Fréttablaðið - 22.05.2010, Blaðsíða 34

Fréttablaðið - 22.05.2010, Blaðsíða 34
2 matur MELABÚÐIN - ÞÍN VERSLUN KOLIN KYNT Á ÖRSKOTSSTUNDU Sólveig Gísladóttir SKÝRINGAR Á UPPSKRIFTATÁKNUM: matur kemur út mánaðarlega með laugardagsblaði Fréttablaðsins. Ritstjórn: Roald Eyvindsson og Sólveig Gísladóttir Hönnun: Silja Ástþórsdóttir Forsíðumynd: Valgarður Gíslason Pennar: Kjartan Guðmundsson, Marta María Friðriksdóttir, Vera Einars dóttir og Þórdís Lilja Gunnarsdóttir Ljósmyndir: Fréttablaðið Auglýsingar: Bjarni Þór Sigurðsson bjarnithor@365.is Æskuminningar um kolagrill tengjast gleði, samverustundum fjölskyldunnar, sumarbústað og tjaldútilegum. Þær minna mig sérstaklega á föður minn ungan og hárprúðan stumra yfir völtu kolagrilli, einbeittan á svip að reyna að koma glóð í kolin með ýmsu móti. Ekki fannst mér það alltaf ganga vel og hungurverkir barnsins hafa líklega gert það að verkum að tíminn hefur liðið hægar en ella. Maturinn smakkaðist þó aldrei betur en af grillinu og ekki var gerð athugasemd þótt lærissneiðarnar líktust stundum heldur kolamol- um en kjöti, það bara tilheyrði. Svo rann í garð tími gasgrilla. Þau voru vissu- lega mun þægilegri í notkun, eldamennsk- an gekk hraðar fyrir sig og kjötið brann ekki við eins og það vildi áður gera. Hins vegar fór einhver sjarmi af grill- inu. Hin frumstæða þörf mannsins til að kveikja eld vék fyrir gaskút og einum rauðum takka. Þó eru sumir sem enn halda í gamla kola- grillið. Einn þeirra er tengdapabbi. Hann grillar allan ársins hring og í hvaða veðri sem er. Hvort sem ríkir kafaldsbylur, sumar- ylur eða rigningardemba, alltaf skal kveikt í grillinu góða. Hann hefur enda þróað all sérstæðar aðferðir við það að kveikja í kol- unum sem gerir það að verkum að það tekur hann ekki lengri tíma en aðra að kveikja upp í gasgrilli. Aðferðin felst í því að nota gasloga í verkið. Það er magnað að sjá hinn stæðilega mann kveikja upp í gasloga og beina bláum loganum að kol- unum sem á örskotsstundu verða öskugrá og tilbúin til eldamennsku. Þetta kallast íslenskt hugvit. Hafa þarf í huga að það þarf að læra að grilla grænmeti, alveg eins og það þarf að læra á kjötið,“ segir hráfæðis- og heilsukokkurinn Sólveig Eiríks- dóttir á veitingastaðnum Gló í List- húsinu í Laugardal. Hún tekur fram að það taki sinn tíma að grilla grænmetið og gott sé að leggja það í góða mariner- ingu áður en það er sett á grillið. „Í þessu tilfelli eru eggaldin og kúrbítur til dæmis alveg upplagt grænmeti og fyrirtaks meðlæti með öllum mat,“ segir Sólveig. - kg GRÆNT Á GRILLIÐ Heilsukokkurinn Sólveig Eiríksdóttir á veitingastaðnum Gló segir grillað grænmeti lostæti, en þó þurfi að læra að grilla það. Marineringin skipti líka miklu máli. Sólveg Eiríksdóttir, hráfæðis- og heilsu- kokkur á veitingastaðnum Gló. ½ kúrbítur, skorinn í þunnar sneiðar ½ eggaldin, skorið í mjög þunnar sneiðar 1 rauð paprika, skor- in í tvennt, stein- hreinsuð, og síðan er hver helmingur skorinn í fernt nokkrir kirsuberja- tómatar sem skraut Skerið grænmetið í sneiðar og leggið í marineringu í 1-2 klst. Sigtið grænmetið áður en það er grill- að.Grillið grænmet- ið báðum megin og raðið því síðan upp í turn: 1 sneið eggaldin 1 sneið kúrbítur 1 sneið paprika endurtekið Endið á að setja hálfan kirsuberja- tómat ofan á turn- inn og berið fram með grænu salati og grill sósu. MARINERING FYRIR GRÆNMETI ½ dl tamarisósa ½ dl appelsínusafi 2 msk. lífræn ólívu- olía 1 msk. ristuð sesam- olía 2 msk. agavesýróp 1 msk. sítrónu/lím- ónusafi 2 msk. ferskar kryddjurtir að eigin vali GRILLSÓSA Á GRÆNMETI 1 dl kasjúhnetur, lagðar í bleyti í um 2 klst. (það er í lagi að hafa það minna og líka meira) 1 hvítlauksrif 1 tsk. þurrkað dill eða 2 msk. ferskt 1 tsk. ítölsk krydd- blanda eða 2 msk. fersk 1 tsk. laukduft ¾ tsk. salt 2 msk. nýkreistur sítrónusafi ½ dl vatn (smá meira ef ykkur finnst þurfa) Hellið vatninu af kasjú- hnetunum og setjið þær í blandara ásamt restinni af uppskrift- inni. Blandið þar til allt er silkimjúkt. Geymist í viku í loftþéttu íláti í ísskápnum. GRILLAÐUR GRÆNMETISTURN Grillað grænmeti er gómsætt á góðum sumardögum að mati Sólveigar. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /S TE FÁ N FR ÉT TA B LA Ð IÐ /S TE FÁ N „Við veitum alla þjónustu hvað við- kemur mat og hvort heldur sem til- efnið er hversdags- eða hátíðarlegt,“ segir Pétur Alan Guðmundsson, kaup- maður í Melabúðinni – Þinni versl- un, sem hefur verið rekin í hálfa öld við Hagamel í vesturbæ Reykjavík- ur. Hann getur þess að nú sé grilltím- inn upp runninn og því séu hamborg- arar, nautakjöt, silungur, villtur lax og fleira vinsælt til innkaupa. „Þetta er hráefni frá öllum heimshornum en þeir sem vilja ekki kjöt eða bara bregða út af vana ættu að prófa græn- metisbuffin okkar sem eru bæði ein- staklega holl og góð.“ Pétur bætir við að innan skamms verði sérstak- ar grillsósur á boðstólum í búðinni en þar sé nú þegar hægt að nálgast upp- skriftir að nokkrum góðum sósum. Lostæti við ólík tækifæri FR ÉT TA B LA Ð IÐ /G VA A Aðal-réttur Hvunndags/til hátíðabrigða Hollt Fiskur E Eftir-réttur Ávextir Til hátíða- brigðaF For- réttur Annað kjöt en fuglakjöt
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.