Fréttablaðið - 20.03.2010, Síða 74
Hjálparstarf kirkjunnar10
Árið 2009 hófst, eins og venjulega,
með háværum sprengingum,
álfabrennum og tilfinningaríkum
faðmlögum fjölskyldunnar. Flestir
átu yfir sig af góðgæti og héldu
síðan á skrall og fyrir öllum
markaði nýtt ár nýja von og
loforð um betri tíma. Að minnsta
kosti hérna megin á hnettinum.
Við hjá Breytöndum sáum fram
á annasamt ár enda
af nægri ósanngirni að taka.
Trumbusláttur sanngjarnra
viðskipta
Alþjóðlegur dagur sanngjarnra
viðskipta (Fairtrade) er haldinn
hátíðlegur annan laugardaginn
í maí ár hvert. Í ár komu tug-
þúsundir manna um allan heim
saman í sínu landi og börðu
trumbur til að vekja athygli á
mikilvægi sanngjarnra viðskipta.
Breytendur stóðu fyrir trumbuhring
á Austurvelli og báru skilaboðin
áfram af krafti.
Fjaðrafok
Fjaðrafok var einskonar vormót
Breytanda þar sem gamlir og nýir
meðlimir voru hristir saman með
ýmsum aðferðum, s.s. látbragðs-
leik, útiveru, spilum, sprelli,
vökunóttum og síðast en ekki síst;
hugmyndavinnu fyrir spánýja
herferð.
Helstu málefnin sem Breytendur
leggja áherslu á eru óréttmætar
skuldir, sanngjörn viðskipti, HIV
og alnæmi, hlýnun jarðar og
friður. Ákveðið var að gera hlýnun
jarðar að viðfangsefni ársins
í ljósi þess að stefnt er að því að
Kyoto-bókunin verði endurnýjuð
í Kaupmannahöfn nú í desember
og vegna þeirra milljóna manna
sem nú eru á flótta vegna hlýnunar
jarðar. Þá fóru heilasellurnar
í gang til að finna upp jákvæðar
og skemmtilegar aðferðir til að
leggja þessu málefni lið, enda
þykir okkur betra að fá fólk til liðs
við okkur heldur en að króa það
af úti í horni. Herferðin fékk
yfirskriftina „Hlýnun jarðar er
mannréttindamál“ og höfðum við
nóg að gera í sumar og haust við
að koma þessu málefni á framfæri.
Bangladesh á Austurvelli
Besta fjárfesting Breytanda
á síðasta ári var, ótrúlegt en satt,
skrautleg barnasundlaug. Í hana
settum við borð, stóla, lampa og
fleira heimilislegt og auðvitað
vatn, enda vatnsflaumur orðinn
hluti af venjulegu heimilishaldi
sumstaðar í Bangladesh og víðar.
Þar hefur fólk neyðst til að flýja
heimili sín vegna hækkunar
sjávarborðs af völdum hlýnunar
jarðar. Við sátum klukkutímum
saman í köldu vatninu, á Austur-
velli um mitt sumar, á Menningar-
nótt við Tjörnina og á aðalfundi
Hjálparstarfs kirkjunnar. Kaldar
tásur voru vel árangursins virði
en þeir sem ekki voru í lauginni
spjölluðu við vegfarendur og
söfnuðu undirskriftum á tóm
íspinnaprik – sem tákna ísinn
sem er að bráðna.
Á köldum októberdegi mátti sjá
Breytendur í gervi flóttamanna
á Laugaveginum með búslóðina
í hjólbörum í leit að samastað.
Flóttamenn vegna hlýnunar jarðar
hafa engin skilgreind réttindi hér
á landi né annars staðar svo ekki
var um marga staði að velja.
Vegfarendur höfðu samúð með
flóttamönnunum og safnaðist
ágætis fjöldi af undirskriftum
þennan dag.
Í lok herferðarinnar höfðu safnast
um 800 undirskriftir. Með límbyssu,
verkfræðiviti, þolinmæði, þraut-
seigju og andlegum stuðningi tókst
eljusamri Breytönd að byggja
skúlptúr úr þessum hundruðum
íspinnaprika og árangurinn varð
tæplega eins og hálfs metra hár
hvirfilbylur.
Fundur með umhverfisráðherra
Við þurftum að treysta á fjöl-
skylduna til að koma hvirfilbylnum
á áfangastað, enda rúmaðist hann
ekki í venjulegri fjölskyldubifreið.
Við notuðum Norræna loftslags-
daginn sem tilefni fyrir afhendingu
undirskriftanna sem afhentar voru
umhverfisráðherra. Fríður flokkur
fólks mætti í umhverfisráðuneytið
þar sem skúlptúrinn var afhjúpaður
og kröfurnar lesnar upp.
Hvirfilbylurinn prýðir nú skrifstofu
umhverfisráðherra sem góð
áminning um þá ábyrgð sem
Íslendingar bera í loftslagsmálum.
Breytendur á loftslagsráðstefnu
Tveir fulltrúar Breytanda fóru til
Kaupmannahafnar í desember
2009 í tengslum við loftslagsráð-
stefnu Sameinuðu þjóðanna og
tóku þátt í friðsamlegum aðgerðum
systur hreyfinga á Norðurlöndum
til að vekja athygli á slæmri stöðu
þróunarríkjanna vegna hlýnunar
jarðar og kom þá barnasundlaugin
góða enn að góðum notum.
Sanngjörn viðskipti viðfangsefni
2010
Fyrsti aðalfundur Breytanda var
haldinn 23. janúar í safnaðar-
heimili Grensáskirkju þar sem sjö
manna stjórn var kosin.
Á fundinum var ákveðið að
sanngjörn viðskipti (Fair trade)
yrðu áherslumálefni þessa árs.
Aldrei að vita hverju við finnum
upp á því samhengi!
Hvað er Changemaker?
- Changemaker, eða Breytendur, er
hreyfing ungs fólks sem berst
fyrir sanngjarnari heimi með
jákvæðum aðferðum
- Hreyfingin er grasrótarhreyfing
sem á upptök sín í Noregi en
hefur nú breiðst um öll
Norðurlöndin og víðar
- Breytendur stunda ekki mótmæli
heldur beita skapandi hugsun og
sjónrænum aðgerðum til að vekja
athygli á málstað fátækra ríkja
- Breytendur vilja opna augu ungs
fólks fyrir þeim tækifærum sem
við höfum til að hafa áhrif!
Vilt þú breyta heiminum?
Breytendur bjóða alla velkomna,
óháð trú, stjórnmálaskoðunum og
þjóðerni. Ef þú vilt gera heiminn
að sanngjarnari stað og taka þátt
í skemmtilegu starfi um leið,
getur þú:
- Sent okkur tölvupóst á netfangið
changemaker@changemaker.is
- Hringt í okkur í síma 663-9939
(Þorsteinn), 865-0272 (Lilja) eða
690-9093 (Árni)
Fundið okkur á
www.facebook.com/breytendur
og www.changemaker.is
Mundu að það er fólk sem stjórnar
heiminum og þess vegna er það
fólk sem getur breytt honum!
2009 afdrifaríkt ár hjá Breytöndum
Kröfur til stjórnvalda
Í ljósi ábyrgðar Íslendinga á útblæstri gróðurhúsalofttegunda sem
valda hlýnun jarðar krefjumst við þess:
- Að stjórnvöld skilgreini stöðu flóttamanna undan hlýnun jarðar og
viðbrögð Íslands við þeim sem kunna að leita sér hælis hér vegna
hennar.
- Að Íslendingar taki sér stöðu meðal leiðandi þjóða í loftslagsmálum
í Kaupmannahöfn í desember 2009.
Flóttamenn vegna hlýnunar jarðar
Hlýnun jarðar hefur í för með sér uppskerubrest, útbreiðslu eyðimarka,
bráðnun jökla, hækkun sjávarmáls, flóð, fellibylji, öfgar í veðurfari og
fleira sem veldur því að fólk þarf að flýja heimili sín.
Samkvæmt Rauða krossinum eru nú fleiri á flótta undan hlýnun jarðar
en stríðsátökum.
Samkvæmt Háskóla Sameinuðu þjóðanna eru flóttamenn vegna
hlýnunar jarðar um 24 milljónir í dag en áætlað er að þeir verði
50 milljónir í lok árs 2010.
Flóttamenn vegna hlýnunar jarðar hafa engin skilgreind réttindi eins
og aðrir flóttamenn.
Íbúar eyjunnar Tuvalu hafa nú þegar gert samning við Nýja-Sjáland
um móttöku flóttamanna vegna hækkandi sjávarmáls.