Fréttablaðið - 20.08.2010, Síða 4
4 20. ágúst 2010 FÖSTUDAGUR
Laun þeirra 100 tekjuhæstu frá árinu 2000*
Ár Laun þús.kr./mán. Breyting frá fyrra ári
2000 2.869 10,7%
2001 2.530 -11,8%
2002 2.840 12,3%
2003 3.427 20,7%
2004 4.462 30,2%
2005 6.578 47,4%
2006 7.516 14,3%
2007 11.234 49,5%
2008 7.182 -36,1%
2009 5.019 -30,1%
* Samkvæmt rannsókn Þjóðmálastofnunar HÍ á upplýsingum úr tekjublöðum Frjálsrar verslunar.Kvikmynd Herberts Sveinbjörnssonar
sem sýnd verður á Haðarstíg á menn-
ingarnótt heitir Sjónarhorn en ekki
Hjónakorn eins og stóð í Fréttablað-
inu í gær.
Villa leyndist í grafi sem birtist með
frétt um fólksfækkun á Íslandi á mið-
vikudag. Í grafinu stóð að Íslendingar
hefðu verið 84.528 árið 1890 en þar
átti að standa 70.581.
LEIÐRÉTTINGAR
LAUNAMÁL Eitt hundrað tekjuhæstu
einstaklingar í landinu höfðu að
meðaltali fimm milljónir króna í
launatekjur á mánuði árið 2009.
Tekjur þeirra eru nú svipaðar og á
árunum 2004 og 2005 en innan við
helmingur þess sem þær voru árið
2007 þegar þær voru 11,2 milljón-
ir króna á mánuði að meðaltali.
Í nýju fréttabréfi Þjóðmála-
stofnunar Háskóla Íslands er sýnd
þróun launatekna 100 hæstu tekju-
þega í landinu á tímabilinu 1990
til 2009 í grein eftir Arnald Sölva
Kristjánsson hagfræðing og Stef-
án Ólafsson prófessor.
Byggt er á upplýsingum úr
tekjublöðum Frjálsrar verslunar.
Fram kemur að á tímabilinu frá
2003 til 2007 jukust atvinnutekj-
ur þessa hóps langt umfram aðra í
þjóðfélaginu. Meðan vísitala kaup-
máttar launa hækkaði úr 100 árið
1990 í 146 árið 2008 fór vísitala
kaupmáttar hinna hundrað tekju-
hæstu úr 100 í 500. Frá hruninu
árið 2008 hafa tekjur hátekjuhóps-
ins lækkað um 55%. Í fréttabréfi
Þjóðmálastofnunar segir að þetta
þýði að sú 71% hækkun sem varð
hjá hópnum á árunum 2005 til
2007 hafi nú að stórum hluta geng-
ið til baka. „Þær miklu hækkanir
sem urðu á atvinnutekjum hæstu
100 einstaklinganna frá 2002 til
2004 standa þó enn eftir,“ segir í
tímaritinu.
Greinarhöfundarnir árétta þó
að í tekjublöðum eins og blaði
Frjálsrar verslunar séu hæstu
tekjur vantaldar þar sem fjár-
magnstekjur séu þar undanskild-
ar. „Tölur Frjálsrar verslunar van-
Hundrað hæstu fá
svipuð laun og 2004
Meðallaun 100 launahæstu Íslendinganna voru um fimm milljónir á mánuði
árið 2009 og höfðu lækkað úr rúmum 11 milljónum árið 2007. Fjármagnstekjur
vantar inn í heildarmyndina, segir Þjóðmálastofnun Háskólans.
BREITT BIL Kaupmáttur hundrað tekjuhæstu einstaklinganna fimmfaldaðist á
sama tíma og kaupmáttur almennings jókst um helming. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
meta því hæstu tekjur Íslendinga
verulega,“ segir í fréttabréfinu.
Gögn Ríkisskattstjóra sýni að árið
2007 var 1% tekjuhæstu fjölskyldna
í landinu með um 85% heildartekna
sinna sem fjármagnstekjur. Árið
2007 hafi sex hundruð tekjuhæstu
fjölskyldur landsins haft að meðal-
tali um 18 milljónir króna á mánuði
í heildartekjur, þegar allar tekjur
voru meðtaldar, þ.e. atvinnutekjur,
fjármagnstekjur og lífeyristekjur.
Þjóðmálastofnun boðar að hún
muni birta upplýsingar um hvernig
heildartekjur þessa hóps hafa þró-
ast frá 2007 þegar nýjar tölur frá
Ríkisskattstjóra liggja fyrir.
peturg@frettabladid.is
VEÐURSPÁ
Alicante
Basel
Berlín
Billund
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
Mallorca
New York
Orlando
Ósló
París
San Francisco
Stokkhólmur
HEIMURINN
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
30°
29°
24°
21°
28°
26°
20°
20°
24°
23°
31°
31°
35°
19°
29°
16°
21°Á MORGUN
Strekkingur vestast og
austast annars hægari.
MÁNUDAGUR
Strekkingsvindur
nokkuð víða.
8
11
7
8
12
7
8
8
12 11
11
11
11
9
8
9
9
11
13
7
5
7
4
10
7
10
9
5
5
5
108KÓLNAR
Það kólnar um
helgina og má
búast við að hit-
inn falli niður fyrir
10 stig um landið
norðanvert en
verði á bilinu 10 til
15 stig að deginum
til sunnanlands.
Það rignir norðan-
og austanlands og
bætir í úrkomuna
eftir því sem á
helgina líður.
Ingibjörg
Karlsdóttir
veður-
fréttamaður
HEILBRIGÐISMÁL Landspítalinn hefur
gert samning um þjónustu við
sjúklinga frá Færeyjum og sam-
kvæmt honum verður sjúklingum
þaðan, sem þurfa að leita sér lækn-
inga utan Færeyja, vísað til Land-
spítalans til jafns við önnur norræn
háskólasjúkrahús.
Um er að ræða rammasamning
um sölu sjúkrahúsþjónustu Land-
spítala. Kaupandi er færeyska heil-
brigðisráðuneytið fyrir hönd lands-
samtaka sjúkrahúsa í Færeyjum.
Samningurinn nær til hvers konar
sjúkrahúsþjónustu.
Þetta er fyrsti samningurinn sem
gerður er við annað land um alhliða
sjúkrahúsþjónustu á Íslandi og
skapar grundvöll að frekara sam-
starfi, til dæmis um meðferð sjald-
gæfra sjúkdóma. Hann stuðlar að
meiri nýtingu mjög dýrra tækja og
búnaðar og hraðari endurnýjunar
á honum. Samningurinn getur líka
aukið möguleika Landspítalans á
að taka upp nýja þjónustu sem áður
hefur verið veitt erlendis þar sem
fleiri sjúklingum stæði hún til boða
nú en áður. Þannig geta líka skapast
tækifæri fyrir heilbrigðisstarfsfólk
með sérstaka þjálfun að flytja heim
til Íslands og fá starf við hæfi. - shá
Landspítalinn tekur við færeyskum sjúklingum eftir gerð tímamótasamnings:
Tímamót í læknisþjónustu
UNDIRRITUN Í FÆREYJUM Björn Zoëga,
forstjóri LSH, og Álfheiður Ingadóttir
heilbrigðisráðherra undirrita samninginn
fyrir hönd Íslands. MYND/LSH
HEILBRIGÐISMÁL Grunur leikur
á að hrossapestin, sem herjað
hefur á hesta hér á landi undan-
farið, smiti menn, hunda og
ketti. Þetta kom fram í fréttum
RÚV í gær.
Dæmi eru um streptókokka-
sýkingar hjá hestamönnum og
rannsakað er hvort þeir hafi
smitast af hestum sínum. Frétta-
stofan ræddi við Sigríði Björns-
dóttur, dýralækni hrossasjúk-
dóma hjá Matvælastofnun, sem
staðfestir að verið sé að rann-
saka sýni með tilliti til þess
hvort pestin hafi borist á milli.
Sigríður segir að enn taki
nokkrar vikur að greina sýnin.
Þau sem eru úr ferfætlingun-
um séu til skoðunar í Tilrauna-
stöðinni að Keldum en það sé í
höndum heimilislækna að greina
menn. - shá
Sýni rannsökuð á Keldum:
Hrossapest geti
smitast í menn
HESTAMENN Ekki er útilokað að hrossa-
pestin geti borist í menn. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
INNBROT Brotist var inn í félagsað-
stöðu aldraðra á Álftanesi á þriðju-
dagsmorgun og stolið þaðan flat-
skjá. Guðrún Jónsdóttir, formaður
Félags eldri borgara á Álftanesi,
segir tilfinningalegt tjón hafa hlot-
ist af verknaðinum, sem og fjár-
hagslegt, í samtali við Vísi.
TM tryggir félagið en Guðrún
segist ekki vera bjartsýn á að fá
tjónið bætt. Hún segir djáknann
í umdæminu hafa ætlað að halda
bíósýningar fyrir félagsmenn einu
sinni í mánuði í vetur, en nú verði
líklega ekkert úr því. Hún segir
verknaðinn lágkúrulegan og skor-
ar á þann sem tók flatskjáinn að
skila honum. - sv
Innbrot á Álftanesi:
Flatskjá félags
aldraðra stolið
SJÁVARÚTVEGUR Síldveiðin hefur
verið kaflaskipt eftir að veiðar hóf-
ust á ný hjá skipum HB Granda. Á
heimasíðu fyrirtækisins segir að
eftir frí um verslunarmannahelg-
ina veiddist lítið en góðar torfur
gáfu tímabundið góðan afla. Dálít-
ið er af makríl í síldaraflanum en
þegar Ingunn AK hætti veiðum
var hún komin hátt í 200 mílur
austur af Vopnafirði.
Síldin sem veiðst hefur að und-
anförnu er af ágætri millistærð
eða um 230 til 240 grömm að
þyngd. - shá
Norsk-íslenska síldin:
Kaflaskipt veiði
sem af er ágúst
BRETLAND, AP Skyldi einhver hafa
prófað að setja viskí á bens-
íntankinn? Vísindamenn við
Napier-háskólann í Edinburgh
hafa prófað það, að eigin sögn
með góðum árangri.
Þeir hafa framleitt svonefnt
bútanól-eldsneyti úr dreggjum
og úrgangi frá eimingu skosks
viskís. Eldsneytið segja þeir not-
hæft í venjulegar bifreiðar, með
óbreyttum vélum.
Kosturinn við þetta er ekki
síst að eldsneytið er framleitt úr
úrgangi annarrar framleiðslu.
Því þarf ekki að rækta sérstak-
lega jurtir til framleiðslunnar. - gb
Vísindamenn í Skotlandi nýta:
Eldsneyti fram-
leitt úr áfengi
18 mánuðir fyrir nauðgun
Héraðsdómur Norðurlands eystra
dæmdi í gær karlmann á sextugsaldri
í átján mánaða fangelsi fyrir nauðgun.
Maðurinn nauðgaði konu á heimili
hennar í janúar og gat hún ekki varist
sökum ölvunar og svefndrunga.
DÓMSMÁL
AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Hendrik Sigurðsson hendrik@frettabladid.is, Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Laila Awad laila@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is
ALLT SÍMI 512-5402: Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is, Henný Árnadóttir henny@365.is, Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5016: Sigríður Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynurs@365.is, Bjarni Þór Sigurðsson bthor@365.is, Benedikt Freyr Jónsson benediktj@365.is
RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is, Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is
GENGIÐ 19.08.2010
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
208,0051
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
119,28 119,84
186,57 187,47
153,04 153,90
20,538 20,658
19,345 19,459
16,207 16,301
1,3936 1,4018
180,55 181,63
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR