Fréttablaðið - 06.03.2010, Blaðsíða 55
LAUGARDAGUR 6. mars 2010
Æskulýðssjóður
Mennta og menningarmálamálaráðuneyti auglýsir
eftir umsóknum um styrki úr Æskulýðssjóði sem
starfar samkvæmt lögum nr. 70/2007 og reglum nr.
60/2008.
Við úthlutun úr Æskulýðssjóði fyrir árið 2010
verður lögð áhersla á umsóknir æskulýðsfélaga og
æskulýðssamtaka um verkefni er miða að mannrétt-
indafræðslu og lýðræðislegri þátttöku ungmenna í
samfélaginu og samstarfsverkefni æskulýðsfélaga
og æskulýðssamtaka.
Hvorki er heimilt að styrkja árvissa eða fasta
viðburði í félagsstarfi , svo sem þing, mót eða þess
háttar viðburði, né ferðir hópa.
Vakin er sérstök athygli á að umsækjendum er gert
að sækja um á rafrænu formi á umsóknavef Stjórnar-
ráðsins á vefslóðinni http://umsoknir.stjr.is.
Nánari upplýsingar má sjá á vef mennta- og menn-
ingarmálaráðuneytis, www. menntamálaráðuneyti.is
Umsóknarfrestur er til 6. apríl 2010.
Námskeið um notkun
sprengiefna
Dagana 22.–26. mars 2010 verður haldið námskeið
í Reykjavík um meðferð sprengiefna ef næg þátttaka
fæst. Námskeiðið sem er fræðilegt er ætlað þeim sem
öðlast vilja réttindi til að fara með sprengiefni og
annast sprengivinnu samkvæmt reglugerð
nr. 684/1999 um sprengiefni.
Skráning og nánari upplýsingar hjá Vinnueftirlitinu,
Bíldshöfða 16, Reykjavík, sími 550 4600.
Skrá skal þátttöku og greiða námskeiðsgjald sem
er kr. 82.800,- í síðasta lagi miðvikudaginn
17. mars 2010.
Athugið að fjöldi þátttakanda er takmarkaður.
www.vinnueftirlit.is
ALÞJÓÐLEGIR
FRIÐARSTYRKIR
RÓTARÝHREYFINGARINNAR
2011–2013
Rótarýsjóðurinn, ROTARY FOUNDATION, sem
rekinn er af Alþjóða Rótarýhreyfi ngunni, mun veita
allt að 60 styrki til tveggja ára meistaranáms skóla-
árin 2011-2013. Styrkirnir verða veittir til náms og
rannsókna sem tengjast alþjóðasamstarfi og efl ingu
friðar í heiminum og eru ætlaðir fólki sem þegar
hefur reynslu af alþjóðastarfi auk þess að hafa lokið
fyrstu háskólagráðu.
Í þessu skyni hefur Rótarýsjóðurinn komið á
samvinnu við sex virta háskóla:
Universidad del Salvador, Argentínu
University of Queensland, Ástralíu
Duke University & University of North Carolina, USA
University of Bradford, Englandi
International Christian University, Japan
Styrkirnir, sem eiga að standa undir tveggja ára
námskostnaði, eru alþjóðlegir samkeppnisstyrkir.
Rótarýhreyfi ngin á Íslandi má senda eina umsókn.
Val íslenska umsækjandans fer fram eftir ítarleg
viðtöl og könnun á námsferli og störfum. Makar,
afkomendur og makar afkomenda lifandi Rótarý-
félaga geta ekki sótt um styrkinn. Átta Íslendingar
hafa fengið friðarstyrki frá því þeir voru fyrst veittir
árið 2002.
Nánari upplýsingar um námið, háskólana og
umsóknarskilmála er að fi nna á heimasíðu Rotary
International: rotary.org/ foundation/educational
(Rotary Centers for International Studies). Einnig
má nálgast upplýsingar á skrifstofu Rótarý-
umdæmisins (rotary@rotary.is). Sími 568-2233
(eða í síma 525-4818).
Þeir sem hafa hug á að sækja um styrk eru
beðnir um að senda ítarlegt æviágrip og lýsingu
á markmiði með framhaldsnámi fyrir 9. apríl til
Skrifstofu Rótarýumdæmisins, Suðurlandsbraut
54, 108 Reykjavík, merkt “Friðarstyrkur”.
Vegna aukinna umsvifa leitar Valka ehf að
nýjum starfskröftum til þess að njóta hins
frábæra útsýnis sem blasir við í fyrirtækinu.
Sölustjóri:
Umsjón með sölu og markaðssetningu á RapidTrade
hugbúnaðarkerfinu á Íslandi og erlendis.
Hæfniskröfur: Reynsla af sölustörfum á tæknisviði
og/eða til fiskvinnslufyrirtækja.
Menntun á tækni- eða viðskiptasviði.
Hugbúnaðarmaður:
Verkefnastýring og vinna í vefforritun og/eða forritun á
tækjabúnaði.
Hæfniskröfur: Reynsla í forritun í PHP, C, Java eða
sambærilegum málum. Reynsla í gagnagrunnsforritun
og þekking á gagnagrunnum, t.d. Mysql. Þekking á
Linux. Háskólapróf í tölvunarfræði eða verkfræði.
Vélbúnaðarhönnuður:
Verkefnastýring og hönnun á tækjabúnaði.
Hæfniskröfur: Verk- eða tæknifræðimenntun.
Reynsla af hönnun í SolidWorks.
Frumleiki, auk sjálfstæðra og agaðra vinnubragða eru
þær megin kröfur sem Valka gerir til starfsmanna
sinna. Farið verður með allar fyrirspurnir sem
trúnaðarmál og verður öllum umsóknum svarað.
Umsóknarfrestur er til 26. mars.
Nánari upplýsingar veitir Helgi Hjálmarsson í símum 534-9300 og
660-9300 og á netfanginu helgi@valka.is.
Valka ehf er vaxandi hátæknifyrirtæki sem sérhæfir sig í
hug- og vélbúnaðarlausnum fyrir fiskvinnsluiðnaðinn.
Valka leggur megin áherslu á þróun nýrra lausna sem
auka arðsemi fiskvinnslufyrirtækja.
Verndun hugverkaréttinda er forgangsverkefni hjá
Völku og hefur þegar verið sótt um fjölda einkaleyfa til
verndar uppfinningum fyrirtækisins.
Frekari upplýsingar um vörur Völku má finna á heima-
síðu fyrirtækisins www.valka.is
Frábært útsýni