Fréttablaðið - 15.05.2010, Side 32
ÞAÐ HEITASTA Í ...
HÓTELUM, VEITINGASTÖÐUM, GRÆJUM, BÚÐUM, MÖRKUÐUM OG FERÐANÝJUNGUMMIÐBAUGUR
ferðalög kemur út mánaðarlega
með helgarblaði Fréttablaðsins.
Ritstjóri Anna Margrét Björnsson amb@frettabladid.is
Útlit Arnór Bogason og Kristín Agnarsdóttir
Forsíðumynd Hallur Karlsson af Friðriki Weisshappel
Pennar Júlía Margrét Alexandersdóttir, Kjartan
Ljósmyndir Fréttablaðið
Auglýsingar Benedikt Freyr Jónsson bfj@365.is
[ SÉRBLAÐ FRÉTTABLAÐSINS UM FERÐALÖG ]
ferðalög
MAÍ 2009 Póstkort frá Pétursborg
Valdís Thor myndar fegurð höfuð-
borgar Norður-Rússlands SÍÐA 6
Danskur sjónvarpsþáttur tekinn upp á
LAUNDROMAT CAFÉ
Íslendingar gera það gott í veitingabransanum í Köben
Rokkabillí og
pönk í Ósló
Ný hlið á nágrönnum
okkar
SÍÐA 10
2 FERÐALÖG
E
f þú ert að leita að afslöppuðu
fjölskyldufríi í sól og sumri
Frakklands þá er kjörið að
hafa augun opin fyrir öðrum
kostum en Suður-Frakklandi sem er
eins og mauraþúfa í júlí og ágúst. Hið
fræga vínhérað Bordeaux liggur í um
fjögurra tíma keyrslu frá París. Um sex-
tíu kílómetra frá borginni Bordeaux er
svo Le Bassin D‘ Arcachon, merkileg
strandlengja þar sem er að finna hæstu
sandöldur Evrópu. Sandurinn er svo
fíngerður og hvítur að það mætti halda
að maður væri staddur hinum megin á
hnettinum.
Í þessum litla flóa eru mörg skemmti-
leg þorp, meðal annars hið ótrúlega sjar-
merandi Cap Ferret þar sem er hægt að
leigja sér hús eða gista á hóteli. Í Cap
Ferret ríkir einstaklega afslappað and-
rúmsloft og er vinsæll áfangastaður hjá
„smart setti“ Frakklands. Þetta er ekta
fiskiþorp og mörg húsanna eru á stult-
um úti í sjónum, en þar er líka að finna
fjölmarga veitingastaði og skemmti-
legt næturlíf. Af nógu er að taka hvað
varðar afþreyingu í flóanum. Hægt er
að skella sér á brimbretti eða seglbát,
skoða ótrúlega fjölbreytt fuglalíf, heim-
sækja frægar vínekrur eða þá bara slaka
á í sólinni. Það þarf varla að taka það
fram að matar- og vínmenning héraðs-
ins er stórkostleg og kjörið að heimsækja
markaði á daginn og kaupa úrvals kjöt,
fisk og grænmeti í kvöldmatinn ásamt
vænni flösku af Bordeaux víni. Síðan en
ekki síst er skemmtilegt fyrir fjölskyld-
ur að klífa sandölduna le Dune du Pilat
og jafnvel renna sér aftur niður. - amb
HVÍTIR SANDAR
OG AFSLAPPAÐ ANDRÚMSLOFT
Í Bordeaux-héraði Frakklands er fl óinn Bassin D‘Arcachon sem er kjörinn sumarleyfi sstaður.
Hæsta sandalda Evrópu Í Arcachon er að finna náttúrufegurð og alls kyns afþreyingarmöguleika.
flugfelag.is
Netið
Þú færð alltaf
hagstæðasta verðið
á www.flugfelag.is
FJALLAVÖTN OG FAGRAR STRENDUR NORÐUR-ÍTALÍU
verða skoðaðar í júlíferð Ferðaskrifstofu Guðmundar Jónassonar. Flogið er til Mílanó 5. júlí og þaðan ekið
að Comovatninu og gist í borginni Lecco í þrjár nætur. Þá er ekið til Torino og borgin og nágrenni hennar
skoðað og svo gist á vínræktarsvæðinu Asti. Meðal annars verður farið í vínskoðun og keyrt til Genúa þar
sem gist er í þrjár nætur og dagsferð farin til „Landanna fimm“ − fimm ótrúlega fallegra smábæja á Ítalíu
sem eru á heimsminjaskrá Sameinuðu þjóðanna. Fararstjóri í ferðinni er Guðný Margrét Emilsdóttir og
flogið er heim 12. júlí. - jma
B
ráðum legg ég land undir fót í langþráð
sumarfrí með fjölskylduna enda sumarið
tími ferðalaga og ævintýra. Stanslausar
fréttir af öskufalli hafa ekki truflað okkur
mikið hingað til enda nóg annað að sýsla hjá upp-
teknu fólki en að stressa sig að óþörfu. Þar sem ég
hef yndi af ferðalögum þá reyni ég að passa að þau
gangi ætíð fyrir sig án þess að maður fari á hvolf á
síðustu stundu. „Stress-management“ hugtakið var
áreiðanlega ekki til þegar ég var lítil en aumingja
pabba mínum tókst alltaf að láta ferðalög verða gífur-
lega taugaveiklandi reynsla fyrir fjölskylduna. Allir
voru alltaf of seinir, fólk í biðröðum fór í hans fínustu
og allt varð að vera nákvæmlega á sínum stað og á
réttum tíma. Í dag þegar ég á tvö ung börn sjálf brosi
ég með sjálfri mér þegar ég lendi í svipuðum kring-
umstæðum og dreg andann djúpt. Auðvitað er margt
sem fer í taugarnar á manni þegar haldið er úr landi.
Flugvallarstarfsmenn, fólk að troðast inn í biðraðir,
grenjandi krakkar og seinkun á flugvélum auk fjölda
annarra pirrandi smáatriða. Hversu mörg pör hafið
þið eflaust séð rífast á flugvelli? En málið er bara að
stress gerir nákvæmlega ekkert til að hjálpa til.
Það er mikilvægt að reyna að muna alla þá spenn-
andi hluti sem maður á í vændum þegar maður kemur
á áfangastað og að því rólegri og yfirvegaðri sem
maður er því betra. Þegar ég ferðast með blessunar-
lega rólyndum unnusta mínum og lendi í einhverjum
fáránlegum ferðaaðstæðum þá er eina leiðin stund-
um bara að hlæja. Með þessu „zen“ hugarfari hef
ég komist í gegnum tólf tíma flugferð við hlið blind-
fullra og ælandi japanskra viðskiptamanna, staðið í
tveggja tíma biðröð með krakkana á Kastrup og dílað
við hundleiðinlegt innritunarfólk sem ætlaði að láta
mig tæma ferðatöskuna í litla plastpoka eða láta mig
borga tugi þúsunda í yfirvigt, án þess að missa kúlið.
Tvennt er vert að hafa í huga. Fyrst verður maður að
muna að ekkert ferðalag gengur streitulaust fyrir sig
þar sem alls kyns óvænt atvik geta komið upp. Að síð-
ustu er vert að hafa hugfast gott mottó, að hlutirnir
hafa alltaf tilhneigingu til að reddast.
Anna Margrét Björnsson skrifar
AÐ FERÐAST
STREITULAUST