Fréttablaðið - 25.05.2010, Blaðsíða 21

Fréttablaðið - 25.05.2010, Blaðsíða 21
ÞRIÐJUDAGUR 25. maí 2010 3 Kynning Einn af hverjum tíu nýbökuð- um feðrum þjáist mögulega af fæðingarþunglyndi. Þetta eru niðurstöður athugana sem unnar voru af rannsóknarteymi Læknaháskólans Austur-Virgin- íu í Bandaríkjunum. Þó að hlutfallið sé lægra en hjá nýbökuðum mæðrum komu niður- stöðurnar á óvart eins og fram kom á fréttavef BBC síðasta þriðjudag. Þær sýndu að feður eru yfirleitt hamingjusamastir fyrstu vikurnar eftir fæðingu barns en þunglyndi geri vart við sig eftir þrjá til sex mánuði. Eins virtust feður líklegri til að verða þunglyndir ef móðirin þjáðist af fæðingarþunglyndi. Einnig segir í fréttinni að þung- lyndi feðra sé síður til umræðu og þeir fái sjaldnar aðstoð vegna þess. Minni svefn, breyttur lífs- stíll, meiri ábyrgð og breyting- ar á sambandi parsins sjálfs séu þó allt þættir sem hafa áhrif á bæði móður og föður. Rannsóknin náði til rúmlega 28 þúsund foreldra í sextán löndum. - rat Þunglyndir feður Einn af hverjum tíu feðrum verða þunglyndir þremur til sex mánuðum eftir fæð- ingu barns. NORDICPHOTOS/GETTY Íslandsmeistaramót í rathlaupi verður haldið dagana 4. og 5. júní næstkomandi undir heitinu ICE-O. Um alþjóðlegan viðburð er að ræða og munu erlendir hlauparar taka þátt. Hlaupin munu fara fram í Laug- ardal og Heiðmörk á vegum Rat- hlaupsfélagsins Heklu og má nálg- ast frekari upplýsingar um mótið á heimasíðu félagsins, www.rat- hlaup.is. Rathlaupsfélagið Hekla stendur fyrir rathlaupum alla fimmtudaga í sumar frá klukkan 17 til 18.30 en á heimasíðunni er einnig að finna upplýsingar um staðsetningar og lýsingar á hverju hlaupi fyrir sig. - rat Rathlaup í Reykjavík Rathlauparar á Miklatúni. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Kaupmannahafnarbúar hafa tek- ið aðstoð við að hætta að reykja fegins hendi en sveitarfélagið býður upp á ókeypis námskeið. Þetta kemur fram á fréttavef Berlinske Tidende en um 490 manns tóku þátt í námskeiðinu sem hófst í janúar á þessu ári og lauk nú í maí. Á síðasta ári voru þátttakendur tæplega 400 en þessa aukningu segir Beate Simonsen, ráðgjafi heilbrigðissviðs Kaupmanna- hafnar, að þakka átta vikna átaki gegn reykingum sem keyrt var í dönsku sjónvarpi í október og desember árið 2009. Þar hafi áhrifamiklar myndir af skemmd- um lungum og heila af völdum reykinga komist heim í stofu hjá fólki en eins hafi þar komið fram að reykingafólki byðist ókeyp- is aðstoð. Því hefðu margir ekki gert sér grein fyrir að stæði til boða og því tekið upp símann strax. - rat Danir nýta sér ókeypis aðstoð Kaupmannahafnarbúar geta nú hætt að reykja með aðstoð sveitarfélagsins. Um er að ræða þrjá fitness-rétti, Santa Fe salat, fitness burrito og bankabyggsrétt með grilluðum kjúklingi. Fitness-réttirnir hafa verið á boðstólum í nokkra mán- uði og fengið góðar viðtökur. „Það er alltaf stór hluti fólks að hugsa um línurnar og næringar- fræðingar mæla með því að við borðum minni og hollari máltíð- ir yfir daginn. Við ákváðum því setja saman holla rétti þar sem viðskiptavinurinn fær tvær mál- tíðir í einum pakka,“ útskýrir Sólveig Guðmundsdóttir fram- kvæmdastjóri Culiacan. „Búið er að skipta réttinum niður svo viðskiptavinurinn getur borðað annan skammtinn t.d. í hádeginu og hinn seinnipartinn. Rétturinn kostar 1480 krónur svo hvor mál- tíð er því einungis á 740 krón- ur.“ Geir Gunnar Markús- son, næringarfræðingur og einkaþjálfari, hefur reiknað út orkuhlutföll og næringar- gildi allra réttanna. „Það er frábært að skyndi- bitamenningin sé að færa sig yfir í hollustuna en það er allt of mikið af óhollum skyndibita í boði,“ segir Geir Gunnar. „Fitness-réttirnir hjá Culiacan inni- halda fáar hitaein- ingar og hafa góða næringarsamsetn- ingu. Þarna eru réttir sem henta öllum, jafnt þeim sem vilja grenna sig, íþróttafólki sem þarf góðan skammt og almenningi sem vill góða og holla næringu. Það að réttirnir komi í tveimur skömmt- um er mjög sniðugt en fólk á oft í erfiðleikum með að finna sér holl- an millibita seinnipart dags. Ég hvet fólk til að borða hollt og ein leið til þess er að nýta sér þennan góða skyndibita hjá Culiacan. „Nú þegar margir eru að taka þátt í „Hjólaðu í vinnuna“ átakinu er tilvalið að taka upp nýjan lífs- stíl í matarvenjum og borða minna og oftar. Þannig sér fólk árangur fljótt. Mataræði er aðal áhrifa- valdur á líkamlegt ástand okkar, þó að hreyfingin sé að sjálfsögðu góð,“ segir Sólveig. Fáar kaloríur en góð næring Mexikóski veitingastaðurinn Culiacan í Faxafeni 9 býður upp á heilsusamlega skyndibita. Þeir eru afgreiddir þannig að tvennt er af öllu í boxinu svo auðvelt er fyrir fólk að stilla skömmtum í hóf. Geir Gunnar Markússon M.Sc næringarfræðingur og Sólveig Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri Culiacan. Fitness burrito ásamt banka- byggi m. grænmeti. 321 kkal í skammtinum. Bankabygg m.kjúklingi og fitness- quesadilla. 480 kkal skammturinn. SantaFe salat og fitness- quesadilla. 372 kkal skammturinn.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.