Fréttablaðið - 15.10.2010, Page 66
15. október 2010 FÖSTUDAGUR
N1-deild karla:
FH-Selfoss 31-25 (20-14)
Mörk FH (skot): Ólafur Andrés Guðmundsson 7
(11), Ásbjörn Friðriksson 6 (13), Hermann Ragnar
Björnsson 5 (8), Logi Geirsson 4/1 (5/1), Bjarki
Jónsson 3 (4), Atli Rúnar Steinþórsson 2 (2),
Ari Magnús Þorgeirsson 2 (3), Benedikt Reynir
Kristinsson 2 (6), Þorkell Magnússon 1 (1), Bogi
Eggertsson 0 (1).
Varin skot: Pálmar Pétursson 18, Daníel Andr-
ésson 6
Hraðaupphlaup: 7 (Hermann 2, Ólafur, Benedikt,
Ásbjörn, Bjarki, Þorkell)
Fiskuð víti: 1 (Hermann)
Brottvísanir: 10 mínútur
Mörk Selfoss (skot): Atli Kristinsson 8 (15),
Ragnar Jóhannsson 8/3 (17/3), Árni Steinþórsson
4 (6), Guðni Ingvason 2 (3), Helgi Héðinsson 2
(8), Einar Héðinsson 1 (4), Guðjón Drengsson 0
(4), Eyþór Lárusson 0 (3)
Varin skot: Birkir Bragason 18
Hraðaupphlaupsmörk: 3 (Árni 2, Guðni)
Fiskuð víti: 3 (Atli 2, Ragnar)
Brottvísanir: 6 mínútur
Afturelding-Haukar 22-23 (12-12)
Mörk Aftureldingar (skot): Bjarni Aron Þórðarson
8 (15) , Þorkell Guðbrandsson 5 (5), Jón Andri
Helgason 2 (3), Arnar Theodórsson 2 (3), Ásgeir
Jónsson 2 (2), Reynir Ingi Árnason 1( 1), Hrafn
Ingvarsson 1 (3), Jóhann Jóhannsson 1 (4)
Varin skot: Hafþór Einarsson 15.
Hraðaupphlaupsmörk: 1 (Hrafn Ingvarsson)
Fiskuð víti: 4 (Ásgeir Jónsson 2,Þorkell Guð-
brandsson, Jón Andri Helgason)
Brottvísanir: 8 mínútur
Mörk Hauka (skot): Björgvin Þór Hólmgeirsson
10 (18), Guðmundur Árni Ólafsson 4 (9), Þórður
Rafn Guðmundsson 4 (7), Freyr Brynjarsson
2 (2), Heimir Óli Heimisson 1 (3) Stefán Rafn
Sigurmannsson 1 (5), Einar Örn Jónsson 1(1).
Varin skot: Birkir Ívar Guðmundsson 5 (11), Aron
Rafn Eðvarðsson 4 (12).
Hraðaupphlaupsmörk: 2 (Heimir Óli, Guðmundur
Árni)
Fiskuð víti: 4 (Heimir Óli 3, Freyr Brynjarsson 1)
Brottvísanir: 16 mínútur
Valur-HK 28-33
ÚRSLIT
Fólk á ekki að taka lán fyrir
öðru en húsnæði og menntun
- Pétur Blöndal ræðir um
viðfangsefnin í pólitíkinni og
útlistar sínar leiðir út úr vandanum.
Ekkert feimnismál
- Sífellt fleiri karlar fara í ófrjósemis-
aðgerðir.
Harpa er hættulegur staður
- Dr. Dragan Klaic segir að opinber
menningarstarfsemi sé hverju
lýðræðissamfélagi nauðsynleg en
núverandi fyrirkomulag sé staðnað og
úrelt.
„Gerrard og Torres eru
toppnáungar“
- Guðlaugur Victor Pálsson og
Kristján Gauti Emilsson um lífið
hjá Liverpool.
Arkitektúr á heimsmælikvarða
- Íslensk danska arkitektastofan
KRADS atkvæðamikil á
alþjóðavettvangi.
HANDBOLTI „Við byrjum þetta vel og
erum á fínu skriði. Við vissum að
ef við myndum spila okkar besta
leik og þeir sinn besta þá myndum
við vinna,“ sagði Pálmar Péturs-
son, markvörður FH, eftir að liðið
vann Selfoss á heimavelli sínum í
gær 31-25.
Hafnarfjarðarliðið er með fullt
hús að loknum þremur umferðum
og hefur unnið alla leiki sína ansi
sannfærandi.
„Við erum mjög yfirvegaðir en
samt vel stemmdir. Markmið okkar
eru skýr og við möllum þetta bara
fínt,“ sagði Pálmar sem varði 18
skot í leiknum. „Selfyssingar eru
með fínt lið og þeir keyra enda-
laust á mann.
Meðan önnur lið hefðu kannski
hætt eftir að hafa lent einhverjum
tíu mörkum undir þá halda þeir
áfram og maður getur aldrei leyft
sér að slaka á.“
Leikurinn byrjaði með mikilli
baráttu og nýliðarnir frá Selfossi
sáu til þess að jafnræði var með
liðunum fyrstu tíu mínúturnar.
Þegar staðan var 4-4 kom mjög
slæmur kafli hjá gestunum sem
voru full ragir.
Næstu fimm mörk voru frá FH-
ingum þrátt fyrir að þeir voru um
tíma einum færri.
Eftir þetta var í raun aldrei
spurning hvernig leikurinn færi.
FH-ingar leiddu með sex mörk-
um í hálfleik og það var einnig
munurinn á liðunum í leikslok.
Selfoss reyndist engin fyrirstaða
fyrir Hafnarfjarðarliðið sem hefði
getað unnið stærri sigur en slakaði
á undir lokin.
Stemningin er mikil hjá FH,
bæði innan sem utan vallar en
áhorfendur létu vel í sér heyra í
gær. „Það fylgir oft þegar gengur
vel. Þá er bæði gaman í klefanum
og stúkunni. Liðsheildin er flott,
grunnurinn er frá því í fyrra en
svo skemmir ekki fyrir að fá Loga
[Geirsson] inn í þetta. Hann er
leiðtogi innan vallar sem utan,“
sagði Pálmar.
Næsta verkefni hjá FH-ingum
er bikarleikur gegn Völsungi á
Húsavík en þar er Pálmar uppal-
inn. „Ég hef eiginlega ekki hugs-
að um annað síðan bikardráttur-
inn fór fram. Ég er því gríðarlega
ánægður með að hafa náð að klára
síðustu leiki,“ sagði Pálmar.
„Ég hlakka alltaf til að spila en
þetta er algjörlega sérstök gulrót
fyrir mig. Ég held að ég hafi verið
sá eini sem var ánægður með að
taka Húsavíkurferð. En ég býst
við fullri höll, hörku stemningu
og flottum leik. Ég spái því að liðið
sem tekur þennan leik endi uppi
sem bikarmeistari!“
elvargeir@frettabladid.is
FH-vélin mallar áfram
FH-ingar halda áfram á sömu braut í N1-deild karla en þeir áttu ekki í miklum
vandræðum með Selfoss í gær. Eftir tíu mínútur var leikurinn eign FH-inga.
STERKUR Ásbjörn Friðriksson átti fínan
leik. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
ÖLL SUND LOKUÐ FH-ingar hleyptu nýliðum Selfoss ekki upp með neitt í Kaplakrika í
gær. FH-ingar ósigraðir á toppi N1-deildarinnar. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
HANDBOLTI Íslandsmeistararnir í
Haukum unnu góðan sigur á nýlið-
um Aftureldingar, 22-23, í mikl-
um háspennuleik í gærkvöldi.
Björgvin Hólmgeirsson skoraði
sigurmarkið þegar sjö sekúndur
voru eftir af leiknum.
Stemningin í Mosfellsbæ var
með hreinum ólíkindum eins og
svo oft áður en það dugði ekki til
fyrir heimamenn að þessu sinni
þó svo þeir hafi aldrei gefist upp
í leiknum.
„Þetta voru tvö virkilega góð
stig,“ sagði Björgvin Hólmgeirs-
son, hetja Hauka, eftir leikinn.
„Það verður gríðarlega erfitt
fyrir lið að koma hingað og ná í
stig. Við spiluðum langar og skyn-
samar sóknir og náðum að koma
boltanum í netið á réttum augna-
blikum.
Í lokin var bara stillt upp í
ákveðið kerfi þar sem ég átti að
skjóta og ég negldi boltanum í
netið. Þetta var frábær sigur fyrir
okkur eftir að hafa drullað vel á
okkur í síðustu umferð,“ sagði
Björgvin ánægður eftir leikinn en
hann skoraði tíu mörk í leiknum.
Gunnar Andrésson, þjálfari Aft-
ureldingar, var virkilega svekkt-
ur eftir leikinn enda fengu hans
menn engin stig þrátt fyrir hetju-
lega baráttu.
„Þetta var grátlegt hérna í lokin.
Mér fannst við líklegir til þess að
vinna leikinn um miðjan seinni
hálfleik þegar við vorum komn-
ir þremur mörkum yfir. Síðan
kemur slæmur kafli hjá okkur og
við náum ekki að skora í sjö mínút-
ur. Það var hreinlega of dýrt fyrir
okkur þegar upp var staðið.“ - sáp
Íslandsmeistarar Hauka sluppu með skrekkinn:
Björgvin bjargaði
Haukum fyrir horn
TVÖ STIG Heimir Óli og félagar prísuðu
sig sæla með stigin tvö í gær.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN