Fréttablaðið - 20.03.2010, Side 68
6 FERÐALÖG
Stonehenge
Af spennandi stöðum fortíðar hlýt-
ur furðumannvirkið Stonehenge
að standa hvað fremst. Risastór-
ir steinarnir, virkisgarðarnir og
gröfin eru frá forsögulegum tíma,
elsti hlutinn frá því um 3100 fyrir
Krist og vekur endalausar spurn-
ingar. Þannig geta ferðalang-
ar sjálfir velt því fyrir sér hvort
Stonehenge sé forn stjörnuathug-
unarstöð, einhvers konar hof eða
eitthvað allt annað.
Stonehenge er staðsett við
Amesbury í Wiltshire í Englandi,
er á heimsminjaskrá UNESCO
og á Netinu má finna skipulagð-
ar ferðir að Stonehenge og má
þar nefna dagsferðir þar sem hin
sögufræga borg Bath, sem einnig
er á heimsminjaskrá, er heimsótt
í leiðinni. Þar getur meðal annars
að líta á fornar rómverskar heilsu-
lindir og musteri. Má þar benda á
síðuna gotostonehenge.co.uk.
Parþenon
Grikkland er paradís ferðalangs-
ins með fortíðarþrána og þar er
Aþenuhofið, Parþenon, í miðj-
um aldingarðinum. Hofið er, líkt
og allt sem Grikkir sköpuðu á
Períklesartímanum, úr hvítum
marmara og stendur á Akrópólis-
hæðinni í hjarta Aþenu. Hofið er
byggt 447-432 fyrir Krist og kom
í stað eldra hofs sem skemmdist í
innrás Persa árið 480.
Hofið var upphaflega reist til
heiðurs gyðjunni sjálfri en var
svo notað sem kirkja í fornkristni
og moska á 15. öld.
Á Akrópólishæð voru ýmsar
byggingar og utan hofsins standa
nokkrar þeirra enn en aðrar hafa
eyðilagst. Geta ferðamenn í dag
skoðað Níkuhofið, Erekþeion og
Hofhliðið auk Parþenon.
Regensburg
Þýskaland er einstakt hvað varð-
ar fjölda áhugaverða staða fyrir
sagnfræðinginn í manni. UNES-
CO hefur sett 32 staði þar á heims-
minjaskrá og á hverju horni birt-
ist sagan. Má þar til að mynda
nefna Regensburg, sem er talin
ein best varðveitta stórborgin frá
miðöldum.
Markús Árelíus, keisari Róma-
veldis, lagði grunninn að borginni,
sem var þá bær og hét Ratisbona.
Síðar var bærinn gerður að fyrstu
höfuðborg Bæjaralands sem og
ríkisins alls. Í dag er Regensburg
háskólaborg þar sem skoða má
gamla bæinn, dómkirkju heilags
Péturs, gamla ráðhúsið, bakgarð-
ana og heimakapellur sem voru í
húsum aðalsmanna. Að ógleymdri
sjálfi „Steinbrúnni“ (Steinerne
Brücke) sem gefur góða hugmynd
um brýr miðalda. Sé fólk komið
til Regensburg er ekki hægt að
láta það ógert að skoða hin fornu
rómversku landamæri, Limes,
sem vörðu forna rómverska
heimsveldið og eru talin lengstu
rústir jarðmannvirkja Evrópu,
550 km löng. Þau liggja frá Bad-
Hönningen við Rín til Regens-
burg, með virkjum, rómverskum
böðum og svo Rómarsafni.
Conwy-kastali
Bretland svíkur ekki ferðalanga
af sögulegum minjum og má þar
meðal annars finna stórfenglega
kastala. Wales er þar hvað ríkast
af kastölum og virkjum, en einir
400 slíkir minnisvarðar standa í
héraðinu. Ber þar einna fyrst að
nefna Conwy-kastala í norður-
hluta Wales en kastalann reisti
Játvarður I. á árunum 1283-1287.
Kastalinn, ásamt borgarmúrum
Conwy-bæjar, er á heimsminja-
skrá UNESCO og hefur marga
turna. Kastalinn þykir ekki síður
stórfenglegur að næturlagi, þá
er hann upplýstur. Ferðalang-
ar ættu að gefa sér góðan tíma í
Wales, ekki afgreiða með kastal-
ann með dagsferð heldur leyfa sér
að „miðaldast“ í nokkra daga.
Sintrahöllin í Portúgal
Og áfram í köstulum en um alla
Evrópu má finna stærri og minni
Kemur út þriðjudaginn
23. mars
Farsímar
Sérblað Fréttablaðsins
Auglýsendur vinsamlegast hafið samband:
Benedikt
• benediktj@365.is
• sími 512 5411
Hlynur Þór
• hlynurs@365.is
• sími 5125439
FERÐAST
AFTUR Í
TÍMANN
Á óteljandi stöðum í Evrópu fær ferðalangurinn það
á tilfi nninguna að hann sé staddur í allt öðrum og
langtum eldri tíma. Ferðalög valdi af handahófi sex
áhugaverða staði úr fortíðinni.
Breskar ferðaskrifstofur bjóða ýmsar styttri
og lengri ferðir að Stonehenge.
Parþenon-hofið í Grikklandi.
Conwy-kastali er einn
hinna stórfenglegri í Bret-
landi en kastalinn stendur
uppi á hæð.
Wales er himnaríki mið-
aldaaðdáenda en einnig er
hægt að fara þar enn lengra
aftur í tímann, í Llandudno,
og skoða nokkur þúsund
ára koparnámur.
Regensburg er einn
af mörgum stór-
fenglegum söguleg-
um áfangastöðum
Þýskalands.