Fréttablaðið - 07.05.2010, Qupperneq 53
FÖSTUDAGUR 7. maí 2010 33
Söngkonan Madonna ætlar að
taka sér frí frá tónlistarbransan-
um til að einbeita sér að öðrum
hlutum. Hún er að vinna í nýrri
kvikmynd sem nefnist W.E. auk
þess sem hún vill eyða meiri tíma
með fjölskyldunni. „Ég hef ekki
getað einbeitt mér eins mikið
og ég ætti að gera að tónlistinni
vegna þess að myndin hefur tekið
allan minn tíma,“ sagði Madonna.
„Ásamt henni og því að hugsa um
börnin mín fjögur hef ég hvorki
haft tíma né orku í neitt annað.“
Hún bætir við að hún sé ekki með
plötusamning og óvíst hvort ein-
hver vilji gefa út tónlistina henn-
ar næst þegar hún sendir frá sér
plötu.
Tekur sér frí
frá tónlist
MADONNA Madonna ætlar að taka
sér frí frá tónlistarbransanum vegna
tímaskorts.
Leikkonan Gwyneth Paltrow
hefur verið dugleg við að kynna
nýjustu kvikmynd sína, Iron Man
2, en hún fer með aðalhlutverkið
í þeirri mynd ásamt Robert Dow-
ney Jr. og Scarlett Johansson.
Leikkonan segist ekki vinna jafn
mikið og hún gerði því hún vilji
síður dvelja langdvölum frá börn-
um sínum og eiginmanni. „Ég
vann mjög mikið þegar ég var
yngri, en nú á ég tvö falleg börn
og mig langar að eyða tíma með
þeim. Þetta er líklega ekki það
besta fyrir frama minn en börn-
in set ég í forgang. Þegar ég var
við tökur á síðustu mynd minni
hugsaði ég: Nú er kominn baðtími
hjá krökkunum og ég er ekki við-
stödd. Og svo brast ég í grát.“
Börnin í
fyrsta sæti
VILL VERA HEIMA Gwyneth Paltrow seg-
ist vinna minna eftir að hún varð móðir.
NORDICPHOTOS/GETTY
Tónlistarmaðurinn Ólafur Arnalds
hefur fengið góða dóma erlend-
is fyrir sína nýjustu plötu, … and
they have escaped the weight of
darkness.
Breska tímaritið Uncut gefur
henni fjórar stjörnur af fimm
mögulegum þar sem tónlistinni er
lýst sem tímalausri og framúrskar-
andi góðri. Tónlistarsíðan Drowned
In Sound gefur plötunni 9 í einkunn
af 10 mögulegum. „Við getum náð
tengslum við hefðbundin lög með
því að hlusta á ákveðin erindi eða
texta en hérna er allt litrófið af til-
finningum og sumar þeirra eiga
uppruna sinn í hversdagsleikan-
um,“ segir í dómnum. Þýska síðan
Kulturnews.de gefur plötunni einn-
ig góða dóma, eða fjórar stjörnur af
sex mögulegum.
Tímalaus Ólafur
ÓLAFUR ARNALDS Tónlistarmaðurinn
fær góða dóma erlendis fyrir nýjustu
plötu sína. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Fótboltahetjurnar Didier Drogba og Florent
Malouda úr Chelsea hafa stofnað hljómsveit.
Malouda spilar á trommur en Drogba spilar á bassa
sem hann fékk gefins frá Wyclef Jean.
Malouda sagði í viðtali við breska fjölmiðla
að hann vildi að John Terry eða Joe Cole myndu
syngja. „Við erum rétt að byrja að reyna að gera
eitthvað sérstakt,“ sagði hann. Hljómsveitin Cold-
play veitir fótboltahetjunum innblástur, en Malouda
missti nánast vatnið þegar hann sá hana á Wembley.
„Tónleikarnir voru á meðal þeirra bestu sem ég hef
á ævi minni séð!“ sagði hann.
Hljómsveitin er ekki enn þá komin með nafn,
enda aðeins í startholunum. Fréttablaðinu er þó ljúft
og skylt að upplýsa þá, ef þeir eru að lesa þetta, að
nöfnin Blue Man Group, Grand Popo Football Club
og Football Studs eru öll frátekin. - afb
Chelsea-hetjur stofna hljómsveit
STILLA SAMAN STRENGI Didier Drogba og Florent Malouda
hafa stofnað hljómsveit og vonast til þess að John Terry eða
Joe Cole taki í hljóðnemann með þeim.