Fréttablaðið - 20.08.2010, Síða 6
6 20. ágúst 2010 FÖSTUDAGUR
Nýskráður: 07.2007 - Ekinn: 19 þús.
19” SportDesign álfelgur, Sport Chrono Plus pakki,
aksturstölva, Bi-Xenon ökuljós, sjálfskiptur, sportsæti,
Porsche á Íslandi - Vagnhöfða 23 - 590 2000 - www.benni.is - Opið alla virka daga frá kl. 09 til 18.
Porsche Boxster S
Verð kr. 7.900.000
FRAKKLAND, AP Frönsk stjórn-
völd sendu í gær nærri hundr-
að manns til Rúmeníu. Allt voru
þetta sígaunar, eða rómar eins og
þeir kalla sig sjálfir, sem að mati
franskra stjórnvalda dvöldu ólög-
lega í Frakklandi.
Frakkar segjast ætla að senda
fleiri þeirra úr landi næstu vik-
urnar, flesta til Rúmeníu en suma
til Búlgaríu.
Þótt lög Evrópusambandsins
heimili frjálsa för fólks milli
landa geta stjórnvöld rekið fólk
aftur til síns heimalands ef það
getur ekki sýnt fram á að hafa
næg peningaráð til eigin fram-
færslu í dvalarlandinu.
Alexandre Le Cleve, talsmaður
samtaka rómafólksins í Evrópu,
segir brottvísanirnar frá Frakk-
landi gersamlega tilgangslausar.
„Þeir sem fóru í morgun geta
tekið flugvél strax í kvöld og
komið aftur til Frakklands. Það
er ekkert sem hindrar það,“ sagði
hann. „Auðvitað kemur þetta fólk
aftur,“ bætti hann við. „Sumir
rómar hafa verið sendir til baka
sjö eða átta sinnum, og hafa í
hvert sinn fengið hinar frægu
300 evrur.“
Þar vísar hann til þess að Frakk-
ar láta hvern fullorðinn einstakl-
ing, sem fer úr landi af fúsum og
frjálsum vilja, fá 300 evrur til að
koma undir sig fótunum í heima-
landinu. Börn fá hundrað evrur.
„Ég fer aftur eftir tvær vikur,“
sagði einn hinna brottfluttu, Adri-
an Paraipan, 37 ára karlmaður
sem var sendur með fluginu til
Rúmeníu í gær ásamt eiginkonu
sinni og þremur börnum.
Le Cleve bendir á að brottvís-
anir sígaunanna hækki tölur um
árlegar brottvísanir útlendinga
frá Frakklandi. Stjórnvöld birta
þær tölur árlega og stæra sig af
árangrinum, sem á að sýna stað-
festu þeirra í baráttunni gegn
glæpastarfsemi útlendinga í land-
inu.
Erlendir sígaunar sjást oft betla
á götum í Frakklandi, eins og
víðar í Evrópu. Oft eru lítil börn
með þeim og margir Frakkar líta
þetta hornauga.
Sarkozy forseti hefur lagt
áherslu á tengsl rómafólksins við
glæpi. Í ræðu sinni 28. júlí sagði
hann búðir sígauna gróðrarstíu
vændis, mansals og kynferðis-
glæpa gegn börnum.
Hann lofaði því við uppræta
ólöglegar búðir sígauna, þær yrðu
„kerfisbundið rýmdar“. Síðan hafa
stjórnvöld rýmt um fimmtíu búðir
og eru enn að.
Traian Basescu, forseti Rúmen-
íu, sagðist hafa fullan skilning á
þeim vanda, sem búðir rómafólks
í sveitum Frakklands skapi og hét
því að vinna með Frökkum að því
að finna lausn á þessum vanda.
Hins vegar stóð hann fastur á því
að allir íbúar aðildarríkja Evrópu-
sambandsins hafi fullan rétt til að
ferðast frjálsir innan Evrópusam-
bandsins. gudsteinn@frettabladid.is
Um hundrað manns
reknir til Rúmeníu
Frakkar eru byrjaðir að senda sígauna úr landi í stórum stíl. Fleiri verða sendir
burt næstu vikurnar til Rúmeníu og Búlgaríu. Tóm sýndarmennska, segir tals-
maður sígaunanna, því fólkið getur hindrunarlaust farið strax til baka.
BROTTFLUTNINGUR Nærri hundrað manns voru sendir með tveimur flugvélum til
Rúmeníu frá Frakklandi í gær. NORDICPHOTOS/AFP
Ætlar þú að taka þátt í hátíðar-
höldum á menningarnótt?
JÁ 30%
NEI 70%
SPURNING DAGSINS Í DAG:
Hefur þú gaman af kórsöng?
Segðu skoðun þína á visir.is
FASTEIGNAMARKAÐUR Dregið hefur
verulega úr verðlækkunum á fast-
eignamarkaði á undanförnum mán-
uðum og hefur hann glæðst það
sem af er ári miðað við sama tíma
í fyrra. Þó má reikna með að verð
haldi áfram að lækka. Þetta kemur
fram í Peningamálum, ársfjórðungs-
riti Seðlabankans.
Í ritinu er bent á að raunverð fast-
eigna hafi nú lækkað um rúm 34
prósent á höfuðborgarsvæðinu frá
í október 2007 þegar það var hæst.
Þá hefur nafnverð íbúða lækkað um
14,2 prósent frá því það stóð hæst í
janúar fyrir tveimur og hálfu ári.
Þá segir að þótt velta hafi verið
rúmum fimmtungi meiri í júlí en á
sama tíma fyrir ári sé hún enn afar
lítil í sögulegu samhengi.
Í síðustu Peningamálum Seðla-
bankans í maí kom fram að í mars
hefði áttatíu prósent færri kaup-
samningum verið þinglýst en í
október 2004 þegar fjöldi þeirra
náði hámarki rétt eftir innkomu
viðskiptabankanna á fasteignalána-
markaðinn. Þá var raunverð íbúða
jafnframt lægra en það var áður en
viðskiptabankarnir hófu að veita lán
til húsnæðiskaupa fyrir sex árum.
- jab
Seðlabankinn segir veltu á fasteignamarkaði enn í sögulegu lágmarki:
Dregur úr lækkun íbúðaverðs
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ Raunverð fast-
eigna var lægra í maí en þegar bankarnir
komu inn á fasteignalánamarkaðinn
haustið 2004. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
AKUREYRI Um 1.800 Akureyr-
ingar skrifuðu undir lista til að
mótmæla fyrirhuguðum breyt-
ingum á miðbæjarskipulagi
bæjarins og hvetja bæjarstjórn
til að varðveita götumynd við
Hafnarstræti.
Þar á samkvæmt skipulagi
að byggja bensínstöð og KFC-
skyndibitastað. Undirskrifta-
söfnunin stóð í rúma viku
og var listinn afhentur Geir
Kristni Aðalsteinssyni, forseta
bæjarstjórnar í gær.
- pg
Miðbær Akureyrar:
1.800 mótmæla
skipulagstillögu
UMHVERFI Umhverfisráðherra hefur
tilkynnt að stækka eigi friðlandið
í Þjórsárverum og fagnar Land-
vernd ákvörðuninni.
Lárus Vilhjálmsson, fram-
kvæmdastjóri Landverndar, telur
að fyrirliggjandi hugmyndir um
Norðlingaölduveitu séu ekki ásætt-
anlegar þar sem sýnt hefur verið
fram á að slíkar framkvæmdir
spilli verndargildi Þjórsárvera.
Slíkt hefði óhjákvæmilega nei-
kvæð áhrif á núgildandi friðlands-
mörk Þjórsárvera og gæti valdið
óafturkræfum spjöllum á svæð-
inu. - sv
Landvernd fagnar ákvörðun:
Friðlandið mun
verða stækkað
ÖRYGGISMÁL Þyrla Landhelgis-
gæslunnar var kölluð út fjórum
sinnum á tímabilinu frá klukkan
sjö á mánudagkvöldið til klukkan
tvö daginn eftir.
TF-LÍF sótti snemma að kvöldi
mánudags veikan sjómann um
borð í norskan togara sem stadd-
ur var um 175 sjómílur norðvest-
ur af Reykjavík. Á meðan bárust
aðstoðarbeiðnir vegna alvarlegra
veikinda í Öræfum og vegna
manns sem slasaðist í Grímsey.
Fjórða útkallið var vegna konu
sem slasaðist við hellaskoðun við
Miklafell í Eldhrauni. - shá
Annir hjá þyrlunni TF-LÍF:
Fjögur útköll á
fimmtán tímum
TF-LÍF Kalla þurfti út áhöfn á bakvakt
og mann úr sumarfríi til að fullmanna
þyrluna. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
VIÐSKIPTI Hagnaður af rekstri fær-
eyska olíufélagsins Atlantic Petr ol-
eum var 35,8 milljónir danskra
króna eða jafngildi 738 milljóna
íslenskra króna á öðrum ársfjórð-
ungi. Þetta er mesti hagnaður á
einum ársfjórðungi hjá Atlantic
Petroleum frá stofnun fyrirtækis-
ins árið 1998.
Fyrirtækið dælir nú upp olíu
úr tveimur olíulindum austan við
Skotland en á þátt í olíuleitarverk-
efnum við Færeyjar, Írland og í
nágrenni áðurnefndra linda. - mþl
Ársfjórðungsuppgjör kynnt:
Metfjórðungur
hjá Atlantic
NEYTENDUR Verðlagseftirlit ASÍ
kannaði verð á nýjum og notuð-
um skólabókum fyrir framhalds-
skólanema í nokkrum verslunum
á höfuðborgarsvæðinu í fyrra-
dag.
Griffill var oftast með lægsta
verðið á nýjum bókum í könnun-
inni en Penninn-Eymundsson var
oftast með lægsta verðið á notuð-
um bókum. Mál og menning var
oftast með hæsta verðið á nýjum
bókum en Office 1 oftast með
hæsta verðið á notuðum bókum.
Í könnuninni var verð á 27
algengum nýjum bókum skoðað
í sex verslunum á höfuðborgar-
svæðinu. Að auki var verð á tíu
notuðum bókum skoðað á fjórum
skiptibókamörkuðum.
Verðmunur á milli skiptibóka-
markaðanna var í flestum tilvik-
um í kringum 30 prósentum og
munur á verði nýrra og notaðra
Griffill oftast með lægsta verðið á nýjum skólabókum:
Verðmunur á skólabókum mikill
Nýjar bækur
Dansk er mange ting Stærðfræði 3000 Fornir tímar
Mál og menning 4.190 kr. 4.980 kr. 5.290 kr.
Penninn Eymundsson 3.771 kr. 4.482 kr. 4.761 kr.
Griffill 4.490 kr. 4.990 kr. 4.990 kr.
Office 1 3.745 kr. 4.395 kr. 4.850 kr.
Bóksala stúdenta 4.490 kr. 4.490 kr. 4.840 kr.
Bókabúðin IÐNÚ 4.085 kr. 4.855 kr. 5.135 kr.
Notaðar bækur
Stærðfræði 3000 Félagsfræði Jarðargæði
Mál og menning 2.490 kr. 2.245 kr. 2.945 kr.
Penninn Eymundsson 2.200 kr. 1.960 kr. 2.028 kr.
Griffill 2.745 kr. 2.145 kr. 2.199 kr.
Office 1 2.994 kr. 2.694 kr. 2.628 kr.
Stikkprufur úr verðkönnun ASÍ
námsbóka var oftast um eða yfir
100 prósent.
Mesti verðmunurinn á nýrri bók
var rúm 100 prósent á skáldsög-
unni Lord of the Flies sem kennd er
í ensku. Kostar bókin 981 kr. í Bók-
sölu stúdenta en 1.995 krónur í Penn-
anum-Eymundsson og Griffli. - mþl
EFNAHAGSMÁL Þýska Zew-vísitalan,
sem mælir væntingar í viðskipta-
lífinu, lækkaði úr 21,2 punktum í
júlí í 14,0 punkta í síðasta mánuði.
Vísitalan hefur ekki verið lægri
síðan í apríl í fyrra og bendir til að
þýskir fjárfestar séu svartsýnir.
Þetta er neikvæðari niðurstaða
en búist var við. Reuters-frétta-
stofan hefur eftir sérfræðingum,
að hagvöxtur í Þýskalandi hafi
mælst 2,2 prósent á öðrum árs-
fjórðungi samanborið við 1,0 pró-
sents hagvöxt á evrusvæðinu.
Útflutningsfyrirtæki hafi notið
góðs af veikri evru og uppgangi
eftir fjármálakreppuna og eðlilegt
að nú sé að hægja á. - jab
Svartsýnar horfur í Þýskalandi:
Hægir á eftir
uppsveifluna
FORSTJÓRI FAGNAR Þýski bílarisinn
BMW hefur notið góðs af uppganginum
á erlendum mörkuðum eftir fjármála-
kreppuna, ekki síst í Kína. FRÉTTABLAÐIÐ/AFP
KJÖRKASSINN