Fréttablaðið - 20.03.2010, Page 53
Sölufulltrúar Viðar Ingi Pétursson vip@365.is 512 5426 Hrannar Helgason hrannar@365.is 512 5441
Lögfræðingur
Félags- og tryggingamálaráðuneytið auglýsir eftir lögfræðingi til starfa á velferðarsviði
ráðuneytisins. Helstu verkefni velferðarsviðs eru málefni barna, fjölskyldna, fatlaðra
og aldraðra, félagsþjónusta sveitarfélaga og húsnæðismál.
Embættis- eða meistarapróf í lögfræði
Reynsla af störfum innan stjórnsýslunnar eða sambærilegum störfum æskileg
Þekking og reynsla á sviði velferðar- og fjölskyldumála er æskileg.
Færni í mannlegum samskiptum.
Gott vald á íslensku og færni í að tjá sig í ræðu og riti.
Góð tungumálakunnátta í ensku og a.m.k. einu Norðurlandamáli.
Sjálfstæði í vinnubrögðum og skipulagshæfni.
sem falla undir starfið er þátttaka í stefnumótun í þeim verkefnum sem
við eiga hverju sinni og falla undir velferðarsvið. Vinna við gerð lagafrumvarpa og
reglugerða, svara fyrirspurnum og veita leiðbeiningar m.a. vegna laga og reglna sem
falla undir málaflokka sviðsins. Að annast almenn lögfræðistörf á sviðinu svo sem með
lögfræðilegri ráðgjöf, umfjöllun og ritun lögfræðilegra úrskurða og álitsgerða.
er áhugavert og fjölbreytt starf í krefjandi starfsumhverfi þar sem reynir á öguð
vinnubrögð, ábyrgð og sjálfstæði. Nánari upplýsingar um starfið veitir Vilborg
Ingólfsdóttir sviðsstjóri velferðarsviðs í síma 545 8100 eða með tölvupósti:
vilborg.ingolfsdottir@fel.stjr.is. Konur jafnt sem karlar eru hvött til að sækja um stöðuna.
Um launakjör fer eftir kjarasamningi fjármálaráðherra og Félags háskólamenntaðra
starfsmanna Stjórnarráðsins.
ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf skulu berast félags- og
tryggingamálaráðuneytinu, Hafnarhúsinu við Tryggvagötu, 150 Reykjavík, eða á
netfangið: eigi síðar en 11. apríl nk. Öllum umsóknum verður svarað
þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.
Menntunar- og hæfniskröfur
Helstu verkefni
Í boði
Umsóknir
.
.
postur@fel.stjr.is
FÉLAGS- OG TRYGGINGAMÁLARÁÐUNEYTIÐ