja að nýju aðgerðirnar, sem
væntanlega verða kynntar að loknum ríkisstjórn-
arfundi í dag, feli í sér tveggja prósenta hækkun
á virðisaukaskatti, sem nú er 19 prósent, auk þess
sem eldsneytisgjöld verði hækkuð enn frekar og nýr
skattur verði lagður á munaðarvörur.
Grikkir herða aðhald
Gríska stjórnin kynnir í dag nýjar og harðari aðhaldsað-
gerðir. Evrópusambandið taldi fyrri aðgerðir ekki nægja.
VERKFALL LEIGUBÍLSTJÓRA Leigubílstjórar lokuðu umferðar-
götum í Aþenu í gær til að leggja áherslu á kröfur sínar.
NORDICPHOTOS/AFP