Fréttablaðið - 22.05.2010, Blaðsíða 30

Fréttablaðið - 22.05.2010, Blaðsíða 30
30 22. maí 2010 LAUGARDAGUR Þ að eina sem virðist erfitt að koma inn hjá fólki er það að þetta er frítt,“ segir Kristján Gunnarsson, markaðsstjóri Gogoyoko, um leið og hann kemur með rjúkandi heitt espresso. Þeir Pétur Einarsson sitja á líflegri og opinni skrifstofu í Mörkinni þar sem fyr- irtækið á sér aðsetur. Málverk eftir Hafstein Mikael Guðmundsson, málara og listrænan stjórnanda Gogoyoko, prýða veggina og í eld- húsinu er meira að segja að finna „fussball“ spil. Augljóst er að sköpun og vinnugleði er í fyrirrúmi hjá þessu framsækna fyrirtæki sem var stofnað í lok örlagaársins 2007 af tónlistarmönnunum Hauki Magnússyni og Pétri Einarssyni. Tilgangur þeirra félaga var að búa til nýjan vettvang fyrir tónlist- armenn til að koma tónlist sinni á framfæri á alþjóðavettvangi en að hafa jafnframt tekj- ur af verkum sínum sem hefur reynst fólki innan geirans þrautaganga. „Munurinn á Gogoyoko og öðrum miðl- um eins og til dæmis tónlist.is er sá að það kostar ekkert að hlusta,“ útskýrir Kristján. „Það er hægt að hlusta á alla tónlistina sem er inni á gogoyoko endalaust og algerlega frítt. Þarna eru ekki bútar af lögum heldur heil lög og heilar plötur til að hlusta á án end- urgjalds.“ Pétur bætir við að fólk sé stund- um tortryggið vegna þess hve mikið af ólög- legum slíkum þjónustum eru á netinu. „Það verður þó að hafa hugfast að það eru um 400 löglegar tónlistarveitur á netinu. Það eru auglýsendur okkar sem greiða fyrir það að fólk getur hlustað á tónlist ókeypis á Gogoy- oko, alveg eins og auglýsendur greiða fyrir efnið í Fréttablaðinu. Þú þarft ekki að borga neina áskrift hjá okkur eins og hjá mörg- um öðrum miðlum til að fá þessa þjónustu.“ Tónlistarfólk þarf sjálft ekki að borga neitt fyrir að setja tónlist sína inn á Gogoyoko né tekur Gogoyoko hluta af sölu ágóða þeirra. „Allur ágóði af tónlistinni sem þeir selja hjá okkur fer til þeirra beint,“ segir Kristján. „Það er bara ekki sanngjarnt að taka hluta af ágóðanum ef það er tónlistarmaðurinn sem vinnur alla vinnuna, eini kostnaðurinn fyrir tónlistarfólk er smástund til að búa til sinn eigin „prófíl“ og hlaða tónlistinni sinni inn. Við leggjum mikið upp úr samstarfi við góðgerðarstarfsemi og ef tónlistarmenn vilja gefa hluta af tekjum sínum til samtaka sem við erum í samstarfi við, eins og til dæmis Unicef, þá geta þeir það, en þeir þurfa þess alls ekki.“ Ný tónlistarbúð opnuð „Auk ókeypis tónlistarstreymis á Gogoyoko er svo tónlistarbúð þar sem þú getur keypt þér allt þetta gífurlega úrval af tónlist að vild. Þú borgar fyrir tónlistina ef þú vilt verðlauna listamanninn fyrir góða upplifun og vilt eiga hana í tölvunni, setja hana í sím- ann eða á MP3-spilarann,“ segir Kristján. Stóru fréttirnar eru einmitt þær að nú um helgina verður opnuð splunkuný tónlistarbúð á netinu í stað þeirrar sem verið hefur uppi undanfarið ár. „Búðin sem við vorum með í gangi var dálítið eins og vöruskemma eða vörulisti en nú er sumsé komin upp alvöru búð. Í upphafi lögðum við höfuðáherslu á að gera skráningarferli og upplifun tónlistar- mannanna sjálfra sem besta. Því hefur upp- lifun notenda sem eru að leita sér að tónlist á Gogoyoko ekki verið megináhersla í þróun vefsins fyrr en nú. Á Gogoyoko geta sumsé tónlistarunnendur nú fengið sömu upplif- un og í góðri tónlistarverslun.“ Pétur bætir við að að þetta sé í raun mjög lógísk for- gangsröðun. „Við viljum að fólk læri að elska gogoyoko vegna tónlistarinnar sem þar er að finna, fyrst og fremst. Því vildum við tryggja að sem flestir tónlistarmenn myndu vilja setja tónlistina sina inn hjá okkur með því að gera vel við þá í byrjun. Ef við fáum ekki tónlistina inn þá kemur fólk auðvitað ekki inn á síðuna okkar.“ En hver er megin breytingin á tónlistarbúðinni? „Breytingin fyrir notendur er fyrst og fremst sú að þarna er komin búðarupplifun. Við erum með gríð- arlega öfluga leit og sérstök kynningarsvæði fyrir hvern geira tónlistar,“ útskýrir Kristj- án. „Til dæmis er kominn búðarfrontur fyrir djass, fyrir klassíska tónlist, popptónlist, rokk og svo framvegis. Við erum með yfir tuttugu ólíka geira og innan hvers geira er svo vinsældalisti þar sem hlustendur geta skoðað hvað er vinsælast hverju sinni. Svo erum við að kynna tónlist sem er á góðu eða lækkuðu verði, og önnur nýjung er það sem við köllum „Golden Oldies“ þar sem þú finn- ur gamla tónlist sem er allt frá djassi upp í Elvis Presley og jafnvel Cliff Richard.“ Lögðum mikið í undirbúninginn Annar skemmtilegur kostur fyrir tónlistar- fólk er að það getur valið markhóp sinn eftir löndum. „Hver tónlistarmaður getur ákveðið hvert hann vill beina sjónum sínum og hvar hann vill selja tónlistina sína. Þetta er liður í því prinsippi okkar að veita tónlistarfólki fullkomna stjórn.“ Önnur nýjung er einnig að hægt er að leita eftir plötufyrirtækjum og plötufyrirtæki verða með eigin síður innan Gogoyoko þeim að kostnaðarlausu. „Fólk elskar líka tónlist sem er gefin út af plötu- fyrirtækjum, við viljum líka gera vel við þau og hafa tónlist frá hefðbundnum útgáfum þarna inni.“ Gogoyoko er nú opið notendum í öllum norrænu löndunum: Íslandi, Græn- landi, Finnlandi, Færeyjum, Noregi, Svíþjóð og Danmörku en í haust stefnir fyrirtækið á frekari sókn og opnar fyrir notendum í Bretlandi og Kanada hinn fyrsta septemb- er. „Ástæða þess að við opnum þetta hægt og sígandi er sú að við viljum gera hlutina vel og vandlega frá byrjun og leggja mikið í undirbúninginn.“ Markaðurinn er harður en liðsmenn Gogoyoko eru bjartsýnir. „Við höfum fulla trú á því sem við erum að gera og erum fyrirtæki með prinsippin í lagi. Fólk er alltaf að velta fyrir sér hver framtíð tón- listar verður með tilkomu netsins. Svarið okkar er að framtíðin er Gogoyoko.“ Framtíðin er Gogoyoko Sprotafyrirtækið Gogoyoko er dæmi um blómstrandi íslenskt hugvit en fyrirtækið er vettvangur fyrir tónlistarfólk til að selja tónlist sína og koma sér á framfæri á netinu. Í dag opnar fyrirtækið nýja og glæsilega tónlistarbúð þar sem tónlistarmenn fá allar tekjur sjálfir af verkum sínum. Anna Margrét Björnsson fékk sér kaffibolla með þeim Pétri Einarssyni og Kristjáni Gunnars- syni og fékk að heyra meira. VILJUM AÐ FÓLK LÆRI AÐ ELSKA GOGOYOKO VEGNA TÓNLISTARINNAR SEM ÞAR ER AÐ FINNA Pétur Einars- son, Kristján Gunnarsson og Helgi Már Bjarnason hjá fyrirtækinu Gogoyoko. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON Allt gert fyrir upplifun notenda ■ Hver tónlistarstefna fær sitt heimasvæði. ■ Plötuútgáfur fá sérsíður fyrir sína útgáfur. ■ Leitin verður betrumbætt svo um munar og verður gríðarlega öflug. ■ Auglýsingasala hefst með tilkomu nýju búðarinnar. ➜ LISTAMENN UM GOGOYOKO: Gogoyoko færir saman skapandi fólk „Ég setti saman verkefnið The Flaming Banshees með skoskum vini mínum Ian fyrir nokkrum árum síðan í Þýskalandi,“ segir tónlistarmaðurinn Duncan McKnight sem einnig er þekktur sem söngvari hljómsveitarinnar The Virgin Tongues. Duncan, sem hefur verið búsett- ur hér á landi eftir að hafa orðið fyrir alvarlegu slysi rétt fyrir tónleika sveitarinnar í fyrravor segist hafa kynnst fólki innan fyrirtækisins sem hafi verið honum ein- staklega hjálplegt. „ Þeim fannst tónlistin mín nógu góð til að hjálpa mér að koma henni á framfæri og bentu mér meðal annars á að selja hana á Gogoyoko.“ Tónlist The Flaming Banshees hefur notið mikilla vinsælda á Gogoyoko. „ Upphaf plötunnar má rekja til þess að við Ian unnum á leikskóla við enskukennslu og tónlistarkennslu. Við tókum hana upp á einum mánuði í íbúðinni okkar í Berlín.“ Duncan telur að Gogoyoko sé góðar fréttir fyrir tónlistarfólk. „ Síðan færir saman skapandi fólk. Við getum hlustað á tónlistina þeirra og þeir á okkar. Þetta er eins og fréttaveita innan tónlist- argeirans.“ Nenni ekki að styrkja Apple „Það sem er heila málið við Gogoyoko er að maður hendir drasl- inu sínu þarna inn og fær böns af seðlum og styrkir góðgerðar- starfsemi í leiðinni,“ segir Pétur Eyvindsson sem er betur þekktur undir nafninu DJ Music- ian. Hann er búsettur í Danmörku þessa stundina og segist eyða tíma sínum aðalega í að drekka heitan bjór með rjóma sem er það alheitasta í Kaupmanna- höfn um þessar mundir. Aðspurður um álit sitt á Gogoyoko segir hann, „ Það er betra en að styrkja Apple eða I Tunes eða hvað þetta nú heitir, ekki nenni ég því.“ Pétur segir að síðan þurfi einmitt að ná meira til almennra notenda en hún hefur gert. „ En þeta módel þeirra geir tónlistar- mönnum kleift að koma tónlist sinni á framfæri til tónlistarunn- enda mun ódýrara en allstaðar annarsstaðar.“ Gott að hafa stjórn á þessu sjálfur Daninn Mads Kjar Pederson er í hljómsveitinni Alloy Alloy sem hafa trónað á toppi Gogoyoko vinsældarlistans undanfarnar vikur. „ Við höfum spilað saman í um tvö ár og gerum einhvers- konar elektrónískt popp, hressa danstónlist fyrir næturklúbba.“ Mads segir að hann sé afar hrifinn af valdinu sem Gogoyoko færir tónlistarfólkinu sjálfu. „ Það er mjög mikilvægt fyrir mig sem listamann að geta stjórn- að því sem ég læt frá mér. Gogoyoko fjarlægir alla teng- iliði. Það er frábært að geta dílað beint við Gogoyoko án þess að þurfa að fara í gegnum önnur fyrirtæki til að selja tón- listina þína eins og til dæmis á I tunes þar sem þeir hafa næstum allan peninginn af þér. Auk þess hef ég miklu beinna og betra samband við fólkið sem er að hlusta á tónlistina mína en það getur sent mér póst beint á Gogoyoko síðuna mína.“ Mads bætir við að hann hafi hreinlega bara svo góða tilfinningu fyrir fyrirtækinu. „Það er eitthvað svo hreint og beint við þetta konsept. Manni líður eins og maður sé hluti af stórri fjölskyldu en ekki að það sé bara einhver að reyna að græða á manni. Það er einhver skandinavískur fílingur við fyrirtækið sem ég fíla og auk þess er ég hrifinn af allri hönnun vefsins og „artworki“ sem mér finnst töff.“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.