Fréttablaðið - 06.05.2010, Page 31
Sölufulltrúar Henný Árnadóttir henny@365.is 512 5427 Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is 512 5447
STJÖRNUR eru í síauknum mæli farnar að láta
lita hár sitt í skörpum andstæðum og er talið að
nýtt æði sé í uppsiglingu.
„Ég er í gráum jakka úr gallaefni
og nautshúð sem ég gerði á fyrsta
árinu mínu í Listaháskólanum.
Mér þykir svolítið vænt um þenn-
an jakka en hann var fyrsta flíkin
mín sem fór á tískusýningu,“ segir
Kristín Petrína en jakkann hefur
hún notað mikið síðustu þrjú ár.
„Mér finnst hann alltaf jafn
flottur og aldrei að vita nema ég
framleiði fleiri eintök en ég á enn
þá sniðið.“
Undir jakkanum klæðist Krist-
ín eldrauðum kjól eftir hana sjálfa
sem er líka með fyrstu verkefnum
hennar í skólanum. Hún viður-
kennir að vera svolítil kjólamann-
eskja í sér og að hressandi litasam-
setningar höfði til hennar.
„Ég er alls ekki bara í svörtu.
Ég hef alltaf haft áhuga á litasam-
setningum og kjóllinn var ákveðin
tilraunastarfsemi í því. Hann er
líka fyrsta flíkin sem ég prentaði
á en framan á honum eru prent-
aðar tölur.“
Í fataskáp Kristínar er að finna
mikið af fötum eftir hana sjálfa.
Hún byrjaði snemma að teikna
upp föt sem hana langaði í og fékk
mömmu sína til að sauma fyrir
sig til að byrja með en fór svo
fljótlega að sjá um saumaskap-
inn sjálf. Spurð um framhaldið
eftir skólann segir hún sig klæja
í fingurna eftir að halda áfram að
hanna.
„Ég verð í vinnu í sumar en nú
tekur frelsið við þegar skólanum
lýkur. Ætli ég geri þá ekki bara
allt sem mig langar til að gera
en hef ekki haft tíma til þar sem
skólinn hefur tekið alveg yfir.“
Útskriftarsýning Listaháskóla
Íslands stendur nú yfir í Hafnar-
húsinu og þar má sjá línu Krist-
ínar á slá. Í henni blandar hún
saman rómantískum litum við
afgerandi geómetrísk form og ólík
efni. Sýningunni lýkur á sunnu-
daginn. heida@frettabladid.is
Þykir vænt um jakkann
Kristín Petrína Pétursdóttir er í hópi útskriftarnema Listaháskóla Íslands í fatahönnun. Fréttablaðið bað
hana um að velja uppáhaldsflíkurnar úr fataskápnum og varð hennar eigin hönnun fyrir valinu.
Kristín Petrína Pétursdóttir, útskriftarnemi í fatahönnun, gengur gjarnan í kjólum og hressandi litum. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Jóna María Hafsteinsdóttir
jmh@365.is - sími 512 5473
Henný Árnadóttir
henny@365.is - sími 512 5427
Þórdís Hermannsdóttir
thordish@365.is - sími 512 5447
Föstudaga
Sími 581 2141 • www.hjahrafnhildi.is
Listh
STILLANLEG RÚM
HEILSUDÝNUR
OG
HEILSUKODDAR
Queen rúm með botni
kr. 179.900
SAGA, ÞÓR
OG VALHÖLL
Heilsudýnur
á frábæru verði.
Queen rúm með botni
frá kr. 99.900
Gleðilegt sumar!
www.svefn.is