Fréttablaðið - 22.05.2010, Blaðsíða 80
48 22. maí 2010 LAUGARDAGUR
folk@frettabladid.is
Tvöfaldur, tveggja tíma langur lokaþátt-
ur af Lost verður sýndur í Bandaríkjun-
um annað kvöld. Þá fá spenntir sjónvarps-
áhorfendur loksins úr því skorið hvernig
ævintýrið á eyjunni dularfullu endar.
Bretar sjá þáttinn á mánudaginn, á
sama tíma og vesturstrandarbúar Banda-
ríkjanna. Þátturinn verður einnig sýnd-
ur á sama tíma á Ítalíu, Spáni, Portúgal,
Ísrael, Tyrklandi og Kanada. Hér heima
verður lokaþátturinn tvöfaldi sýndur 30.
ágúst í Sjónvarpinu, enda hóf þessi sjötta
sería göngu sína hérlendis þremur mán-
uðum síðar en í Bandaríkjunum. Íslenskir
Lost-aðdáendur verða því að bíða enn um
sinn eftir endalokunum.
Alls hefur 121 Lost-þáttur verið sýnd-
ur í Bandaríkjunum og víðar síðan hann
hóf göngu sína 2005. Þátturinn fjallar um
hóp fólks sem kemst lífs af úr flugslysi
eftir að hafa brotlent á eyðieyju. Marg-
ir undarlegir atburðir gerast í framhaldi
af því.
Þegar Lost var hvað vinsælast horfðu
yfir tuttugu milljónir manna á þáttinn
í Bandaríkjunum í viku hverri. Sú tala
hefur lækkað í tólf milljónir eftir því
sem þáttaröðin hefur dregist á langinn.
Handritshöfundarnir Damon Lindelof
og Charlton Cuse tilkynntu fyrir þremur
árum að Lost myndi ljúka göngu sinni í ár
og þannig höfðu þeir fastmótaðan tíma-
ramma til að svara eins mörgum spurn-
ingum og mögulegt er.
Lokaþáttur Lost annað kvöld
LOST Tvöfaldur lokaþáttur af Lost verður sýndur
í Bandaríkjunum á sunnudagskvöld.
> GAGA BRJÁLAÐIST
Söngkonan Lady Gaga hefur rekið
öryggisverði sína eftir að aðdá-
andi komst óáreittur upp á svið á
tónleikum hennar í Japan. Gaga
var ekki hætt því hún rak einn-
ig aðstoðarmann sinn í búninga-
málum fyrir að gleyma að læsa
búningsherberginu hennar.
Golfkylfingurinn Tiger
Woods er að sögn vefsíð-
unnar RadarOnline kominn
aftur á markaðinn. Hann
sást nýverið í fylgd með
ókunnugri, ljóshærðri konu.
Tiger Woods og eiginkona hans,
hin sænska Elin Nordegren, hafa
ákveðið að skilja að skiptum eftir
að upp komst um fjöldamarg-
ar hjákonur kylfingsins. Tímarit
fluttu fyrst fréttir af framhjáhaldi
Woods í nóvember síðastliðinn en
hjónin hafa búið hvort í sínu hús-
inu upp frá því og býr Nordegren
í leiguhúsnæði skammt frá
fyrrverandi heimili þeirra
hjóna.
Nýverið sást til Woods
þar sem hann spígspor-
aði um golfvöll í grennd
við heimili sitt í félags-
skap ungrar, ljóshærð-
ar konu. „Tiger var að
leika golf á vellinum
við heimili sitt. Með
honum var mjög
falleg, ljóshærð
kona og svipaði
henni mjög
til Elínar í útliti. Hún sat í golf-
bílnum á meðan hann tók nokkr-
ar holur en þau virtust skemmta
sér mjög vel saman,“ sagði sjónar-
vottur. „Þau sátu og spjölluðu lengi
saman og virtust njóta félagsskap-
ar hvort annars. Af þessu að dæma
virðist hann ekki vera hamingju-
samlega giftur Elinu lengur, það
er fyrir víst,“ sagði sjónvarvott-
urinn.
Vefsíðan RadarOnline greindi
einnig frá því að Woods sækti
skemmtistaði í auknum mæli og
hefur nokkrum sinnum sést til
hans á öldurhúsum í Orlando.
„Hann er sérstaklega hrifinn af
stað sem heitir Embers.
Svo virðist sem hann
hafi óbeit á því að vera
einn heima hjá sér,“
hafði tímaritið eftir
einum kráareig-
anda.
Kominn á veiðar
KOMINN Á MARKAÐINN Tiger Woods sást leika golf með ljóshærða konu sér við
hlið. Þótti mönnum hún líkjast Elinu nokkuð í útliti.
ELIN NORDEGREN
Hún hefur ákveðið að
slíta samvistum við
Tiger Woods. Tiger
á að vera kominn
á kvennafar á
ný samkvæmt
bandarísku press-
unni.
VITA er lífið
Alicante
VITA | Skútuvogi 13a | Sími 570 4444 | VITA.is
Kynntu þér ferðamöguleikana og
skráðu þig í netklúbbinn á VITA.is
Flugsæti
Verð frá 65.430 kr.
16.-30. júní