Fréttablaðið - 31.03.2010, Side 38
Reykjavík | Málgagn Samfylkingarinnar í Reykjavík | 6
Dofri Hermannsson er í sjötta sæti og Margrét
Sverrisdóttir í því áttunda. Þau eiga það sameigin-
legt að búa í úthverfum í austurborginni. Þau
ræða borgarmálin frá sjónarhóli úthverfanna og
er víst engin vanþörf á – enginn verðandi borgar-
fulltrúi Sjálfstæðisfl okks, Framsóknarfl okks eða
Vinstri grænna býr austar en í Fossvogi.
Dofri: Ég var hálfgerður land-
nema unglingur í Grafarvogi, og
fyrsta veturinn okkar, árið ´84,
var búið í innan við 20 húsum í
hverfi nu. Fyrstu árin vantaði allt,
skóla, skólalóð, boltavelli, strætó,
leikskóla og íþróttahús. Foreldrar
mínir og aðrir frumbyggjar börð-
ust fyrir sínu eins og þið eruð að
gera í Úlfarsárdal. Leikskóli reis
ekki fyrr en íbúasamtökin gengu
hús úr húsi, töldu smábörn og
ófrískar konur og sendu borg-
arstjóra niðurstöðurnar.
Margét: Enginn okkar frum-
byggja í Úlfarsárdal reiknaði með
bakslagi í uppbyggingu hverf-
isins en það vantar líka talsvert
upp á í Grafarholtinu. Þar þarf að
forgangsraða rétt og við í Sam-
fylkingunni höfum stutt við hug-
myndir íbúanna um að leggja eigi
áherslu á vel nothæfa íþrótta-
aðstöðu strax, frekar en bíða eftir
einhverju súperfl ottu. Börn eru
bara börn í stuttan tíma og það er
ólíðandi að börnin í Grafarholti og
Úlfarsárdal þurfi að bíða í fi mm ár
eftir almennilegri aðstöðu .
Dofri: Svo er annað atriði sem
kostar foreldra, afa og ömmur í
Reykjavík um tvo milljarða á ári.
SKUTLIÐ! Það er gríðarlega mik-
ilvægt að skapa börnum heild-
stæðan skóla- og frístundadag.
Með tillögu Samfylkingarinnar
Helmingur borgarbúa
býr í austurborginni
um frístundastrætó var stigið
stórt skref í þessa átt og fyrsta
tilraunin verður í Grafarvogi.
Strætóleið 6 á að breyta svo hún
þjóni sem allra fl estum börnum í
frístundaiðkun. Og Fjölnir stefn-
ir nú að íþróttaskóla fyrir yngstu
bekkina í öllum skólum hverfi sins,
strax að loknum skóladegi.
Margrét: Ekki má gleyma öðr-
um frístundum, til dæmis tónlist.
Tónlistar- og grunnskólarnir hafa
tekið og geta tekið mun stærri
skref í samstarfsátt. Skólahljóm-
sveitirnar okkar eru líka frábær
og ódýr leið til að kynna tónlist
fyrir börnum – á heimaslóð.
Dofri: Lykilatriðið er að fi nna
bestu leiðirnar til að gera sem
mest fyrir takmarkaða peninga.
En þá þurfa borgaryfi rvöld að
hafa kjark til að fara í breytingar,
stundum róttækar.
Margrét: Og þá skiptir máli að
borgarfulltrúar endurspegli borg-
ina alla en ekki bara vesturhluta
hennar. Helmingur borgarbúa býr
austan við Elliðaárósa.
• Magga vann um árabil í félagsmiðstöðvum með
unglingum og sem sjálfb oðaliði með þroskaheftum
• Magga er bæði laxveiðikona og trillukerling, með
byssuleyfi og skýtur rjúpur í jólamatinn
• Magga átti sér þann draum sem lítil stelpa að eiga
hund sem fylgdi henni eins og skuggi, sá draumur
hefur núna ræst
• Dofri hefur átt heima í póstnúmerum 101, 104, 105, 107,
108, 111, 112, 200, 300, 371, 380 og 600
• Dofri er alinn upp á hestbaki og eftir nokkur „óvirk“ ár í
hrossum fékk hann vel ættað folald í fertugsafmælisgjöf
• Dofri er með réttindi til að kenna leiklist
BORGARMÁLIN ERU Á DAGSKRÁ!
Við einn fundinn í Grafarvogi höfðu dreifi bréf í götuna gleymst og
gestgjafi nn óttaðist að fáir myndu mæta. Ég tók mig þá til, fl etti
einfaldlega upp á götunni á ja.is og hringdi í alla íbúa götunnar og
bauð þeim í kaffi spjall um borgarmálin og málefni hverfi sins.
Erindið kom íbúum ánægjulega á óvart og húsfyllir varð á fundinum.
Þetta staðfestir að borgarmálin eru á dagskrá hjá Reykvíkingum og
að þeir vilja milliliðalaust samtal við sína borgarfulltrúa.
Kær kveðja, Dofri Hermannsson
SNILLDARHUGMYND!
Ég hef haldið nokkra heimafundi heima á
Selvogsgrunni. Á einum slíkum sátu for-
kólfar íþróttafélaganna í Laugardalnum
og Þróttarinn Eysteinn Pétur Lárusson
lagði til snilldarhugmynd. Hún var sú að frí-
stundakortakerfi ð heimilaði að til dæmis afar
og ömmur gætu lagt inn á kortin, ,,hækk-
að heimildina“ ef þau langaði að styrkja
barnabörnin í hollu tómstundastarfi ! Ég lofaði
að ýta þessari frábæru hugmynd á fl ot – og geri
það hér með.
Kær kveðja, Bjarni Karlsson
~ Magga Sverris var forstöðumaður
í Fellahelli árið 1986. Hér stendur
hún við fl ugvélanef sem gegndi
hlutverki diskóbúrs á staðnum.
~ Oddný Sturludóttir 14 ára í ræðustól Alþingis á
,,Alþingi unglinga” árið 1991. Sem formaður Ársels-
ráðs fl utti hún tillögu um skattamál unglinga. Með
henni á myndinni er Eggert Gíslason.
~ Ungir byggingaverkamenn í móanum ofan við
Logafold í Grafar vogi sumarið ´84. Frumbygginn og
frambjóðandinn Dofri Hermannsson er í miðið.
Reykjavíkurþing Samfylkingarinnar verður haldið í Fjölbrautarskólanum í Breið-
holti laugardaginn 24. apríl klukkan 13–17. Þar leggjum við lokahönd á vinnu
málefnahópa Reykjavíkurframboðsins og staðfestum stefnuskrá Samfylkingarinn-
ar í Reykjavík. Þingið er fjölskyldusamkoma og boðið verður upp á listasmiðju fyrir
börnin, útileiki og pylsur. Að loknu Reykjavíkurþingi er upplagt að skella sér saman í
sund í Breiðholtslauginni. Allir Reykvíkingar eru velkomnir á Reykjavíkurþingið. Íbúar
Breiðholts eru sérstaklega velkomnir á borgarþing í sínu eigin hverfi . Með því að halda
þingið þar viljum við meðal annars vekja athygli á því gróna og fjölbreytta samfélagi
sem er við lýði í Breiðholti.
Hvað fi nnst þér?
What do you think?
Co o tym myślisz?
Framtíðarþing um málefni innfl ytjenda 18. apríl
Á Framtíðarþinginu verður kallað eftir skoðunum og sjónarmiðum inn-
fl ytjenda og áhugasamra um fj ölmenningu á sveitarstjórnarmálunum.
Framtíðarþingið verður í Félagsmiðstöðinni Miðbergi, Gerðubergi 1 í
Breiðholti og verður frá 14-17. Dagur B. Eggertsson mun fl ytja ávarp og
sveitarstjórnarfólk Samfylkingarinnar tekur þátt í Framtíðarþinginu.
Landneminn – félag jafnaðarmanna um innfl ytjendur og fj ölmenningu
stendur fyrir þinginu, allir velkomnir!
Nánari upplýsingar um dagskrá á www.xs.is
REYKJAVÍKURÞING
Í BREIÐHOLTI
Ljósmynd: Julia Staples