Fréttablaðið - 22.06.2010, Blaðsíða 10
22. júní 2010 ÞRIÐJUDAGUR
Staðgreiðsluverð kr. 26.250*
Nýja S2120 ryksugan frá Miele er lágvær, létt, kraftmikil og með
stórum poka. Parketbursti að andvirði kr. 9.320 fylgir frítt með.
Suðurlandsbraut 20, Reykjavík | Sími 588 0200 | www.eirvik.is
Sparaðu með Miele
Þú sparar
kr. 15.882
Opið í dag laugardag frá kl. 11:00-15:00
Fullt verð kr. 32.812
*Gildir á meðan birgðir endast.
Ring er ný farsímaþjónusta á vegum Símans. Fyrir 1.990 kr. áfyllingu á mánuði færðu 1500 mín/SMS á mánuði
til að hafa samband við alla innan GSM kerfis Símans og 990 kr. inneign til að hringja í fólk í öðrum kerfum.
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
4
15
3
0
www.facebook.com/ringjarar
Ekki vera sökker!
50% tilboð alla daga. Sjáðu á ring.is.
Hringdu í síma
ef blaðið berst ekki
Undirgöng lokuð
Undirgöngin við Brúarland í Mosfells-
bæ verða lokuð frá og með morgun-
deginum fram til 18. ágúst vegna
framkvæmda við tvöföldun Vestur-
landsvegar. Vegfarendum er bent á
að nota göngubrú yfir veginn eða
undirgöng við Ásland í staðinn.
MOSFELLSBÆR
SAMGÖNGUMÁL Tillögur Vegagerð-
arinnar um styttingu hringveg-
arins á tveimur stöðum á Norður-
landi hafa strandað á viðkomandi
sveitarstjórnum. Um er að ræða
annars vegar styttingu um sex
kílómetra í Skagafirði og hins
vegar fjórtán kílómetra styttingu
nálægt Blönduósi, hina svokölluðu
Húnavallaleið.
Eitt af markmiðum þeirrar sam-
gönguáætlunar sem nú er í gildi
er að stytta leiðir á aðalvegum.
Á hringveginum milli Reykjavík-
ur og Akureyrar hefur helst verið
bent á þessa tvo kosti í þeim efnum
en viðkomandi sveitarfélög vilja
halda þeim utan aðalskipulags.
„Sveitarfélögin hafa verið að
vinna aðalskipulag á þessum
svæðum og vegir eru byggðir sam-
kvæmt skipulagi. Við lítum svo á
að það sé hlutverk okkar að koma
því á framfæri að þetta sé mark-
mið Vegagerðarinnar til lengri
tíma litið. Sveitarfélögin hafa hins
vegar hafnað þessu á grundvelli
hagsmuna sveitarfélagsins,“ segir
Magnús Valur Jóhannsson, svæð-
isstjóri hjá Vegagerðinni.
Vegagerðin lítur svo á að sam-
kvæmt vegalögum beri sveitar-
félögunum að hafa tillögurnar í
aðalskipulagi. Ef tillaga frá Vega-
gerðinni er talin auka umferðar-
öryggi er sveitarfélögum óheimilt
að fara ekki að þeim ráðlegging-
um. Þær framkvæmdir sem nú
er deilt um eru báðar taldar auka
öryggi þó að sveitarstjórnirnar
setji spurningarmerki við þær
fullyrðingar.
„Þessi vinna byggir á gildandi
svæðisskipulagi fyrir svæðið.
Þar er ekki gert ráð fyrir þessum
vegaframkvæmdum og stjórnvöld
hafa hvergi markað þá stefnu að
fara skuli í þessa framkvæmd. Við
getum því ekki sett eitthvað inn í
skipulag sem hvergi hefur verið
ákvarðað að gera,“ segir Ágúst Þór
Bragason, forseti bæjarstjórnar
hjá Blönduósbæ, og leggur áherslu
á að skipulagið sé samráðsverkefni
ýmissa aðila en ekki einnar stofn-
unar.
Íbúar í Varmahlíð og á Blöndu-
ósi óttast að mögulegar vegafram-
kvæmdir hefðu neikvæð áhrif á
bæjarfélögin þar sem umferð um
hringveginn færi ekki lengur í
gegnum þau. Að auki telja yfirvöld
á svæðunum að skipulagsvaldið sé
aðallega í þeirra höndum og þeim
beri ekki að setja slíkar tillögur í
aðalskipulagið.
Sveitarstjórn Skagafjarðar sam-
þykkti aðalskipulag í desember
þar sem afgreiðslu á þeim vegar-
kafla sem deilt er um er frestað.
Skipulagið var sent til Skipulags-
stofnunar sem afgreiddi það til
umhverfisráðuneytisins í jan-
úar en ráðuneytið hefur enn ekki
klárað afgreiðslu málsins.
Aðalskipulag Blönduósbæjar er
komið skemmra á veg en þar er
verið að auglýsa skipulagið. Heim-
ilt er að gera athugasemdir við það
til 12. júlí. magnusl@frettabladid.is
Deilur tefja
fyrir styttingu
hringvegarins
Vegagerðin deilir við tvö sveitarfélög á Norðvestur-
landi vegna hugmynda um styttingu hringvegarins.
Sveitarfélögin segja hugmyndirnar ekki eiga heima
á aðalskipulagi því ekkert hafi verið ákveðið.
STYTTINGAR Á HRINGVEGINUM Þær hefðu í för með sér að Varmahlíð og Blönduós
væru ekki lengur í þjóðleið.
Aðstoðuðu vélarvana bát
Björgunarsveitin Geisli á Fáskrúðsfirði
aðstoðaði vélarvana bát rúmlega
20 sjómílur út af Skrúð í gær. Nýr
björgunarbátur sveitarinnar, Hafdís,
var sendur á svæðið og tók þrjá tíma
að draga bátinn að landi.
AUSTURLAND
JAFNRÉTTISMÁL Páll Magnús-
son útvarpsstjóri, Egill Helga-
son þáttastjórnandi, Vilhjálm-
ur Egilsson, framkvæmdastjóri
Samtaka atvinnulífsins, og Gylfi
Arnbjörnsson, forseti ASÍ, fengu
í gær Bleika steininn, hvatn-
ingarverðlaun Femínistafélags
Íslands.
Steinarnir eru veittir fólki sem
er í lykilaðstöðu til að hafa áhrif
á gang jafnréttismála í samfélag-
inu. Þau voru veitt í sjöunda skipti
í gær. Ráðskona félagins sagði við
tilefnið mikið verk enn óunnið í
jafnréttisbaráttunni. - þeb
Bleiku steinarnir afhentir fjórum karlmönnum í gær:
Hvatt til góðra verka
STEINN AFHENTUR Vilhjálmur Egilsson
tók við steini frá fulltrúum Femínista-
félagsins í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
DÓMSMÁL Maður sem dæmdur var
í níu mánaða fangelsi í héraðs-
dómi og til greiðslu hálfrar millj-
ónar í skaðabætur fyrir að slá
annan mann með glasi var í gær
sýknaður í Hæstarétti.
Tveimur dómurum af þremur
fannst ekki sannað að hann hefði
framið það afbrotið. Þriðji dóm-
arinn skilaði sératkvæði þar sem
hann segir að þó ýmsa annmarka
megi finna á rannsókn lögreglu
leiði það ekki til ómerkingar hér-
aðsdóms og vildi hann því stað-
festa dóm héraðsdóms.
Dómari skilaði sératkvæði:
Sýknaður af
árás með glasi
Sextíu vilja bæjarstjórastól
Um sextíu manns hafa sótt um starf
bæjarstjóra á Akureyri. Umsóknar-
frestur rann út í fyrradag en stefnt
er á að bæjarstjóri hefji störf um
mánaðamótin.
AKUREYRI