Fréttablaðið - 20.03.2010, Side 26
26 20. mars 2010 LAUGARDAGUR
M
undi vondi og
Bjarni snæð-
ingur eiga í
fljótu bragði
ek k i a n n að
sameiginlegt
en að vera Íslendingar og að vera
þekktir af viðurnefni sínu. Hvaðan
koma þessi nöfn eiginlega?
Bjarni: „Mundi vondi hefur öfuga
merkingu, er það ekki?“
Mundi: „Jú. Ég man eiginlega ekki
hvaðan þetta kom. Minnir að ég
hafi notað það í tölvuleik og sem
notandanafn á netinu. Svo festist
þetta bara. Það er ekki það að ég sé
eitthvað vondur. Nema stundum.“
Bjarni: „Mitt stendur algjörlega
undir sér. Mér þykir gott að snæða
og ég kom með þetta íslenska nafn
þegar ég var 13 ára gamall. Ég er
ekki alveg viss hvaðan „snæða“
kemur. Ég greip þetta frá manni
sem Stefán Þór heitir og er grúsk-
ari og bóhem. Þá töluðu allir um að
fá sér að éta. Þegar ég fór að læra
kokkinn festist þetta á mig. Ég vil
auðvitað fá fálkaorðuna fyrir að
endurvekja orðið í íslenskunni.“
Hvor verður á undan að fá fálka-
orðuna?
Bjarni: „Strákurinn.“
Mundi: „Ég veit það nú ekki.“
Allir í kjamma og kók
Hvað er þetta Reykjavík Fashion
Festival (RFF) eiginlega, Mundi?
Mundi: „Þetta er mjög metnaðarfull-
ur tískuviðburður. Þetta er í fyrsta
skipti sem svona sameiginlegur
tískuviðburður er haldinn. Helstu
fatahönnuðir landsins – um 20 tals-
ins – eru búnir að taka sig saman
til að sýna það besta sem í boði er.
Þetta eru margar sýningar. Sam-
hliða þessu eru svo tónleikar með
Peaches og fleirum í kvöld á Nasa.
Þetta verður rosa fjör. Línurnar sem
verða til sýnis fara á markað næsta
haust og það er takmarkið að hönn-
uðirnir fái eitthvað út úr þessu.“
Bjarni: „Það koma svo örugg-
lega allir í kjamma og kók hér á
BSÍ eftir Nasa. Ég get lofað ykkur
því.“
Munda: „Alveg pottþétt. Alveg í
röðum!“
Bjarni: „Tískan, já. Það er fram-
andi fyrirbæri.“ (Strýkur Tinu
Turner-bolinn)
Mundi: „Já, þetta er mjög fyndinn
bransi. Ég byrjaði 19 ára að gera
peysur úr íslenskri ull. Þær komu
mér á kortið og ég hef verið í þessu
síðan þá.“
Bjarni: „Lærðirðu þetta eitt-
hvað?“
Mundi: „Nei, ég lærði grafíska
hönnun í tvö ár en hætti þegar ég
var kominn á flug með þetta. Mér
finnst gaman að gera falleg og
óhefðbundin föt og finnst gaman
að sjá fólk í fötunum mínum.“
Hvað með þig, Bjarni, af hverju
fórst þú að kokka?
Bjarni: „Það er nú bara þannig að
það er einfaldast til að verða aldrei
svangur að vera í eldhúsinu.“
Ekkert að skammast sín fyrir að
græða peninga
Mundi er 23 ára og það er rosalega
öfundsverður aldur fyrir miðaldra
karla.
Bjarni: „Ég myndi alveg vilja
vera á hans stað í lífinu núna. Ég
myndi gera allt það sama nákvæm-
lega eins aftur. Það var ekkert svo
leiðinlegt.“
Hvernig sérð þú framtíðina fyrir
þér, Mundi? Stígandi ris upp á
hátind tískuheimsins?
Mundi: „Nei, nei, ég held ég verði
nú ekkert svo velkominn þang-
að inn. Ég á ekkert eftir að verða
milljarðamæringur á því sem ég
er að gera. Það er ekki eins og
fjárfestingarbransinn að reka
fatamerki. Þetta er mjög dýrt og
erfitt að selja og mikið hark. Ég
vonast náttúrlega til þess á endan-
um að ég eigi meira peninga en ég
á núna. Ég á ekki bót fyrir boruna
á mér.“
Bjarni: „En verður ekki að vera
metnaður og hugsunin: Ég ætla
langt?“
Mundi: „Jú, jú. Ég væri alveg til í
að verða ríkur.“
Bjarni: „Maður má ekki vera of
lítillátur. Verður að vera svolítið
rogginn.“
Er ekki alveg bannað í dag að
stefna að því að verða ríkur?
Mundi: „Tja, maður þarf nú ekkert
að skammast sín þótt maður græði
peninga. Það er bara spurning á
hvaða forsendum maður gerir það.
Það er nóg til af peningum þótt
þetta hrun sé í gangi.“
Bjarni: „Upp úr 1970 gengu hér
allir um með skjalatöskur, svo-
kallaðar stresstöskur, fullar af
einhverju pappírsdrasli. Það þurfti
enginn á þessu að halda. Ég var að
taka til í bílskúrnum hjá mér og
fann fjórar svona. Ofsalega flott-
ar. Eitt árið var taskan úr hörðu
plasti og svo árið eftir var hún lin
úr leðri.“
Mundi: „Þetta er fyndið af því
karlar halda alltaf að þeir séu svo
óháðir tískubylgjum. Svo hrynja
þeir ofan í þær um leið og það
kemur eitthvað svona.“
Hvaða rannsóknarskýrsla?
Talandi um klæðnað karla, útrás-
arvíkingarnir gerðu nú lítið í því að
skera sig úr.
Mundi: „Já, það virðist sem karl-
ar fari í sama mótið. Það er þægi-
legast. Þá þurfa þeir ekki að hafa
áhyggjur.“
Bjarni: „Þeir komu oft hingað.
Þetta þarna er borð Björgólfs
(bendir). Þeir komu mikið með
útlendingana hingað í íslenska
matinn; sviðin, kótiletturnar og
saltkjötið. Þeir hringdu stundum
í mig erlendis frá þegar þeir voru
að leggja af stað í einkaþotunum
og vildu koma beint í mat. Það var
kannski eftir fótboltaleiki.“
Eru þeir búnir að borga þér?
Bjarni: „Já já, það var allt „cash“.
Borgað strax.“
Nú er þessi rannsóknarskýrsla
að koma. Eruð þið spenntir fyrir
henni?
Mundi: „Hvaða rannsóknar-
skýrsla?“
Bjarni: „Góður!“ (klappar Munda
á öxlina)
Allir geta lifað án rósa
Nú segja þeir svartsýnustu að
Ísland einangrist frá umheiminum
ef við borgum ekki Icesave upp í
topp. Hvernig líst ykkur á það?
Mundi: „Væri það ekki bara
dásamlegt?“
Bjarni: „Ég held það væri ekki svo
slæmt. Ég sagði þarna strax eftir
hrunið að við ættum bara að loka
landinu. Við ættum bara að sigla
út með fiskinn okkar og selja fyrir
cash pening. Af hverju gerðum við
það ekki? Við erum bóhemar og
höfum alltaf verið það. Af hverju
eigum við að sleikja einhverja
rassa úti í heimi og þykjast vera
eitthvað dipló? Við þessir ruddar
sem erum búnir að arðræna Evr-
ópu. Það átti bara að loka og semja
svo útfrá þeim karakter sem við
erum.“
Mundi: „Vera bara stolt af því að
vera ruddar, meinarðu?“
Bjarni: „Ruddar og ruddar? Nei,
bóhemar. Við börðumst eins og
vitleysingar á pínulitlum bátum á
móti herskipum í þorskastríðinu.
Hentum kartöflum og dóti í Bret-
ana þangað til við fundum upp
töfraverkfærið klippurnar. Við
náðum samningum þá. Hvað var
það annað en barbarismi? Bretar
hefðu ekki getað hætt að kaupa af
okkur fiskinn núna. Þá hefðu þeir
fengið Hull og Grimsby upp á móti
sér, því það er svo mikið unnið af
íslenska fiskinum þar. Við hefðum
kannski ekki fengið kartöflur og
rósir frá Hollandi, en það geta nú
allir lifað án rósa, er það ekki?“
Tókuð þið þátt í þjóðaratkvæða-
greiðslunni?
Bjarni: „Já, ég gerði það nú.“
Mundi: „Ekki ég. Ég veit hvorki
upp né niður í þessu máli. Ég var
rosa aktífur fyrst og fór í mót-
mæli. Svo hætti þetta að meika
sens fyrir mér svo ég skellti bara
í lás. Mér finnst mitt orð í öllum
þessum málum engu máli skipta.
En auðvitað er ég jafn brjálað-
ur yfir þessu og Jón Jónsson úti í
bæ.“
Bjarni: „Maður var náttúrlega
sár. Maður þurfti að fara að vinna
aftur.“
Mundi: „Hefði góðærið haldið
áfram hefði Ísland orðið að algjöru
lúðalandi. Hvað voru margir að
útskrifast úr hagfræði- og við-
skiptafræðideildum? Um leið og
kreppan skall á hefur aldrei verið
jafn mikil aðsókn í listaháskól-
ann. Þið sjáið hvernig hugsunar-
hátturinn breytist. Ísland hefði
orðið eitthvert hagfræðiland. Það
er nú ekki mjög spennandi. Við
eigum að vera í skapandi geirun-
um. Viðskiptadraslið mátti alveg
fara á skallann fyrir mér. Það er
svo margt hægt að gera til að búa
til lifandi og litríkt samfélag, en
djöfull var lítið að gerast í því á
þessum tímum. Það er nú allt að
breytast núna.“
Við erum
bóhemar,
við sleikjum
ekki rassa!
Mundi vondi er 23 ára fatahönnuður, sem tekur
þátt í Reykjavík Fashion Festival um helgina.
Bjarni snæðingur sér hins vegar um veitingarnar
á BSÍ. Þeir settust á rökstóla með Dr. Gunna.
MUNDI VONDI OG BJARNI SNÆÐINGUR Tískan, já. Það er framandi fyrirbæri. Já, þetta er mjög fyndinn bransi. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Draumalandið?
Bjarni: „Það hefur nú bara alltaf
verið Ísland. En ég segi það ekki,
eyja í Karíbahafinu hljómar ágæt-
lega. Að bara teygja sig í matinn á
trjánum og brennivínið bruggar sig
bara sjálft.“
Mundi: „Ég er sammála Bjarna að
það er Ísland, en ég væri til í að búa
úti um allt. Þess vegna að ferðast
bara endalaust og búa þrjá mánuði í
senn á hverjum stað.“
Draumabíllinn?
Bjarni: „Fljótsvarað. Buick 58,
tveggja dyra. Svartur fyrir neðan lista
og fjólublár fyrir ofan. Með stóra
vængi aftur úr sér.“
Mundi: „Citroën-braggi, grænn.“
Draumastillingin á tímavélinni?
Bjarni: „Ég myndi fara aftur á bak til
víkingatímabilsins. Éta gróft og vera
sterkur og drykkfelldur ruddi. Það
myndi henta mér ágætlega að mega
standa upp og míga bara þar sem
ég væri.“
Mundi: „Ég væri rosa til í að skjóta
mér inn í framtíðina, en svo veit
maður aldrei hvað þessi heimur
á eftir ólifað. Reykjavík 3000 þess
vegna.“
Draumakúnninn?
Bjarni: „Ég væri alveg til í að fá
Pamelu Anderson til að borða svið
hérna og biðja um mynd með veit-
ingamanninum og svona.“
Mundi: „Ég væri geðveikt til í að fá
Obama til að klæða sig í föt eftir mig
og fá mynd af honum með mér.“
DRAUMUR Í DÓS