Fréttablaðið - 15.05.2010, Page 37
Sölufulltrúar Henný Árnadóttir henny@365.is 512 5427 Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is 512 5447
KRABBAMEINSFÉLAG ÍSLANDS og Hönnunarmiðstöð Íslands efna til
samkeppni um hönnun á bleiku slaufunni 2010, tákni Krabbameinsfélagsins í
baráttu gegn krabbameini kvenna. Frestur til að skila inn tillögum er til 18. júní
2010 og tilkynnt verður um úrslit viku síðar. www.krabb.is
„Við kennarar og stjórnendur
Heilsumeistaraskólans leggjum
ríka áherslu á að vera lifandi dæmi
þess sem við boðum og sömu kröfu
gerum við til nemenda okkar sem
byrja námið á því að vinna í eigin
heilsu,“ segir Gitte Lassen sem
ætíð hefur heilsuna í fyrirrúmi.
Hún hyggst ganga á Esjuna með
syni sínum og bekknum hans í dag
en slaka á á morgun enda hreyfing
og hvíld mikilvæg fyrir heilsuna.
Eftir Esjugönguna liggur leið
Gitte á veitingastaðinn Gló þar
sem stendur til að kynna nýtt við-
urkennt nám í náttúrulækningum.
„Við erum að hefja fjórða starfsár-
ið okkar en námsskráin var viður-
kennd af menntamálaráðuneytinu í
nóvember á síðasta ári. Þetta mun
vonandi þýða að í framtíðinni geti
nemendur okkar fengið námslán
auk þess sem ég held að það skipti
fólk miklu máli að geta valið nám í
náttúrulækningum sem er opinber-
lega viðurkennt.“
Helstu námssvið Heilsumeistara-
skólans eru alþýðu-náttúrulækn-
ingar, grasalækningar og augn-
fræði. Námið er kennt sem lotunám
og stendur kennslan að jafnaði yfir
í fjóra daga, annan hvern mánuð í
þrjú ár. Námið er skilgreint sem
86 eininga sérnám í heildrænum
meðferðum og segir Gitte fólk geta
nýtt það með ýmsum hætti. „Sumir
kjósa að starfa við þetta eða að
fara í frekara sérnám en auk þess
er talsvert um að fólk leggi stund
á þetta nám eingöngu í eigin þágu.
„Það eru sífellt fleiri sem vilja taka
ábyrgð á eigin heilsu en vita ekki
alveg hvernig á að bera sig að. Upp-
lýsingarnar liggja víða en hjá okkur
eru þær á einum stað.“
Kynningin hefst í dag klukkan
tvö og verður farið yfir námið og
ýmis praktísk atriði og fólki gefst
kostur á að sjá kennara og stjórn-
endur skólans. Þá mun einn nem-
enda skólans segja álit sitt á nám-
inu. Nánari upplýsingar eru á www.
heilsumeistaraskolinn.com
vera@frettabladid.is
Vill vera lifandi dæmi
þess sem hún boðar
Gitte Lassen, annar skólastjóri Heilsumeistaraskólans, bregður ekki út af vananum þessa helgi frekar en
aðrar og hefur heilsuna í fyrirrúmi. Hún ætlar á Esjuna í dag en gætir þess að slaka á á morgun.
Gitte segir sífellt fleiri vilja taka ábyrgð á eigin heilsu og að sumir leggi stund á nám í náttúrulækningum eingöngu í eigin þágu.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Patti.is
Landsins mesta úrval af sófasettum
Dugguvogi 2 / s: 557 9510 / www.patti.is
Opið : Mánud. - Föstud. frá 9 til 18 og Laugard. frá 11 til 16
kynnum nýju línuna
Kynn
ingar
tilboð
Horn
sófi 2
H2
Láttu þér líða vel í sófa frá Patta
257.3
10 kr
Rí 2
H2
Verð
frá
afsláttur út maí%10