Fréttablaðið - 15.05.2010, Qupperneq 39
LAUGARDAGUR 15. maí 2010 3
„Við ákváðum að slá upp hátíð í til-
efni af því að Tilraunalandið er að
flytja út og verður utandyra fram
í september,“ segir Ilmur Dögg
Gísladóttir, kynningarfulltrúi
Norræna hússins, sem stendur
fyrir Vatnsmýrarhátíð í dag milli
klukkan 14 og 16. Hátíðina setur
frú Vigdís Finnbogadóttir og er
ljóst að þar geta bæði börn og full-
orðnir haft af ýmsu gaman.
Að sögn Ilmar ættu flest börn á
höfuðborgarsvæðinu að kannast
við Tilraunalandið sem var opnað
9. apríl síðastliðinn. Tilraunaland-
ið er til húsa í bráðabirgðaskála
við Norræna húsið, en um 300 börn
hafa komið þangað daglega til að
spreyta sig á ýmsum þrautum. „Nú
dreifir sýningin úr sér og verður
úti á túni líka. Þar verða þrautir í
stórum stærðum og vísindi kynnt í
gegnum leik og gagnvirkni,“ segir
Ilmur Dögg.
Í dag verður einnig vígður all
sérstæður sandkassi með sex
metra hárri yfirbyggingu. „Þar
verður skemmtilegt fyrir krakka
að leika sér en í sandkassanum
verða skóflur og annað skemmti-
legt dót,“ upplýsir Ilmur en mikil
upplifun er að sitja í sandkassan-
um undir heljarmiklu þaki og við
tjörnina þar sem gæsirnar synda
og kvaka.
Hinn sérstaka sandkassa
fékk Norræna húsið að gjöf frá
Staf angri í Noregi. „Hann var
hannaður af Happy Space-teikni-
stofunni í Svíþjóð og var fyrst
settur upp þegar Stafangur var
menningarborg Evrópu,“ upplýs-
ir Ilmur Dögg. Sandkassinn er án
efa stærsti manngerði sandkass-
inn á höfuðborgarsvæðinu og er
jafnframt listrænn skúlptúr sem
þjónar í senn hlutverki sólúrs og
vita. „Við köllum hann hreiðrið í
enda passar það vel við barnadag-
skrána okkar í ár sem kallast Fjör-
egg,“ segir Ilmur Dögg
Margt fleira verður á seyði á
Vatnsmýrarhátíðinni. Trúðar úr
leikritinu Bláa gullinu bregða á
leik, Blikandi stjörnur taka lagið
og lúðrasveitin Svanur spilar. Þá
stýrir Mads Holm, kynningar-
fulltrúi fyrir nýnorræna matar-
gerð, bragðtilraunum í gróðurhús-
inu á staðnum en þeir sem mæta
snemma fá einnig að bragða á
bragðgóðu hollustugóðgæti.
solveig@frettabladid.is
Mokað í listrænum sandkassa í Vatnsmýri
Hjálpa þú okkur að
leggja Umhyggju lið
Með því að kaupa Disney vöru frá NUK
styður þú um leið gott málefni.
10% af andvirði vörunnar rennur til Umhyggju,
félags langveikra barna á Íslandi.
* The bottles of the Disney Edition are from the NUK FIRST CHOICE System,
which is recommended by experts for times when breastfeeding is either not
possible or is combined with bottle-feeding. Source: Studies undertaken by an
independent market research institute NUK is a registered trademark owned
by MAPA GmbH/Germany · www.nuk.com
©
D
is
ne
y
Ba
se
d
on
th
e
„W
in
ni
e
th
e
Po
oh
“
w
or
ks
b
y
A
.A
. M
iln
e
an
d
E.
H
. S
he
pa
rd
.
Sandkassinn við Norræna húsið til vinstri og Tilraunalandið til hægri. Líf og fjör verður bæði úti og inni á Vatnsmýrarhátíðinni í
dag milli 14 og 16. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Sandkassinn er listrænn skúlptúr sem settur var upp fyrst í Stafangri þegar hún var
menningarborg Evrópu.
Vatnsmýrarhátíð verður sett í dag klukkan 14 við Norræna húsið af
frú Vigdísi Finnbogadóttur. Hátíðin, sem stendur til klukkan 16, er
helguð vísindum og leik, umhverfi og náttúru, börnum landsins og
barnamenningu.