Fréttablaðið - 31.03.2010, Page 58
42 31. mars 2010 MIÐVIKUDAGUR
Hrunadans Tigers Woods –
kvennafarið – lék lykilhlut-
verk í fyrirsögnum helstu
fjölmiðla heims svo vikum
og mánuðum skipti. Nú und-
irbýr kylfingurinn endur-
komuna af kappi og mark-
aðsöflin skála í kampavíni á
meðan.
Tiger Woods tilkynnti 16. mars að
hann hygðist taka þátt í Masters-
mótinu sem haldið er á Augusta-
vellinum í Georgiuríki. Mótið er
eitt af fjórum stóru mótunum á
bandarísku mótaröðinni í golfi.
Tiger hefur verið frá keppni í
fimm mánuði eða síðan fjölmiðl-
ar greindu frá því að hann hefði
margoft haldið framhjá eiginkonu
sinni, hinni sænsku Elin Norder-
gren. Endurkomu Tigers er beðið
með mikilli eftirvæntingu og það
er ekki síst auglýsendur og eigend-
ur sjónvarpsstöðva sem hugsa sér
gott til glóðarinnar þegar þessi
fremsti kylfingur heims mundar
kylfurnar á ný.
Samkvæmt bandaríska við-
skiptatímaritinu Business Week
er nær öruggt að Tiger slái eigið
sjónvarpsáhorfsmet. Aldrei hafa
fleiri horft á golf í sjónvarpi en
þegar Woods vann fyrsta Masters-
mótið sitt 1997 en sextán milljónir
áhorfenda horfðu á hann tryggja
sér sigur. Samkvæmt Business
Week er ekki ólíklegt að um 20
milljónir manna komi til með að
fylgjast með Tiger á flötum og
brautum Augusta-vallarins enda
horfði svipaður fjöldi á afsökun-
arbeiðni hans í beinni útsendingu
fyrir skemmstu.
Business Week greinir jafn-
framt frá því að auglýsendur
gangi nú nánast af göflunum.
Þeir séu jafnvel reiðubúnir til að
greiða helmingi hærra verð fyrir
auglýsingapláss í útsendingu en
ella. Jafnvel sérhæfð sjónvarps-
stöð eins og Golf Channel gerir sér
vonir um áhorfsaukningu upp á 25
prósent og á það hefur verið bent
að áhorf á golfmót hefur dregist
saman um allt að helming frá því
að Tiger dró sig úr keppni til að
sinna einkalífinu.
Sumir vilja meina að endur-
koma Tigers á golfvöllinn verði
næst-vinsælasti sjónvarpsviðburð-
ur síðustu fimmtán ára í Banda-
ríkjunum. Aðeins innsetningar-
ræða Baracks Obama verði ofar
á þeim lista. Einn þeirra er Sean
McManus, yfirmaður íþrótta-
deildar hjá CBS-sjónvarpsstöð-
inni. Hann bendir á þá staðreynd
að blaðamannafundur Tigers, þar
sem kylfingurinn baðst afsökun-
ar á framferði sínu, hafi fengið
inni hjá öllum stærstu sjónvarps-
stöðvum Bandaríkjanna. Jafnvel
þótt hafi ekki mátt spyrja neinna
spurninga. „Hvað sem hann gerir
á golfvellinum á Augusta þá mun
fólk hafa áhuga á að sjá hann að
verki,“ sagði McManus í samtali
við vefsíðuna ajc.com.
Jafnvel vefmiðlar eru í starthol-
unum því tveir fyrstu keppnisdag-
arnir eru á virkum degi, fimmtu-
dag og föstudag. Má fastlega búast
við því að fólk sem er í vinnu
stelist til að horfa á útsendingu
frá mótinu á vinnutíma. Golfsér-
fræðingar hafa þó bent á að menn
skyldu ekki búast við of miklu af
Tiger, hann hafi ekki keppt á golf-
móti í fimm mánuði.
freyrgigja@frettabladid.is
TIGER WOODS MALAR GULL Á NÝ
GULLKÁLFUR Þrátt fyrir allt er Tiger
Woods mikill gullkálfur í golfinu og
sérfræðingar vestanhafs búast við því að
hann eigi eftir að setja met í sjónvarps-
áhorfi á golf þegar Masters-mótið hefst í
næsta mánuði.
NORDICPHOTOS/GETTY
ÓTTASLEGINN Jude Law óttast að
ævisaga fyrrum eiginkonu sinnar geti
skaðað ímynd hans. NORDICPHOTOS/GETTY
Fyrrum eiginkona leikarans Jude
Law, hönnuðurinn Sadie Frost,
hefur unnið að útgáfu ævisögu
sinnar undanfarna mánuði og
mun Frost meðal annars ætla að
fjalla um hjónaband sitt við Law.
Þetta mun hafa komið illa við
Law sem óttast að frásagnirnar
muni skaða ímynd hans. „Hann
hefur beðið Sadie um að segja
honum nákvæmlega hvað hún
hyggst skrifa um hann. Hann ótt-
ast að sumt af því sem mun koma
fram í bókinni geti skaðað ímynd
hans og komið börnum þeirra í
uppnám,“ var haft eftir heimild-
armanni.
Þeir sem standa að útgáfu
bókarinnar segja Frost fyrst og
fremst ætla að einblína á upp-
vaxtarár sín og feril sinn sem
hönnuð og ekki á fyrrum eigin-
mann hennar eða nána vini, en
Frost er góð vinkona ofurfyrir-
sætunnar Kate Moss og Stellu
McCartney, dóttur Bítilsins.
Óttasleginn
Jude Law
ÞÚ TALDIR RÉTT:
2 MILLJARÐAR OG
400 MILLJÓNIR KRÓNA
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
AT
HU
GI
Ð
AÐ
SÖ
LU
LÝ
KU
R
NÚ
K
L.
16