Fréttablaðið - 20.03.2010, Page 112
Mest lesið
DREIFING: dreifing@posthusid.is
EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN OG SKIPTIBORÐ: 512 5000 VISIR.IS
Ritstjórn: 512 5313, Fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is PRENTUN: Ísafoldarprentsmiðja
FRÉTTIR AF FÓLKI
Þá er þetta búið
Mörg mál og merkileg voru á
auglýstri dagskrá fundar ríkisstjórn-
arinnar í gærmorgun. Nokkrir urðu
þó til að staldra við mál á könnu
Katrínar Jakobsdóttur, mennta-
og menningarmálaráðherra. Dag-
skrárliðurinn var „Ritun og útgáfa á
lokabindi Sögu Íslands“. Spurning
hvort svo er fyrir okkur
komið að tímaspursmál
sé hvenær forræði
landsmála flyst aftur á
hendur Danmerkur. Þar
væri þá komin styttri
leiðin inn í Evr-
ópusambandið og
Myntbandalag Evr-
ópu. Sögulok virð-
ast í það minnsta í
sjónmáli.
Fermingargjafir
fyrir unga
hestamenn
www.lifland.is
Lynghálsi 3 • Lónsbakka Akureyri
Vantar stóran og sterkan
mann
Sögur hafa gengið um bæinn þess
efnis að tónlistarkonan Peaches
hafi aflýst tónleikum sínum á Nasa
í kvöld. Ekkert mun vera hæft í
þessum sögum og Peaches ku vera
orðin spennt fyrir kvöldinu. Rétt er
að taka fram að einhverjir miðar
eru enn til á tónleikana og verða
þeir seldir við innganginn. Til að
tónleikarnir gangi fullkomlega upp
hefur hún farið fram á viftu, fataslá
og gínu til að hafa með sér á
sviðinu. Auk þess hefur hún krafist
þess að stór og sterkur maður verði
til taks við sviðið til að hjálpa henni
þegar hún kastar sér út í áhorfenda-
skarann. Ekki mun frágengið hver
fær það hlutverk en Steinþór
Helgi Arnsteinsson, umboðsmað-
ur Hjaltalín og einn skipuleggjenda
tónleikanna, hefur að sögn boðið
fram krafta sína.
- óká, hdm
1 Lokuðust inn í
bankahvelfingu B5
2 Líklegt að Jóna fái að afplána
heima
3 Frosin hindber innkölluð
vegna gruns um nóróvírus
4 Nauðgaði og átti barnaklám
5 Varasamt að fara í Bláa lónið