Fréttablaðið - 20.08.2010, Qupperneq 48
32 20. ágúst 2010 FÖSTUDAGUR
folk@frettabladid.is
Samkvæmt vefsíðu Empire-kvikmyndaritsins eru
Simon Pegg og Nick Frost með nýja gamanmynd í
smíðum. Pegg og Frost slógu eftirminnilega í gegn
í kvikmyndinni Shaun of the Dead sem þótti drep-
fyndin. Hot Fuzz fylgdi í kjölfarið sem var ekkert
síðri og nú er semsagt ný mynd með þessum grín-
dúett í smíðum. Myndin ku fjalla um tvo Breta sem
ákveða að skella sér í vegaferð um Bandaríkin.
Aðalmálið er þó að komast á nördahátíðina Comic
Con en þangað safnast allir þeir fullorðnu karlmenn
sem hafa einlægan áhuga á myndasögum og öllu
sem tengist þeim.
Bretarnir tveir eru forfallnir geimverufíklar og
bregður heldur betur í brún þegar þeir keyra fram
hjá hinu fræga svæði númer 51 en þar segir sagan
að bandaríski herinn geymi nokkuð áþreifanlegar
sannanir um tilvist geimvera. Þeir rekast nefnilega
á geimveruna Paul sem þeir ákveða að hjálpa að
komast til síns heima. Seth Rogen talar fyrir geim-
veruna Paul en meðal annarra leikara má nefna Sig-
ourney Weaver, Jason Bateman og Blythe Danner.
Dúett hjálpar geimveru heim
HEIT TVENNA Simon Pegg og Nick Frost eru að gera stjörnum-
prýdda gamanmynd um týnda geimveru.
Kynbomban Jenny McCarthy, sem nýlega sleit sam-
bandi sínu við leikarann Jim Carrey, hefur nú fundið
sér nýjan leikfélaga einungis fjórum mánuðum eftir
að hún hvarf úr lífi Carreys.
Bomban sást með óþekktum manni í Los Angeles
í maí og hefur nú staðfest að hún hafi verið að hitta
Jason Toohey í um tvo mánuði.
Síðastliðna helgi sást til þeirra í samkvæmi í Las
Vegas og virtust þau ekkert reyna að fela tilfinning-
ar sínar hvort til annars.
Jenny komin með nýjan
JENNY MCCARTHY
Tónlistarhátíðin Airwaves hefst eftir
rúma tvo mánuði og þegar hafa verið
staðfest nöfn um hundrað hljómsveita
sem koma fram á hátíðinni.
Airwaives hefur verið ein vinsælasta
tónlistahátíð landsins allt frá upphafi
og reynsla undanfarinna ára hefur sýnt
að miðar á hátíðina seljast upp tals-
vert fyrir upphaf hátíðarinnar. Líkt
og fyrri ár munu margar áhugaverðar
hljómsveitir troða upp á hátíðinni í okt-
óber. Má þar nefna sveitir á borð við hina
kanadísku Timber Timbre, Angel Der-
adoorian, Dimond Rings, Alex Metric og
íslensku sveitina Sin Fang auk fjölda ann-
arra. Í ár koma einnig í fyrsta sinn fram
listamenn frá Finnlandi, Grænlandi og
Grikklandi sem þykja skemmtileg tíðindi.
Opinberir tónleikastaðir hátíðarinn-
ar eru sem áður Listasafn Reykjavíkur,
Nasa, Iðnó, Sódóma og Faktorý auk ann-
ara tónleika- og skemmtistaða. Umfangs-
mikil utandagskrá er einnig í gangi líkt
og fyrri ár og taka bæði innlendir og
erlendir tónlistarmenn þátt í þeirri dag-
skrá.
Forsala miða hefur gengið vel en frá og
með 1. september hækkar miðaverð og
mun það haldast óbreytt á meðan miðar
eru til. Nánari upplýsingar er að finna á
heimasíðu hátíðarinnar www.icelandair-
waves.com.
Fleiri nöfn staðfest á Airwaves
ALEX METRIC Breski tónlistarmaðurinn Alex
Metric er á meðal þeirra erlendu tónlistar-
manna sem koma fram á Airwaves í ár.
Söngkonan Rósa Birgitta
Ísfeld býður gestum og
gangandi að fagna með sér
á menningarnótt.
„Ég geri oft eitthvað til að taka
þátt í hátíðarhöldunum og nú er
ég með svo hentugt port að ég
ákvað að breyta því í skemmti-
legan stað til að hanga á og taka á
móti gestum og gangandi,“ segir
söngkonan Rósa Birgitta Ísfeld.
Hún heldur markað í portinu hjá
sér á menningarnótt og verður
einnig með glæsilega tónleika-
röð þar sem tónlistarmenn á borð
við Future grapher, Frank Mur-
der, Quadr uplos, Bob Justman
og fleiri munu stíga á svið. Inn
á milli tónlistaratriða munu svo
plötusnúðar sjá um að skemmta
gestum með góðri tónlist.
Rósa hefur eytt miklum tíma
úti í umræddu porti ásamt lista-
mönnunum Anik Todd og Unu
Stígsdóttur þar sem verið er að
skreyta og undirbúa fyrir helg-
ina. „Markaðurinn byrjar upp
úr hádegi og eftir það ætla ég að
reyna að skella í einhverjar sam-
lokur og kannski hummus líka.
Ég veit samt ekki hvað ég næ að
gera mikið, ég er eiginlega að
renna út á tíma,“ segir Rósa og
hlær. Hún segist hafa gert nokk-
uð svipað á Þorláksmessu síðustu
ár. „Kaffihúsin eru alltaf troðfull
á þessum dögum og þá er enginn
staður til að setjast niður með
vinum og fjölskyldu. Ég ákvað
því að hafa opið hús heima hjá
mér á Þorláksmessu, bjóða upp á
kaffi og kakó og fá fólkið til mín.
Nú er bara að biðja fyrir veðrinu
og vona að það rigni ekki á laug-
ardaginn,“ segir hún að lokum
kampakát.
Fjörið fer fram í porti við
Hverfisgötu 98, gengið er inn við
hliðina á veitingastaðnum Arg-
entínu. Markaðurinn hefst klukk-
an 12.00 en tónleikarnir klukkan
15.00. sara@frettabladid.is
Rósa Birgitta stendur í
ströngu á menningarnótt
GÓÐUR UNDIRBÚNINGUR Rósa Birgitta, Anik og Una standa í ströngu við að klára að gera portið tilbúið fyrir laugardaginn.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
> HVETUR FÓLK TIL AÐ
HJÁLPA PAKISTAN
Leikkonan Angelina Jolie not-
aði tækifærið og vakti athygli
heimsbyggðarinnar á hrikaleg-
um aðstæðum fórnarlamba flóðanna í
Pakistan þegar hún var við kynningar á
nýjustu mynd sinni Salt í Evrópu. Jolie
hefur nú þegar gefið 100.000 dollara
eða ellefu milljónir íslenskra króna til
Pakistan.
Sími 420 2500 l skolamatur.is
Hollt, gott og heimilislegt
Færð þú skólamat?
TI L B O Ð G I L D A T I L O G M E Ð 31. Á G Ú S T
SKIPTIBÓKAMARKAÐUR
Ótrúlegur
-20%
VI Ð HÖF U M L ÆK K A Ð V E R Ð Á ÖL LU M
SK I P TI B ÓKU M H JÁ EY MU N D S S ON
U M H EI L T U T T UGU PRÓ SEN T!
LÍ K A Á N ETI N U - EY MU N D S S ON.I S
ÓT RÚ L E GT Ú RVA L O G Ó T RÚ L E GT V E R Ð!
A pparatus P ilatæ
PÍ L AT USA RGA NGV ERK I ÐMY N D X V I I . MCCXVII
Sálin er það líffæri sem endist einna styst af þeim sem
mannslíkaminn geymir. Ef sálin er fullnýtt eða úr sér gengin
er hægt að framkvæma sálarskipti. Til þess er notað sérstakt
verkfæri sem nefnist Pílatusargangverkið. Ótrúlegt.
Í Eymundsson færðu skiptibækur með sál á 20% afslætti.
Skiptu þínum bókum á skiptibókamarkaði Eymundsson.