Fréttablaðið


Fréttablaðið - 15.10.2010, Qupperneq 13

Fréttablaðið - 15.10.2010, Qupperneq 13
FÖSTUDAGUR 15. október 2010 13 FRÉTTASKÝRING: Skýrsla AGS um skatta og niðurskurð Óli Kristján Ármannsson oka@frettabladid.is Á siminn.is sérðu hvort þitt heimili hefur aðgang að Sjónvarpi Símans. Til að ná Sjónvarpi Símans þarf að hafa ADSL tengingu hjá Símanum. Mesta úrval landsins heima í stofu Það er Fyrir aðeins 790 kr. á mánuði færðu opnu, íslensku stöðvarnar og þrjár erlendar. Einnig færðu SkjáBíó þar sem þú getur leigt þér þúsundir bíómynda og auk þess séð sjónvarpsþætti og úrval efnis á 0 kr. Fáðu þér Sjónvarp Símans í 800 700, siminn.is eða í næstu verslun. Sjónvarp Símans: Sími Netið Sjónvarp Niðurstöður úr reiknilíkani AGS benda til þess að hag- vöxtur verði meiri, verði hlutfall niðurskurðar hjá ríkinu aukið á kostnað skattahækkana. Aðhald launaútgjalda ýti undir hærra atvinnustig, en kalli á samstarf við verkalýðsfélög. Aðgerðir í fjármálum hins opin- bera sem byggja í meiri mæli á niðurskurði en skattahækkun- um leiða til merkjanlega aukins hagvaxtar, samkvæmt þjóðhags- reiknilíkani Alþjóðagjaldeyris- sjóðsins (AGS). Í skýrslu sendinefndar AGS í tengslum við þriðju endurskoðun efnahagsáætlunar Íslands segir að aðgerðir í fjármálum hins opin- bera sem byggðu að 80 prósentum á niðurskurði og að fimmtungi á skattahækkunum myndu að lík- indum skila 0,25 prósentustigum meiri hagvexti á árunum 2011 til 2015 en blönduð leið sem byggði til jafns á niðurskurði og gjalda- hækkunum. Þá myndi slík leið skila 0,75 prósentustigum meiri hagvexti en leið þar sem áhersla væri meiri á aukna skattheimtu. Vísað er til þess að stjórn- völd geri ráð fyrir því að marka stefnuna í ríkisfjármálum núna í haust. Þá kemur fram í skýrslunni að til þess að ná markmiðum um aðhald í ríkisfjármálum til miðlungslangs tíma verði að koma til viðbótar- aðhaldsaðgerðir sem nemi þrem- ur prósentum af landsframleiðslu á árunum 2012 og 2013. „Á Íslandi er breið samstaða um að í aðgerðunum eigi að vera jafnvægi milli tekjuauka ríkisins og niðurskurðar útgjalda. Mun minni samstaða er um til hvaða aðgerða eigi að grípa,“ segir í skýrslunni. Þar kemur jafnframt fram að stjórnvöld og sendinefnd sjóðsins hafi verið sammála um að ólíkar nálganir í aðhaldi í ríkisfjármálum fælu í sér ólíka þjóðhagslega niðurstöðu, með hlið- sjón af séríslenskum aðstæðum. Þannig gæti óhóflega mikil áhersla á fjármagns- og fyrir- tækjaskatta sett fjárfestingu skorður, en snörp hækkun neyslu- skatta myndi valda tímabundinni verðbólgu, sem um leið myndi auka verðtryggðar skuldir. Þá myndi ofuráhersla á niðurskurð opinberrar fjárfestingar hafa nei- kvæð áhrif á fjárfestingu í einka- geira og viðvarandi langtíma- vöxt. „Áhersla á aðhald launa og rétt- indagreiðslna gæti haft góð áhrif á vinnumarkaðinn, haldið aftur af launakostnaði og ýtt undir hærra atvinnustig,“ segir í skýrslu AGS. Sú leið er þó sögð kalla á áfram- haldandi samstarf við verkalýðs- félög. MÓTMÆLI AGS vekur mismikla hrifningu hjá fólki. Myndin er frá mótmælum í sumar gegn aðkomu sjóðsins hér. Fulltrúar sjóðsins segjast vera stjórnvöldum til ráðgjafar um leiðir í efnahagsmálum. Ákvarðanir séu hins vegar stjórnvalda. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON Aðhald eflir hagvöxtinn meira en skattar Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra fór yfir þróunina í afkomu ríkisins frá árinu 2004 til 2009 og áætlaða útkomu áranna 2010 til 2013 samkvæmt forsendum fjárlagafrumvarpsins og langtímaáætlunar í ríkisfjármálum, á fjármálaráðstefnu sveitar- félaganna Hótel Nordica í gær. Í máli hans kom fram hvernig neikvæð áhrif samdráttar í tekjum ríkissjóðs muni, þegar jafnvægi í ríkisfjármálum verður náð aftur, hafa í för með sér að það verði við talsvert lægra hlutfall af landsframleiðslu en áður. Hann sagði í þróuninni felast að aðrir málaflokkar ríkisstarfseminnar verði að láta undan síga vegna ruðningsáhrif stóraukinna vaxtagjalda og atvinnuleysisútgjalda. „Á hinn bóginn er ljóst að skuldir íslenska ríkisins munu halda áfram að vaxa þangað til jafnvægi hefur verið náð í ríkisrekstrinum. Við stefnumörkun í þessum efnum þarf því að horfa til mjög langs tíma, fram yfir kjörtímabil núverandi ríkisstjórnar,“ sagði Steingrímur, en áréttaði um leið að gangi eftir að aðhald verði nægilegt í ríkisútgjöldunum og hagvöxtur glæðist í þeim mæli að tekjuhlið ríkissjóðs styrkist eins og reiknað hafi verið með, þá muni verða góður afgangur á heildarafkomunni í lok tímabilsins. „Sá afgangur mun þá geta gengið til þess að lækka skuldastöðuna og þar með vaxtabyrðina. Samhliða því ætti að verða hægt að byggja aftur upp þjónustukerfi og velferðarnet hins opinbera smám saman, en þá á nýjum og endur- skipulögðum grundvelli.“ Þjónusta og velferðarnet á nýjum grunni Niðurstaða aðhaldsaðgerða ríkisins næstu þrjú ár Aðgerðir 2011 2012 2013 í milljónum króna talið Tekjur 11.000 - - Útgjöld 32.000 - - Heildaráhrif 43.000 36.000 9.500 sem prósenta af þjóðarframleiðslu Tekjur 0,6 - - Útgjöld 1,9 - - Heildaráhrif 2,5 2,0 0,5 Heimild: Skýrsla sendinefndar AGS eftir þriðju endurskoðun efnahagsáætlunar.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.