Fréttablaðið - 15.05.2010, Qupperneq 10
10 15. maí 2010 LAUGARDAGUR
Þrír listar bjóða fram til
sveitarstjórnar í Vest-
mannaeyjum líkt og und-
anfarin ár. Ólíkt mörgum
öðrum sveitarfélögum snú-
ast bæjarmálin ekki fyrst
og síðast um varðstöðu í
fjármálum.
Það er mál manna að sveitar-
stjórnarkosningarnar í Vest-
mannaeyjum séu um margt sér-
stakar samanborið við landið í
heild sinni. Sveitarstjórnarmálin
þar hafa verið á skjön við lands-
málin og sveitarstjórnarmálin
víðast hvar með sjálfstæðismenn
haldandi um stjórnartaumanna í
krafti hreins meirihluta. Viðmæl-
endur Fréttablaðsins eru heilt yfir
sammála um að einhugur hafi ríkt
við stjórn bæjarfélagsins, þó tek-
ist hafi verið á og minnihlutinn
veitt aðhald þar sem það hefur
þurft.
Eitt virðast Vestmannaeying-
ar sammála um og það er að lítill
áhugi sé fyrir kosningunum í lok
mánaðarins. Lítið fari fyrir pólit-
ískri umræðu og erfitt eða ómögu-
legt sé að staðsetja átakalínur á
milli flokka og tilfinning viðmæl-
enda Fréttablaðsins er að þátttaka
verði lítil í kosningunum. Einn við-
mælandi taldi ástæðuna vera góða
fjárhagsstöðu bæjarins. Menn
væru heilt yfir sáttir við stjórn
bæjarmála og í því umhverfi sem
ríkjandi væri; kosningar innan
flestra sveitarfélaga snúist jú um
afleita stöðu vegna gríðarlegrar
skuldsetningar. Margir telja jafn-
vel fyrirséð að sjálfstæðismenn
haldi meirihluta sínum og verði
við stjórnvölinn líkt og síðustu
fjögur ár. Það verði uppskeran af
því að koma bæjarfélaginu fyrir
vind í fjármálum.
Eins og kunnugt er seldi Vest-
mannaeyjabær hlut sinn í Orku-
veitu Suðurnesja. Þeir fjármunir
voru nýttir til að gera upp óhag-
stæð lán en 2,5 milljarðar króna af
eldri skuldum voru greiddir upp á
kjörtímabilinu sem er að líða.
Mönnum er kjörtímabilið 2002
til 2006 ofarlega í huga þegar þrír
flokkar „nýttu allar hugsanleg-
ar útgáfur til að fara með stjórn
bæjarins“, eins og það er orðað.
Það virðist vera staða sem hræð-
ir Eyjamenn og eru þá dæmi frá
Reykjavík og minni sveitarfélög-
um á kjörtímabilinu sem er að
ljúka nefnd í samhengi.
Sjálfstæðisflokkurinn náði sögu-
legum árangri í sveitarstjórnar-
kosningunum árið 2006 með því að
ná hreinum meirihluta. Þeir bættu
við sig manni og fengu fjóra menn
kjörna. Fjórmenningarnir skipa
enn fjögur efstu sæti D-lista.
Vestmannaeyjalistinn er boð-
inn fram af Samfylkingu, Vinstri-
hreyfingunni - grænu framboði
og óháðum kjósendum. Listinn er
skipaður fólki úr ýmsum áttum,
bæði fólki sem hefur reynslu af
bæjarmálum en einnig nýju fólki
sem er að stíga sín fyrstu skref á
sviði bæjarmála. Gætt er að jafnri
skiptingu milli kynja auk þess sem
yngri kynslóðin á sína fulltrúa.
Því er spáð að listinn haldi sínu;
þremur mönnum af sjö og pólitískt
landslag haldist því að óbreytt.
Þriðji listinn í framboði til kosn-
inganna nú er listi Framsóknar-
flokks og óháðra. Framsókn klífur
sig út úr Vestmannaeyjalistan-
um eftir sameiginlegt framboð
í tveimur síðustu sveitarstjórn-
arkosningum. Ástæða þessara
vistaskipta virðist vera óánægja
grasrótarinnar með samkrullið
við Samfylkinguna og VG. Fleiri
en einn viðmælandi telja að sam-
starf undir Vestmannaeyjalistan-
um hafi staðið pólitískri umræðu
í Eyjum fyrir þrifum.
Það eru því þrír listar sem bjóða
fram líkt og 2006 en Frjálslyndir
hafa dregið sig í hlé. Er það gagn-
rýnt að bæjarmálafélag Frjáls-
lynda flokksins skuli hvetja fólk
til að hunsa kosningarnar, eins og
er gert í ályktun bæjarmálafélags-
ins. Ástæðan fyrir þessari áskor-
un er að flokkurinn telur sig hafa
orðið „vitni að vafasömum vinnu-
brögðum gömlu fjórflokkanna,
sem við vorum ekki og erum ekki
sátt við, því hvetjum við okkar fólk
og aðra sem styðja stefnu Frjáls-
lynda flokksins að hunsa þessar
kosningar með því að sitja heima
eða skila auðu“.
Af algengum málum eru allir
sammála um að vel hafi verið gert
í skólamálum og samgöngumálin
horfi til batnandi vegar með nýrri
höfn. Nefna menn að átak í mál-
efnum eldri borgara sé nærtækt
þó að bæjarfulltrúar minni á það
að töluvert hafi verið gert í þeim
málaflokki á undanförnum árum.
Niðurgreiðslur á fasteignagjöld-
um eldri borgara eru hlutfalls-
lega mjög háar í Vestmannaeyj-
um miðað við mörg sveitarfélög
af svipaðri stærð. Hins vegar er
samhljómur um að fjölga verði
búsetuúrræðum og auðvelda fólki
að komast úr stóru óhagstæðu hús-
næði í minna og hentugra. Þegar
hefur verið sett á fót þriggja ára
áætlun um þetta verkefni með
því að eyrnamerkja 100 milljónir
króna í þessum tilgangi.
Eftir fólksfækkun í sextán ár í
röð hefur fjölgað í röðum heima-
manna síðastliðin þrjú ár. Eyja-
menn eru almennt bjartsýnir á að
þessi þróun sé aðeins byrjunin á
einhverju stærra. Margir hafi látið
glepjast af tækifærum þenslunn-
ar og flutt búferlum þess vegna.
Þessi hópur mun snúa heim, er trú
Eyjamanna, þótt áhyggjuefnið sé
að ungt Eyjafólk sé fangi verð-
lausra eigna uppi á fastalandinu.
Atvinnumál vefjast ekki fyrir
Vestmannaeyingum. Allir sem
vilja vinna geta unnið er viðkvæð-
ið. Sjávarútvegurinn, sem er sem
fyrr undirstaða sveitarfélagsins,
getur þó ekki tekið endalaust við.
Tækifærin liggja víðar er mál
manna og er ferðaþjónusta oftast
nefnd.
Sterk staða verður varin
„Okkar sýn
kristallast í orð-
unum lýðræði
– samvinna
– gagnsæi,“
segir Sigurður
E. Vilhelms-
son, sem leiðir
lista Fram-
sóknarflokks
og óháðra. „Það sem við leggjum
áherslu á er að teknar verði upp
íbúakosningar í Vestmannaeyj-
um þar sem íbúar geti farið fram
á kosningar með því að safna
undirskriftum frá tilteknum fjölda
manna. Þetta ætti við um skipu-
lagsmál og framkvæmdir svo dæmi
sé tekið.“
Sigurður segir framboðið leggja
mikið upp úr virkri samvinnu innan
sveitarfélagsins. „Við viljum að
bærinn hafi meira frumkvæði að
samvinnu innan bæjarfélagsins og
á milli sveitarfélaga. Þar höfum við
sett fram hugmyndir um samvinnu-
sjóð. Vestmannaeyjabær stendur
vel fjárhagslega og við viljum
nýta hluta þess fjármagns til að
styrkja framkvæmdir einstaklinga
og félagasamtaka. Bærinn gæti þá
í gegnum samvinnusjóðinn veitt
framlag á móti öðrum styrkjum eftir
að verkefnin hefðu farið í gegnum
matsferli annarra sjóða. Við viljum
jafnframt að bærinn kanni mögu-
leika á að setja á fót samvinnufélag
til byggingar þjónustuíbúða fyrir
aldraða.“
Sigurður og hans fólk vill auka
gagnsæi innan stjórnsýslunnar í
Vestmannaeyjum. Til þess að það
megi verða skuli sett á fót embætti
umboðsmanns íbúa. „Sá yrði
tengill íbúa við kerfið. Viðkom-
andi væri starfsmaður bæjarins
en óháður stjórnkerfinu sem gæti
tekið við kvörtunum og erindum
frá íbúum og leiðbeint þeim. Eins
gæti umboðsmaður íbúa tekið á
móti fólki sem hingað flyst; upp-
frætt það um réttindi og skyldur
og auðveldað því að aðlagast
samfélaginu hér.“ Annað hlutverk
umboðsmanns íbúa væri að hafa
umsjón með að þróa íbúalýðræðið
og halda utan um íbúakosningar,
segir Sigurður, sem viðurkennir
að áherslur listans beri keim af
umræðu í samfélaginu að undan-
förnu. „Þetta er krafa samfélagsins
og við höfum séð hvert það leiðir
okkar að fámennir valdahópar ráða
ferðinni.“
Vilja beina þátttöku bæjarbúa
„Okkar kjörorð
er og hefur
verið friður og
framfarir. Við
höfum sem
minnihluti á
móti Sjálfstæð-
isflokknum
reynt að vinna
þannig að ná
einingu og samstarfi í sveitarfé-
laginu til að ná árangri,“ segir Páll
Scheving Ingvarsson, oddviti
Vestmannaeyjalistans. „Við höfum á
undanförnum árum byggt upp skól-
ana og endurskipulagt þá ásamt
því að byggja upp íþróttamannvirki.
En núna liggur fyrir að við verðum
að byggja upp öldrunarþjónustuna
og efla hana stórlega. Það er stórt
verkefni sem er fram undan og þarf
að vinna að af alefli.“
Páll segir að sveitarfélagið standi
vel fjárhagslega og því fylgi að
sjálfsögðu tækifæri. Ólíkt mörgum
öðrum sveitarfélögum liggi ekki
óhagstæð lán eins og mara á Vest-
mannaeyingum. Til séu sjóðir eftir
sölu eigna og rentur af þeim megi
nýta til að hlúa að fólkinu sem í
Eyjum býr og taka á móti þeim sem
vilja flytja aftur heim.
Páll nefnir sérstaklega að eitt
meginverkefni bæjaryfirvalda í
Vestmannaeyjum sé að nýta sem
best þá byltingu sem er að verða
í samgöngumálum Vestmanna-
eyinga. „Markaðssetning nýrrar
samgönguleiðar er eitt af stærri
tækifærum bæjarins. Við verðum
að nýta þau sem best. Við verðum
að virkja þessa samgönguleið og
markaðssetja Vestmannaeyjar. Við
verðum að efla viðburði og byggja
upp afþreyingartækifæri. Eyjarnar
eru náttúruperla en það dugir ekki
eitt og sér. Við verðum að byggja
upp aðstöðu fyrir ferðamenn og
búa okkur undir fjölgun gesta sem
er fyrirséð.“
Viljum ná árangri með samvinnu
SVEITARSTJÓRNAR-
KOSNINGAR 2010 Líkt og áður bjóða fram þrír listar í sveitarstjórnarkosningunum í Vestmannaeyjum.
„Þetta kjörtímabil hefur verið
hálfgerð rússíbanareið. Við förum
frá því að vera sveitarfélag sem átti
vart til hnífs og skeiðar yfir í það að
vera eitt best stæða sveitarfélag á
landinu auk þess sem fólksfækkun
heyrir fortíðinni til. En hér í Vest-
mannaeyjum, eins og annars staðar
á landinu, verða þessar kosningar að
snúast um rekstur sveitarfélagsins.
Umhverfið í landinu er með þeim hætti að þrátt fyrir að
staða okkar sé sterk í augnablikinu þá þarf lítið til að
við lendum í svipuðum vanda og er víðast hvar,“ segir
Elliði Vignisson, oddviti Sjálfstæðisflokks. „Kosningarnar
hér í Vestmannaeyjum, og þá skiptir ekki máli hver fær
umboðið, snúast um að verja okkar sterku stöðu.“
Elliði segir að á undanförnum árum hafi skuldir verið
greiddar niður fyrir 2,5 milljarða króna og lítið fram-
kvæmt á sama tíma, þrátt fyrir þenslu víða annars staðar.
„Hlutverk hins opinbera í hagstjórn er að framkvæma í
kreppu, sem við hyggjumst gera. Við höfum til þess burði
og munum gera það á næstu árum. En þó við getum
framkvæmt megum við illa við auknum rekstri.“
Elliði segir að ýmsar ógnir stafi að samfélagi eins og
Vestmannaeyjum. Sérstaklega beri þar að nefna fyrn-
ingarleið stjórnvalda og niðurskurð á heilbrigðisstofnun
Vestmannaeyja. „Það er ekki síður þessi vakt sem við
verðum að standa á næstu árum,“ segir Elliði og segir
það sveitarfélaganna að gæta hagsmuna íbúa sinna þó
að málaflokkurinn sé ekki á forræði sveitarstjórna. „Sveit-
arstjórnirnar eru brjóstvörn samfélaganna í öllum þeirra
hagsmunamálum.“
Kosningarnar snúast um að verja sterka stöðu Vestmannaeyja
Svavar
Hávarðsson
svavar@frettabladid.is
Verið öll
velkomin!
Vi
ns
tri
hr
ey
fin
gi
n
- g
ræ
nt
fr
am
bo
ð
vi
ll
be
ita
s
ér
fy
rir
ró
ttæ
ku
m
þ
jó
ðf
él
ag
su
m
bó
tu
m
a
lm
en
ni
ng
i t
il
hagsbóta, hefja vernd náttúru og umhverfis til vegs á Íslandi og treysta byggð um allt land. Hreyfingin er samstarfsvettvangur og baráttutæki þeirra, sem
vilja útrým
a kynjam
isrétti og tryggja jafnrétti, kvenfrelsi... // sjá m
eira á w
w
w
.vg.is/stefna/
Kosningaskrifstofa VG í Reykjavík I Suðurgata 10 I opið kl. 13-18 alla daga I sími 517 0723 I reykjavik@vg.is I www.vg.is
Græn Reykjavík
Málþing um umhverfi, skipulag og samgöngur í borginni
laugardaginn 15. maí kl 14-16, í Sjóminjasafninu
í Reykjavík að Grandagarði 8.
Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra
Kristín Þorleifsdóttir landslagsarkitekt
Sigrún Helga Lund frá samtökum um bíllausan lífstíl
Sóley Tómasdóttir stýrir fundi.