Fréttablaðið - 15.05.2010, Blaðsíða 2

Fréttablaðið - 15.05.2010, Blaðsíða 2
2 15. maí 2010 LAUGARDAGUR SPURNING DAGSINS LANDBÚNAÐUR Júlíus Már Baldursson, landnáms- hænsnabóndi á Tjörn í Vatnsnesi, hefur tekið fyrstu skrefin í að byggja upp stofninn sem hann glataði þegar á þriðja hundrað landnámshænsn drapst í eldsvoða 30. mars síðastliðinn. Tíu hanar komust af og nú hefur Júlíus bætt nokkrum pútum við. „Ég hef tekið að mér nokkrar pútur frá þremur einstaklingum sem þeir ætluðu að losa sig við. Ég tímdi ekki að láta þær falla. En þetta er bara sýnis- horn, nú bíð ég eftir að geta byrjað á fullu og komið stofninum í fyrra horf.“ Tjörn er ríkisjörð og bíður Júlíus nú eftir svör- um frá landbúnaðarráðuneytinu um hvort húsin sem brunnu verða endurreist eða hvort peningarn- ir verði notaðir til að gera upp eldri fjárhús á jörð- inni, sem gætu nýst fyrir hænurnar. „Ég vona að það verði skorið úr um það fljótlega,“ segir Júlíus. „Aðaláherslan núna er að laga skemmdirnar sem urðu á íbúðarhúsinu og endurreisa tengibygging- una við það. Það er búið að fjarlægja brunarústirn- ar og leggja möl yfir.“ Það eru því enn að minnsta kosti nokkurra vikna bið þar til fólk getur farið að panta landnámsegg og unga frá Tjörn í Vatnsnesi á nýjan leik. „En þegar þetta fer af stað af fullum krafti ætti þetta að ganga hratt fyrir sig.“ - bs Júlíus Már Baldursson landnámshænsnabóndi byggir stofninn upp eftir bruna: Kominn með nokkrar hænur JÚLÍUS Á TJÖRN Á þriðja hundrað fuglar drapst þegar stærsta landnámshænsnabú landsins brann til kaldra kola í lok mars. LÖGREGLUMÁL Sigurður Einars- son, fyrrverandi stjórnarformað- ur Kaupþings, hefur ráðið sér breska lögmanninn Ian Burton hjá lögmannsstofunni BCL Burt- on Copeland. Sigurður er eftirlýst- ur af alþjóðadeild Interpol vegna meintra brota í aðdraganda hruns- ins haustið 2008. Burton er þekktur verjandi í hvítflibbamálum og hefur komið að nokkrum af umfangsmestu fjár- svikamálum í Bretlandi. Á meðal þekktustu viðskiptavina hans eru Mike Ashley, eigandi breska knatt- spyrnuliðsins Newcastle, og söng- konan Amy Winehouse. Í apríl vann hann mál gegn breskum fjár- málayfirvöldum sem höfðu fryst eignir sex einstaklinga. Hann sagði í samtali við breska dagblaðið Telegraph í gær, Sigurð, sem hefur verið búsettur í Lund- únum í Bretlandi um nokkurra ára skeið, tilbúinn til að koma hing- að til lands í skýrslutöku vegna Kaupþingsmálsins að því tilskildu að hann verði ekki handtekinn við komuna líkt og fyrrverandi sam- starfsmenn hans í bankanum. Burton hefur unnið við hvít- flibbamál í fjóra áratugi og stofn- aði fyrstu lögmannsstofuna í eigin nafni árið 1975. Hjá BCL Burton Copeland starfa fimmtíu manns, þar af þrjátíu lögfræðingar. - jab SIGURÐUR EINARSSON Stjörnulög- fræðingurinn Ian Burton hefur mál fyrrverandi stjórnarformanns Kaupþings á sinni könnu. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON Fyrrverandi stjórnarformaður Kaupþings ræður sér breskan stjörnulögfræðing: Vann með Amy Winehouse Leifur, er verið að gera úlfalda úr mýflugu? „Já, en vonandi kemst hann í gegn- um nálaraugað.“ Öskufall hamlar flugi til Vestmannaeyja. Flugfélagið Mýflug, sem sér um sjúkraflug til Vestmannaeyja, hefur vél til reiðu sem þolir öskuna en fær ekki leyfi strax til að nota hana. Leifur Hallgrímsson er framkvæmdastjóri Mýflugs. LÖGREGLUMÁL Áhættustýring Kaup- þings, undir stjórn Steingríms P. Kárasonar, leyndi stjórn bankans upplýsingum um stórfellda eign bankans í sjálfum sér frá miðju ári 2007 og fram að falli hans. Þetta er eitt þeirra brota sem sérstakur saksóknari rannsakar nú og ligg- ur til grundvallar gæsluvarðhalds- og farbannsúrskurðum yfir Kaup- þingsmönnum. Steingrímur sætir nú farbanni líkt og Magnús Guðmundsson, fyrrverandi forstjóri Kaupþings í Lúxemborg, sem losnaði úr gæslu- varðhaldi í gær og var úrskurðað- ur í tveggja vikna farbann. Hreið- ar Már Sigurðsson, áður forstjóri bankans, og Ingólfur Helgason, áður forstjóri á Íslandi, sitja í gæsluvarðhaldi. Hæstiréttur stað- festi í gær varðhald yfir Ingólfi samhljóða. Deildir svokallaðra eigin við- skipta voru starfandi í stóru bönk- unum á Íslandi. Þær voru aðskild- ar frá öðrum deildum og sáu um að kaupa ýmis hlutabréf í nafni bankanna sjálfra í hagnað- arskyni. Fram hefur komið að sérstakur saksóknari rannsakar nú stórfelld uppkaup eigin viðskipta Kaupþings á bréfum í bankanum sjálfum, sem síðan hafi verið seld vildarvinum bankans gegn láni frá honum. Við- skiptin eru talin hafa verið gerð í þeim tilgangi að halda uppi verði hlutabréfa bankans og hafi valdið bankanum gríðarlegu fjártjóni. Fram kemur í gögnum frá sér- stökum saksóknara, sem Frétta- blaðið hefur séð, að áhættustýring bankans hafi á miðju ári 2007 hætt að tilgreina viðskipti með eigin hlutabréf í mánaðarlegum skýrsl- um til stjórnar bankans. Þannig hafi hlutabréfaeigninni, og tjóni bankans vegna þeirra viðskipta, verið leynt fyrir stjórninni. Þar segir jafnframt að Sigurð- ur Einarsson, fyrrverandi stjórn- arformaður bankans, Hreiðar Már, Ingólfur og Steingrímur hafi á tímabilinu 11. ágúst 2008 til 3. október 2008, sem var síðasti dagur viðskipta með bréf í bankan- um, fengið sendan tölvupóst dag- lega með ítarlegum upplýsingum um kaup eigin viðskipta á bréf- um í bankanum. Á þessum síðustu vikum fyrir hrun náðu þau við- skipti hámarki. Þetta setur sérstakur saksókn- ari í samhengi við hlutabréfaeign starfsmannanna í bankanum. Allir áttu þeir hluti í bankanum, Sigurð- ur fyrir um 8 milljarða, Hreiðar um 7 milljarða, Ingólfur um 3,7 milljarða og Steingrímur um einn og hálfan milljarð. Kaup þeirra voru að verulegu leyti fjármögn- uð með lánum frá bankanum. Sérstakur saksóknari telur að með þessu hafi stjórnendur gerst sekir um umboðssvik og markaðs- misnotkun. stigur@frettabladid.is kolbeinn@frettabladid.is Upplýsingum haldið frá stjórn í rúmt ár Áhættustýring Kaupþings hætti um mitt ár 2007 að upplýsa stjórn bankans um viðskipti hans með eigin bréf. Þau ollu bankanum stórtjóni. Viðskiptin náðu hámarki vikurnar fyrir hrun. Þá fengu æðstu stjórnendur póst um þau daglega. DÓMSMÁL Viktor Már Axelsson og Axel Karl Gíslason, sem sæta gæsluvarðhaldi vegna líkams- árásar í Reykjanesbæ voru með á sér öxi, hamar og hníf þegar þeir voru handteknir. Mennirnir réðust á eldri hjón og dóttur þeirra. Þeir kváðust þurfa að hitta barnabarn hjón- anna til að rukka það. Dóttirin var nýbúin að festa sex vikna barn sitt í bílstól þegar menn- irnir komu að. Hæstiréttur hefur staðfest að þeir skuli sæta gæsluvarðhaldi til 8. júní. - jss Hrottar áfram í fangelsi: Voru með öxi og hníf við árás INDÓNESÍA, AP Lögregluyfirvöld á Indónesíu segjast hafa komið í veg fyrir fjölda hryðjuverkaárása sem hryðjuverkahópur tengdur al-Kaída hafi skipulagt í landinu. Árásirnir áttu að hefjast með tilraun til að vega forsetann og helstu ráðamenn á þjóðhátíðar- degi landsins, 17. ágúst. Alls hafa 58 verið handteknir. Eftir árásina á ráðamenn átti að ráðast gegn útlendingum í landinu, og í kjölfarið gera Indón- esíu að íslömsku ríki þar sem farið væri eftir Sharia-lögum, segja löggæsluyfirvöld. Trúfrelsi er fest í stjórnarskrá Indónesíu. Rúmlega 85 prósent landsmanna, sem eru um 220 milljónir, eru múslimar. - bj Komið í veg fyrir hryðjuverk: Vildu stofna íslamskt ríki LÖGREGLA Á JAVA Lögreglumenn búast til inngöngu hjá grunuðum hryðjuverka- mönnum í Sukoharjo, á Java, í Indónes- íu, á fimmtudag. FRÉTTABLAÐIÐ/AP DÓMSMÁL Sigurður Kárason, sem grunaður er um að hafa svikið að minnsta kosti 300 milljónir króna út úr 90 manns og fyrirtækjum frá árinu 2007, notaði hluta fjár- ins frá nýjum fórnarlömbum til að koma í veg fyrir að aðrir kærðu hann til lögreglu. Þetta kemur fram í greinargerð Héraðsdóms Reykjavíkur. Hæsti- réttur hefur staðfest gæsluvarð- haldsúrskurð yfir Sigurði til 21. maí. Fram kemur að Sigurður hafi boðið fólki að ávaxta fé í gjaldeyr- is- eða hlutabréfaviðskiptum. - jss Framlengt á fjársvikara: Borgaði til að hindra kæru DÓMSMÁL Karlmaður sem starf- aði sem gjaldkeri og bókari og síðan aðalbókari hjá húsnæðis- samvinnufélaginu Búseta til 2009 hefur verið dæmdur fyrir fjár- svik. Hann skal, samkvæmt dómi Héraðsdóms Reykjavíkur, endur- greiða félaginu rúmlega 28 millj- ónir króna ásamt vöxtum. Upp komst um málið þegar endurskoðandi óskaði staðfest- ingar á að innistæða að upphæð rúmlega 36 milljónir væri fyrir hendi á bankareikningi félagsins. Aðalbókarinn sinnti beiðninni í engu, hætti að mæta til vinnu og svaraði engum skilaboðum. Hann reyndist hafa falsað yfirlit reikn- ingsins og rangfært bókhald til að fela fjárdráttinn. - jss Aðalbókari dæmdur: Dró sér rúmar 36 milljónir INGÓLFUR HELGASON SIGURÐUR EINARSSON STEINGRÍMUR P. KÁRASON HREIÐAR MÁR SIGURÐSSON DÓMSMÁL Magnús Guðmundsson, fyrrverandi forstjóri Kaupþings í Lúxemborg, er laus úr gæslu- varðhaldi. Ekki var farið fram á framlengingu þess, en hann úrskurðaður í tveggja vikna farbann. Magnús sendi frá sér yfir- lýsingu í gær. Þar segir hann gæsluvarðhald- ið sem hann sætti hafa verið óþarft og erfitt. Hann hafi starf- að í Lúxemborg undanfarin tólf ár en þau mál sem til rannsókn- ar eru beinist nær eingöngu að Kaupþingi á Íslandi. Þá hafi hann ætíð sýnt fullan samstarfsvilja. „Ég lýsi því yfir að ég mun sýna yfirvöldum fullan samstarfsvilja við að upplýsa málið, enda tel ég að þegar allt er fram komið muni sakleysi mitt verða staðfest.“ - kóp Magnús laus úr haldi: Í farbanni í tvær vikur MAGNÚS GUÐMUNDSSON
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.