Fréttablaðið - 15.10.2010, Side 52

Fréttablaðið - 15.10.2010, Side 52
 15. október 2010 FÖSTUDAGUR24 timamot@frettabladid.is Í dag eru 140 ár liðin frá fæðingu tónskáldsins Árna Thor- steinsson (1870-1962). Af því tilefni verða áður óþekkt lög eftir hann frumflutt á tónleikum í Salnum í Kópavogi í kvöld klukkan 20. Söngvararnir Gunnar Guðbjörnsson og Ólaf- ur Kjartan Sigurðarson flytja lögin við undirleik Jónasar Ingimundarsonar. „Þetta er mikill fengur fyrir tónlistarunnendur, en Árni var okkar fremsti sönglagahöfundur,“ segir Jónas, sem fékk handritin í hendur eftir að þau komu fram. „Það finnst allt- af öðru hvoru eitt og eitt óþekkt verk eftir tónskáld eins og Mozart eða Vivaldi, sem bætir þó engu við höfuðverkin sjálf. Í þessu tilfelli koma fram í kringum tuttugu lög sem gefa öðrum góðverkum Árna ekkert eftir og eru viðbót við það sem áður er þekkt.“ Jónas segir Árna hafi samið lög á árunum frá 1900 til 1921 eða 1922. Þá virðist sem hann hafi hætt að semja, kannski vegna tímaskorts, en Árni var ljósmyndari að atvinnu og rak ljósmyndastofu, starfaði í banka og fleira. Jónas segist þó lengi hafa grunað að fleiri lög væru til eftir Árna. „Í ævisögu Árna sem hann skrifaði sjálfur, Harpa minn- inganna, koma fram titlarnir á flestum þessara laga í skrá sem er yfir verkin hans í bókinni. Ég hafði aldrei séð þessi lög og hef þó brasað í þessu í fimmtíu ár. Mig grunaði því að þau biðu einhvers staðar,“ segir hann og bætir við að lögin sem frumflutt verði nú séu rómantísk með miklar og breið- ar sönglínur. „Þau klæða raddir þeirra Gunnars og Ólafs Kjartans mjög vel,“ segir hann. Einnig verða flutt þekkt lög eftir Árna svo og lög sem hafa komið út en hafa sjaldan verið flutt. heida@frettabladid.is ÁRNI THORSTEINSSON TÓNSKÁLD: 140 ÁR FRÁ FÆÐINGU HANS Flytja áður óþekkt lög Árna Í GÓÐUM FÉLAGSSKAP Jónas Ingimundarson píanóleikari ásamt söngvurunum Ólafi Kjartani Sigurðarsyni og Gunnari Guðbjörnssyni. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og hlýhug vegna andláts Önnu Kristjönu Þorláksdóttur (Stellu) Hrísmóum 1, Garðabæ. Þorlákur Ásmundsson Halla Sigurjónsdóttir Sigurður Stefánsson og barnabörn. Systir mín og móðir okkar, Eva María Magnúsdóttir McCook lést 6. október 2010 í Jacksonville í Florida. Margrét Magnúsdóttir Magnús McCook Leonard McCook Linda McCook David McCook og fjölskyldur. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Borghild Edwald andaðist á heimili sínu sunnudaginn 10. október. Útförin hefur farið fram í kyrrþey, að ósk hinnar látnu. Sigrún Þórarinsdóttir Kristján Þórarinsson Bergsveinn Þórarinsson Heiðdís N. Hansdóttir Ásta María Þórarinsdóttir Garðar Þorleifsson barnabörn og langömmubörn Eiginmaður minn og faðir okkar Jón M. Baldvinsson lést á heimili sínu þann 1. okt. sl. Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Hólmfríður Guðmundsdóttir, Svanborg, Sólrún og Sigrún. Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma, Svanhildur Erla Benediktsdóttir Tjarnarbraut 22, Njarðvík, lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja, sunnudaginn 10. október. Útförin fer fram frá Keflavíkurkirkju, mánudaginn 18. október, kl. 13.00. G. Hafsteinn Ögmundsson Anna Margrét Hafsteinsdóttir Friðrik K. Jónsson Bjarki Birgisson Agnes Jónsdóttir Árni Sigurðsson Silvía Jónsdóttir Björgvin Karl Haraldsson Emelía Hafsteinsdóttir Elís Óttar Jónsson barnabörn og aðrir aðstandendur Kærar þakkir færum við öllum sem sýndu okkur samúð, hlýju og vináttu við útför vinar, föður, afa og bróður, Jóhannesar Ingólfs Jónssonar rafvirkjameistara, Hlíðarhúsum 7. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki og vinum á deild 1B og öðrum sem önnuðust hann á Hjúkrunarheimilinu Eir fyrir góða nærveru og umönnun. Ólöf Sigríður Stefánsdóttir Ásta Guðrún Jóhannesdóttir Jón Kristinn Jóhannesson barnabörn, systkini og aðrir aðstandendur. Hjartkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, Kristófer Þorgeirsson sem andaðist á Dvalarheimili aldraðra í Borgarnesi laugardaginn 9. október, verður jarðsunginn frá Borgarneskirkju mánudaginn 25. október kl. 14.00. Ólína Jóhanna Gísladóttir Björg Hólmfríður Kristófersdóttir Þórður B. Bachmann Gísli Kristófersson Þóra Ragnarsdóttir Þorgeir Kristófersson Inga Pétursdóttir Einar Kári Kristófersson Kolbrún Karlsdóttir afa- og langafabörn. Ástkær faðir okkar, bróðir og mágur, Þröstur Rafnsson frá Neskaupstað, lést á heimili sínu á Reyðarfirði 3. október sl. Útförin fer fram frá Langholtskirkju föstudaginn 15. október klukkan 13.00. Sunna Þrastardóttir Valdís Anna Þrastardóttir Einar Rafnsson Ragnheiður Thorsteinsson Auður Rafnsdóttir Geir Oldeide Hörður Rafnsson Karítas Jónsdóttir Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengda- faðir, afi og langafi, Magnús K. Geirsson rafvirki, Lækjasmára 6, Kópavogi, sem lést á heimili sínu fimmtudaginn 7. október, verður jarðsunginn mánudaginn 18. október kl. 13.00 í Bústaðakirkju. Bryndís Magnúsdóttir Geir Magnússon Áslaug S. Svavarsdóttir Unnur Magnúsdóttir Daníel Helgason Guðlaugur Hilmarsson barnabörn og barnabarnabarn. MOSAIK Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli og útfarir má senda á netfangið timamot@frettabladid.is. Auglýsingar á að senda á auglysingar@frettabladid.is eða hringja í síma 512 5000. JÓHANNES SVEINSSON KJARVAL (1885-1972) listmálari fæddist þennan dag „Ef þú vilt koma í veg fyrir að vera gagnrýndur, þá skaltu ekkert gera, ekkert segja og ekkert vera.“ Merkisatburðir 1894 Alfred Dreyfus er handtekinn og sakaður um njósnir. Þetta er upphafið á Dreyfus-málinu. 1940 Strandferðaskipið Esja kemur til Reykjavíkur frá Petsamo í Finnlandi með 258 íslenska ríkisborgara, sem höfðu lokast inni í Evrópu vegna stríðsins. 1975 Fiskveiðilögsaga Íslands er færð úr úr 12 sjómílum í 50. Bret- ar mótmæla sem fyrr og lýkur samningum við þá í júní 1976. 1979 Minnihlutastjórn Alþýðuflokksins undir forsæti Benedikts Gröndal tekur við völdum og situr í tæpa fjóra mánuði. 1983 Samtök íslenskra skólalúðrasveita eru stofnuð. 1946 Hermann Göring fremur sjálfsmorð aðeins nokkrum klukku- tímum fyrir áætlaða aftöku hans. 1951 Gamanþátturinn I Love Lucy með Lucille Ball er frumsýndur í Bandaríkjunum. 1990 Mikael Gorbatsjov, forseti Sovétríkjanna, hlýtur friðarverðlaun Nóbels.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.