Fréttablaðið - 20.03.2010, Síða 80
52 20. mars 2010 LAUGARDAGUR
L
estölvur hafa verið til
um nokkurra ára skeið,
en það er ekki fyrr en
nýverið sem þær fóru
að vinna sér sess á
meðal almennra les-
enda. „Ég held því fram að árið
2009 hafi orðið vatnaskil í notk-
un og sölu rafbóka, það var fyrsta
árið í sögu mannkyns sem við
sáum rafræna texta sem söluvöru,“
segir Kristján B. Jónasson, for-
maður Félags bókaútgefenda, sem
kynnt hefur sér rafræna útgáfu í
þaula.
Kristján B. bendir á að á síðasta
ári hafi sala rafbóka verið sú grein
í bandarískum útgáfubransa sem
jókst mest, eða um nær 200 pró-
sent. Á sama tíma hafi sala á met-
sölukiljum dregist lítillega saman,
sem bendir til þess að kaupend-
ur þeirra hafi farið að kaupa sér
bækur rafrænt, bækur sem helst
eru lesnar í lestölvum eða les-
vélum. „En ég bendi á að hlutur
þeirra er samt sem áður lítill þegar
heildarmarkaðurinn er skoðaður, í
Bandaríkjunum voru rafbækur 3,3
prósent af heildarsölu bóka árið
2009, sem er reyndar mikil aukn-
ing frá 1,2 prósentum af heildar-
markaði árið 2008.“
Lestölvur komu fyrst fram á
sjónarsviðið á tíunda áratug síð-
ustu aldar. Í fyrstu voru þær stór-
ar og klunnalegar en urðu allar
rennilegri upp úr aldamótunum.
Árið 2006 kynntu kynnti Sony
nýja gerð af lestölvu, Sony Reader,
sem bæði var minni en fyrirrenn-
arar hennar og notaðist við nýja
tækni, rafblek eða e-ink, sem
gerir lesturinn þægilegri. Sem
er að sjálfsögðu lykilatriði þegar
kemur að notkuninni.
Tæknin sú byggir á því að raf-
hleðsla í yfirborðinu býr til stafina
á skjánum, sem er ekki baklýstur
og það verður því ekki þreytandi
að lesa lengra lesmál í tækinu, eins
og mörgum þykir þegar þarf að
lesa lengri texta á tölvuskjá. Þvert
á móti líkist textinn bókartexta og
lestrarupplifunin er því líkari því
að lesa bók en þegar texti er lesinn
í tölvu. Birta og sólarljós hafa held-
ur ekki áhrif á textann á skjánum,
sem eru góðar fréttir fyrir þá sem
vilja helst liggja og lesa í sumar-
fríinu.
Bókin er fullkomin
Ári síðar kynnti svo netbókarisinn
Amazon sína eigin lestölvu Kindle
sem hlaut mikla athygli. Þráðlaust
niðurhal á bókum var það sem
Kindle hafði fram yfir aðrar lest-
ölvur sem þá voru á markaði. Til
að mynda setti vikuritið Newsweek
gripinn á forsíðuna og menn veltu
vöngum yfir því hvort þarna væri
kominn arftaki bókarinnar eins og
við þekkjum hana.
Margir hafa bent á að bókin er
hins vegar svo fullkomið fyrirbæri
að hún verði ekki leyst svo auðveld-
lega af hólmi. „Bækur þola hnjask,
þú getur misst þær í gólfið án þess
að þær eyðileggist,“ bendir Kristj-
án B. á og segir lestölvur í sífelldri
þróun en taki ekki endilega við af
bókinni, þótt þær séu góður val-
kostur fyrir ýmsa lesendur.
Lestölvur höfða augljóslega til
þeirra sem lesa mikið af bókum,
eru alltaf að lesa og viða að sér
fleiri bókum en þeir lesa. Gallinn
við slíka hegðun er að bækur taka
pláss, þær þurfa hillur, safna ryki
og eru miseigulegar þegar upp er
staðið. Með því að eiga bækurnar
bara á stafrænu formi, sem rafbók
varðveitta í lestölvunni, fer eins
og gefur að skilja afar lítið fyrir
þeim. Lesvélar á borð við Kindle
2, uppfærð útgáfa af Kindle sem
til er fyrir alþjóðamarkað og hefur
náð talsverðri fótfestu og vinsæld-
um, geta til dæmis geymt 1.500
bækur. Það er dágott safn fyrir
hvern sem er.
Námsbækur verða rafbækur
Sumar bækur eru þeirrar gerð-
ar að þær fara vel í hillum og eru
eigulegar. Það á ekki við um allar
bækur og til að mynda má ímynda
sér að námsbækur eigi eftir að
verða vinsælar í rafrænni útgáfu.
Agnar Diego hjá Apple-búð-
inni segir líklegt að ipad-inn sem
Apple kynnti í janúar verði vin-
sæll hjá námsmönnum, bæði sé
hægt að kaupa bækur í hann, svo
sé hægt að nota hann til að fara á
Netið, og gera það sem flestir að
nota fartölvur til, lesa tölvupóst,
fara á Facebook og vafra um vef-
inn. Gríðarleg eftirvænting var
eftir ipad-inum. Skiptar skoðanir
virðast þó vera á því hvort hann
sé raunveruleg samkeppni við
lestölvur. Í grein í tímaritinu CIO
sem birtist skömmu eftir að ipad-
inn var kynntur segir að álitamál-
ið sé hvort neytendur vilji frá-
bæra lestrarupplifun eins og þeir
fái þegar rafbleki sé beitt eða eiga
kost á margmiðlunarupplifun, sem
ipad-inn gefur með vafra, litaskjá,
og fleiru.
En ipad-inn skartar líka nýju
forriti, iBooks, þar sem kaupa má
bækur og þar með er komin leið
Apple inn í samkeppni um kaup á
stafrænum bókum. Gagnrýnandi
breska dagblaðsins The Daily
Telegraph hrósar útlitinu á forrit-
inu sem hann telur að muni freista
fólks til bókakaupa en hann segir
þó að vegna þess einmitt að skjár-
inn er baklýstur þá muni alvöru
bókaormar ekki skipta lestölvu út
fyrir ipad-inn.
Kristján B. telur að á annað þús-
und manns eigi lestölvur hér á
landi. Þeim megi líkast til skipta í
tvo hópa, annars vegar þá sem séu
mjög tæknilega sinnaðir og verði
hreinlega að eiga allar græjur sem
um getur. Hins vegar þá sem eru
stórnotendur á lesefni.
„Þeir sem nota mest lesarana hér
á landi eru líklega þeir sem starfs
síns vegna fá sent mikið af lesefni.“
Kristján segir að þar fyrir utan séu
stórtækir lestrarhestar líklegir til
að eiga lestölvu. „Þeir sem lesa
yfir tíu bækur á mánuði og myndu
lesa meira ef þeir hefðu tök á eru
líklegir til að eiga lestölvu,“ segir
Kristján og bendir á að allar kann-
anir á hegðun þeirra sem nota raf-
ræna texta bendi til þess að þeir
sæki sér miklu meira af textum en
þeir ráða við að lesa.
Sá bókalesandi sem skrifar þessa
grein skilur þetta mjög vel, stafli
á náttborði er til vitnis um metn-
aðarfullar lestraráætlanir, sem
þó gjarnan fela í sér að þyngstu
skáldverkin víkja fyrir meira létt-
meti og safna því ryki á náttborð-
inu sem tölvutæknin getur losað
lestrahestinn við, auk þess sem
minna fer fyrir lesmeti inni í lít-
illi tölvu en innbundnum í band.
Einnig er freistandi að geta nálg-
ast gömul verk og klassísk án þess
að þurfa að reiða fram fé, en fjöldi
þeirra er aðgengilegur á Netinu.
Ekkert til á íslensku
En hverjir eru þá gallarnir? Fyrir
íslenskan lesanda er sá fyrsti og
augljósasti að enn er ekki hægt að
kaupa bækur á íslensku fyrir les-
tölvur. „Það er ekkert sem stendur
tæknilega í veginum fyrir útgáfu
bóka á rafrænu formi, allir hafa
getað gefið út bækur rafrænt und-
anfarin 25 ár. Gallinn er sá að
enginn markaður er fyrir slíka
útgáfu,“ segir Kristján.
Hann segir einnig að ýmislegt er
snýr að samningum við höfunda og
þeirra rétt hafi ekki verið
klárað hér á landi. Einnig
liggi ekki fyrir hvernig staf-
rænar bækur yrðu seldar hér
á landi, ætti það að vera í gegn-
um heimasíður forlaga eða bóka-
búða? Alls konar praktísk atriði er
að þessu lúta eru einfaldlega ófrá-
gengin segir Kristján.
Mörður Árnason, varaþingmað-
ur Samfylkingarinnar, lagði í fyrra
fram frumvarp á Alþingi um lækk-
un virðisauka á rafbækur, þannig
að hann væri í samræmi við virð-
isaukaskatt á venjulegum bókum.
Frumvarpið var ekki samþykkt en
vakti athygli, segir Mörður, sem
fékk í kjölfarið ýmsar ábending-
ar um hvað mætti betur fara og
stefnir hann á að leggja það aftur
fyrir þingið, ef hann fer inn í vetur.
„Það þarf að huga að þessu, ýmsar
bækur eru auðvitað til í stafrænu
formi, eins og orðabækur, en ég
tel að þegar námsbækur fara yfir
á stafrænt form þá verði lestölvur
fyrst útbreiddar hér á landi,“ segir
Mörður.
35.000 króna græja
Þetta á við um íslenskar rafbæk-
ur. Þegar keyptar eru rafbækur til
dæmis í gegnum Amazon þarf ekki
að greiða skatta og tolla, óhagstætt
gengi dregur hins vegar úr því að
stórinnkaup á rafbókum séu eins
fýsileg um þessar mundir og þau
hefðu verið árið 2007.
Lestölvurnar hefðu líka verið
ódýrari þá og þær væru kannski
útbreiddari hér ef dollarinn stæði
í 70 en ekki 130 krónum. Sem dæmi
um verð á lesvélum þá kostar Kind-
le 2 tæpa 300 dollara, eða um 35.000
og ipad-inn frá um 500 dollurum í
Bandaríkjunum eða ríflega 63 þús-
und krónur. Ekki er ljóst hvað ipad-
inn mun kosta þegar hann kemur
á markaðinn hér, sem búist er við
aðverði snemmsumars.
Þess ber að geta að verð, til
dæmis á bókum á Amazon, er
nokkuð svipað ef keypt er ný bók
eða rafbók. Þegar Kindle var sett
á markað fyrir þremur árum voru
útgefendur reyndar ósáttir við
hversu ódýrar nýjar bækur voru.
Bentu á að þó að prentkostnaður
við rafbækur væri enginn þá væru
höfundarlaun og ýmis kostnaður sá
hinn sami. Kaupandinn fær hins
vegar ekki alveg það sama fyrir
peninginn, til dæmis getur hann
ekki lánað nýjustu rafbókina, nema
lána lestækið sitt líka.
Enginn virðist telja að rafbæk-
ur leysi bækur af hólmi. Það er
hins vegar næsta víst að blómstr-
andi útgáfa rafbóka og flottari og
betrumbættar lestölvur af ýmsum
toga verða framleiddar á næstunni.
Þegar tækin verða ódýrari fá fleiri
áhuga á að kaupa þau, sjá kostina
við að fá reyfarana beint upp í rúm
þegar lestrarlöngun vaknar.
Og þrátt fyrir að íslenskir útgef-
endur sverji sig í ætt við þá evr-
ópsku; séu að skoða málin í róleg-
heitum, og íslenskir lesendur hafi
ekki kallað eftir Kiljan og kiljum í
rafbók þá má ætla að það sé tíma-
bundið ástand – ekki varanlegt.
Breyttur bóklestur á nýrri öld
Fátt vita bókaormar betra en að opna bók, hvort sem lagst er í lestur á nýrri skáldsögu eða kynni rifjuð upp af gamalli gersemi.
Um nokkur hundruð ára skeið hefur bóklestur falið í sér að hafa prentgrip í höndum. Eru sífellt ódýrari og aðgengilegri lestölvur
á leiðinni að breyta því? Sigríður Björg Tómasdóttir kynnti sér stafræna útgáfu og lestrarvenjur á 21. öldinni.
IPAD-INN FRÁ APPLE Margir eru spennt-
ir fyrir að handleika nýjustu afurð Apple.
E-reader er heitið
sem notaði er
um lestölvur af
ýmsu tagi á ensku.
Í þessari grein er
talað um lestölvur
eða lestæki. Einnig
hefur orðið bókatölva
sést á prenti og Mörður
Árnason kallaði gripinn
bókhlöðu er hann lagði
fram frumvarp um rafbæk-
ur í fyrra. Þar var orðið tón-
hlaða haft að fyrirmynd,
en það hefur verið notað
um ipod.
HVAÐ Á GRÆJAN
AÐ HEITA?
1971: Gutenberg-verkefnið sett af
stað af Bandaríkjamanninum
Michael S. Hart. Markmið
verksins er að gera bækur
aðgengilegar rafrænt. Nú
hefur 30.000 bókum verið
komið á rafrænt form hjá
Gutenberg-verkefnu, not-
endum að kostnaðarlausu.
Verkefnið dregur nafn sitt af
þýska prentaranum Jóhann-
esi Gutenberg sem bylti
prentverki er hann fann upp
þá aðferð að nota lausaletur-
sprentun.
1993: Digital Book Inc býður 50
stafrænar bækur á diski
1995: Amazon hefur sölu bóka á
Netinu
1998: Fyrstu lestölvurnar koma á
markað, Rocket ebook og
Softbook.
2000: Stephen King býður bókina
Riding the Bullet, rafrænt,
aðeins er hægt að lesa hana
á tölvu.
2002: Forlögin Random House og
HarperCollins hefja sölu á
stafrænum útgáfum bóka
sem þau gefa út á ensku.
2006: Sony kynnir Sony Reader til
sögunnar sem notast við e-
ink tæknina.
2007. Amazon setur Kindle-lestölv-
una á markað í Bandaríkj-
unum.
2009: Amazon setur Kindle 2 á
markað.
2010: Ipad kynntur til sögunnar.
*heimild wikipedia.org
ÁFANGAR Í RAFRÆNNI ÚTGÁFU*
Í HILLU EÐA VÉL? Lestrarhestar hafa tilhneigingu til að sanka að sér bókum, margir þeirra taka eflaust lesvélum fegins hendi,
enda fer minna fyrir reyfurum í þeim en í bókaskáp. Til hægri sést Kindle 2 frá Amazon. NORDIPHOTOS/GETTYIMAGES
Lestur frétta af ýmsu tagi hefur mikið til færst yfir á Netið undanfarin ár.
Því hefur verið spáð að svo verði í auknum mæli á næstu árum. „Dagblöð
eru dauðadæmd,“ segir Kristján B. Jónasson, sem spáir því að þau verði
eingöngu í rafrænni útgáfu eftir tvo áratugi eða svo. Dagblöð eru flest
aðgengileg á Netinu, en borga verður fyrir lestur sumra áskriftarblaða. Á
heimasíðu Amason má sjá að í gegnum Kindle er hægt að vera í áskrift
fjölmargra dagblaða. „Ég hef ekki keypt tímarit í mörg ár,“ segir Agnar Diego
hjá Apple-búðinni, sem telur einboðið að græjur á borð við ipad-inn verði
aðaltólið til að skoða fjölmiðla í framtíðinni. Ipad-inn hefur það fram yfir
flestar lestölvur að skjárinn er í lit og hann hentar því betur til að skoða
fjölmiðla en lesvélarnar dæmigerðu.
DAGBLÖÐ ERU DAUÐADÆMD