Fréttablaðið - 20.03.2010, Page 44

Fréttablaðið - 20.03.2010, Page 44
Anna Margrét Björnsson skrifar BÖRNIN GETA ÞETTA ALVEG! ferðalög kemur út mánaðarlega með helgarblaði Fréttablaðsins. Ritstjóri Anna Margrét Björnsson amb@frettabladid.is Útlit Arnór Bogason og Kristín Agnarsdóttir Forsíðumynd Frá Leipzig, sjá grein á síðu 6-7 Pennar Júlía Margrét Alexandersdóttir, Þormóður Dagsson Ljósmyndir Fréttablaðið Auglýsingar Benedikt Freyr Jónsson bfj@365.is LEIPZIG – HIN NÝJA BERLÍNÞormóður Dags- son bregður sér á slóðir Bachs og Lindemans í Saxlandi þar sem menningarlífi ð blómstrar. Í byrjun þessa mánaðar varði ég megninu af tíu dögum í þeyting um hraðbrautir Þýskalands. Sam- kvæmt GPS-tækinu taldi heild- arkeyrslan tæpa 3.500 kílómetra en á þessum tíu dögum náði ég, ásamt fjögurra manna föruneyti, að skoða átta þýskar borgir, eina austurríska og eina tékkneska. Þrátt fyrir að yfir- ferðin hafi verið hröð (meðalhrað- inn tæpir 200 km/klst) þá varð ekki hjá því komist að verða snortinn af áhrifamagni Þýskalands, magnþrung- inni sögu þess og menningu. Í þessari ferð kynntist ég jafnframt Leipzig. Þegar ég þeyttist þetta þá voru Þjóðverjar að ná sér eftir einhvern harðasta vetur sem dunið hefur yfir Evrópu í langan tíma. Mikill snjó- þungi og frostharka hafa lagt hart að landsmönnum í vetur og hvað eftir annað sett samgöngur í uppnám. Frost, flóð og stormar hafa meira að segja kostað talsvert af mannslífum. Það sem ég sá út um rúðuna á bíla- leigubílnum benti aftur á móti til þess að þessi ógurlegi vetur væri að líða undir lok. Sléttlendið í norðrinu, með endalausa víðáttu allt í kring, var fallegt og friðsælt ásýndar og hæð- ótt landslagið í suðrinu var tekið að grænka. Þýskar borgir eru fallegar. Þær hýsa skrautlegt mannlíf og skarta [ SÉRBLAÐ FRÉTTABLAÐSINS UM FERÐALÖG ] ferðalög MARS 2010 FRAMHALD Á SÍÐU 4 Svalt hótel í miðri Berlín Lux 11 býður upp á sérstaka sumarpakka SÍÐA 2 Söguleg ferðalög Spennandi staðir í Evrópu til að heimsækja SÍÐA 6 2 FERÐALÖG L ux 11 er eitt svalasta hótel Berlínar og gæti ekki verið betur staðsett í hverfinu Mitte: umkringt flottum verslunum, veitingastöðum og börum. Hackesher Markt og Prenzlauer Berg eru í góðu göngufæri. Hótelið er í keðju Design Hotels og er mjög fallega hannað í naum- hyggjulegum stíl sem minnir á japansk- ar innréttingar. Baðherbergin eru í raun inni í stofunni og eru með stórglæsilegu „onsen“-baðkari ofan í gólfinu. Öll her- bergi eru í raun litlar íbúðir eða svítur ásamt eldhúsaðstöðu og þess má geta að því lengur sem maður gistir á Lux 11 fer verðið lækkandi. Morgunmatur er innifalinn en þar er boðið upp á lífræn- an og heilsusamlegan mat, allt frá þýsk- um mjólkurafurðum, ostum og pylsum upp í nýbakaðar vöfflur og ferska exót- íska ávexti. Veitingastaðurinn Shiro-i- Shiro er á hótelinu en hann er vinsæll japanskur staður þar sem boðið er upp á sushi og ýmiss konar teriyaki-rétti. Einnig er glæsilegt Aveda Spa á hótel- inu þar sem hægt er að sækja alls konar nudd og fegrunarmeðferðir og síðast en ekki síst opnaði nýverið flott tískuversl- un á efstu hæð hótelsins. Í júlí á sér stað tískumessan Bread &Butter í Berlín og í því tilefni býður Lux11 upp á sérstakan lúxuspakka: þrjár nætur í svítu, morgun- verð, VIP passa á Bread&Butter, og boð í VIP tískuteiti. - amb Lux 11, Rosa-Luxemburg Strasse 9-13. www.lux-eleven.com HÖNNUNARHÓTEL Í MIÐJU BERLÍNAR Sérstakur tískupakki í sumar á hótelinu Lux 11 sem er vel staðsett í Mitte, miðpunkti kúlsins. Glæsilegar svítur Hver einasta svíta er með flatskjá, interneti, ísskáp og stóru baðkari í japönskum stíl. UPPÁHALDSHVERFIÐ: Óneitan- lega Mill Road. þar er að finna alls kyns spennandi litlar matvöruversl- anir, svo sem taívanskar, arabískar og með lífrænt ræktuðum mat, slátrara, hárskera og pípara. FLOTTASTA VERSLUNIN: Arcadia við Bennet Street er yndisleg því þar er hægt að finna sérstakar tæki- færisgjafir, allt frá minnstu silfurarm- böndum upp í stóra ljósaskerma. UPPÁHALDSVEITINGASTAÐUR: Teri-Aki, enginn vafi! Ærslamikill japanskur veitingastaður þar sem fæst besta sushi og sake sem ég hef smakkað. UPPSKRIFT AÐ GÓÐU KVÖLDI: Best er að byrja með góðu rölti um borgina og koma svo við á Teri-Aki. Þeir sem eru lítið gefn- ir fyrir fiskmeti geta fengið sér suður-evrópskt góðgæti hjá vini og nágranna Cambridge, honum Jamie Oliver, á staðnum Jamie´s Italian. Svo má skella sér á tónleika eða annan menningarviðburð á The Corn Exchange eða The Junction. HVAÐ KEMUR MEST Á ÓVART: Sagan og leyndardómar aðalhá- skólans sem sveipar Cambridge dularfullum og ábúðarfullum bjarma. Ekkert er betra eftir góðan dag í Cambridge en að slaka á í enskum gondóla, jafnvel með gott vín í glasi og virða fyrir sér tignar- legar byggingarnar. Oftar en ekki eru það frambærilegustu náms- menn Bretlands sem stýra dýrum knerri og segja ferðamönnum frá því sem fyrir augu ber. HEIMAMAÐURINN  Cambridge ÞURÝ ÁGÚSTSDÓTTIR EMBÆTTISMAÐUR Þ að er algengt viðkvæði hjá Íslendingum að hafa gífurlegar áhyggjur af breytingum hjá börnum. Það þykir til dæmis mjög framúr- stefnulegt að fara með börn í ferðalög á fjarlægar slóðir þar sem þau eru ekki vön matnum og gætu fengið hræðilega sjúkdóma. Að sjálfsögðu er varkárni alltaf góð, en fólk virðist gleyma því að börn eru til í öllum hornum heimsins og að það geti alveg verið mögulegt að ferðast með börn án mik- illa vandræða. Annað sem ég hef tekið eftir eru þær gífurlegu áhyggjur sem fólk hefur af litlu barni sem þarf að flytjast búferlum. Nú tala ég af reynslu, því ég flutti til mismunandi landa með reglulegu millibili sem krakki og hlaut vonandi engan langvarandi skaða af. Alveg sama þó að við elskum Ísland og finnist allt best hér heima er bara þvæla að halda að það sé skelfi- legt að rífa barn úr sínu verndaða íslenska umhverfi og planta því í stórborg þar sem það skilur ekki tungu- málið og getur ekki labbað sjálft í skólann. Þvert á móti held ég að börn, að minnsta kosti ef þau eru ekki komin á unglingsárin, séu með meðfædda aðlögun- arhæfni og víli það ekkert fyrir sér að byrja í nýjum skóla í útlöndum eða læra nýtt tungu- mál. Börn eiga nefnilega einstak- lega auðvelt með að ná taki á nýrri tungu og því fyrr sem þau byrja að heyra önnur tungumál því betri verða þau í tungumálum síðar á ævinni. Mér finnst það stundum beinlínis móðgandi bæði við æsku mína og börn yfirleitt þegar fólk býsnast yfir því að það sé nú ekki hægt að breyta til og flytja til útlanda fyrr en börnin eru orðin fullorðin. Það gleymir því að sú reynsla sem fylg- ir því að búa í erlendri borg í nokk- ur ár veitir manni víðsýni og góða reynslu, nýtt tungumál í farteskið og maður lærir að umgangast fólk sem er ekki alveg eins og hver ein- asti Íslendingur í hverfinu heima. Hættum að láta svona kredduhugs- un stöðva okkur í að bóka ferðalag- ið í sumar eða ákveða að skreppa í nám eða stökkva á spennandi vinnu í útlöndum. flugfelag.is Netið Þú færð alltaf hagstæðasta verðið á www.flugfelag.is
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.