Fréttablaðið - 16.10.2010, Qupperneq 4
4 16. október 2010 LAUGARDAGUR
Fréttablaðið birti 24. september síð-
astliðinn frétt af dómi yfir Sveinbirni
Tryggvasyni, sem Hæstiréttur dæmdi
til tveggja ára fangelsisvistar fyrir að
hafa tælt unglingsstúlku til að hafa
við sig kynferðismök nánast daglega
í fjögur ár, með gjöfum og með því
að nýta sér yfirburði sína gagnvart
henni vegna aldurs- og þroskamunar.
Í fréttinni sagði: „Síðan fór hann að
beita hana ýmiss konar hrottalegri
kynferðislegri misneytingu og kúgun,
meðal annars með því að læsa hana
inni í herbergi í fjóra klukkutíma
þegar hann var ósáttur við hana.“
Þessi málsgrein var byggð á frásögn
stúlkunnar eins og hún var rakin í
dómi Héraðsdóms, en ekki niður-
stöðum dómsins eins og ætla mátti
af samhengi fréttarinnar. Ekki verður
ráðið af dómnum að Sveinbjörn
hafi verið sakfelldur fyrir þessi atriði.
Beðist er afsökunar á missögninni.
Ranghermt var í blaði gærdagsins að
eigandi íbúðar við Marbakkabraut
hefði gengist við kannabisræktun í
íbúðinni. Hið rétta er að það var leigj-
andi í íbúðinni sem það gerði.
LEIÐRÉTT
KÖNNUN Aðeins 7,5 prósent þeirra sem
afstöðu tóku í könnun markaðsrannsókna-
fyrirtækisins MMR sögðust bera frekar
mikið eða mjög mikið traust til Alþingis.
Hins vegar sögðu 75,2 prósent bera frekar
eða mjög lítið traust til þingsins.
Traustið hefur hrunið af þinginu, þó að
ekki hafi verið úr sérlega háum söðli að falla.
Í sambærilegri könnun MMR sem gerð var í
maí sögðust 10,5 prósent treysta Alþingi, og
átján prósent um miðjan september í fyrra.
Mun fleiri bera traust til stjórnarandstöð-
unnar en ríkisstjórnarinnar, þó að traust á
báðum mælist lágt. Alls sögðust 17,8 pró-
sent treysta stjórnandstöðunni, sem er tæp-
lega fjögurra prósentustiga aukning frá því í
maí. Hins vegar sögðust 10,9 prósent treysta
ríkis stjórninni, og hefur traustið dregist
saman um ríflega átta prósentustig síðan í
könnuninni í maí.
Lögreglan nýtur sem fyrr mikils trausts.
Alls sögðust 80,9 prósent treysta lögregl-
unni.
Ríflega helmingur, 52,1 prósent, sagðist
treysta Ríkisútvarpinu. Það er nokkru meira
traust en fjölmiðlar almennt njóta, sem er
aðeins um 14,8 prósent.
Um var að ræða netkönnun sem gerð var
dagana 5. til 8. október. Þátttakendur voru
830, valdir úr hópi álitsgjafa MMR. - bj
Traust landsmanna á stjórnarandstöðunni eykst en færri treysta ríkisstjórninni samkvæmt könnun MMR:
Aðeins 7,5% landsmanna treysta Alþingi
TRAUST Stór hópur mótmælti við Alþingi nýlega. Fólk
treystir lögreglunni sem stóð vörð við þinghúsið mun
betur en þingmönnunum. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
VEÐURSPÁ
Alicante
Basel
Berlín
Billund
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
Mallorca
New York
Orlando
Ósló
París
San Francisco
Stokkhólmur
HEIMURINN
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
23°
14°
8°
9°
10°
7°
8°
8°
24°
13°
22°
14°
27°
7°
15°
19°
6°Á MORGUN
Strekkingur með NV- og
SA-strönd annars hægari.
MÁNUDAGUR
Allhvasst með A-strönd
annars hægari vindur.
2
3 5
1
0
8
6 6
7
8
10
9
9
9 9
9
10
9
10
9
6
9
9
11
7
6 5
4
3
7
4
8
KÓLNANDI
Á morgun fer veð-
ur kólnandi þegar
vindur snýst til
norðlægrar áttar og
á mánudag má bú-
ast við að hiti verði
rétt við frostmark
um landið norð-
anvert. Þá lítur út
fyrir snjókomu eða
slyddu norðan-
og austanlands á
mánudag.
Ingibjörg
Karlsdóttir
veður-
fréttamaður
EFNAHAGSMÁL Horfur eru á að bænd-
um fækki mikið á næstunni, að því
er segir í efnahagstímaritinu Vís-
bendingu. Fækkunin er sögð afleið-
ing breyttra aðstæðna í búrekstri
og viðbragða bændastéttarinnar
við þeim.
„Eitt af því sem veldur því að
íslenskir bændur eiga erfitt upp-
dráttar er minnkandi neysla á
mörgum landbúnaðarafurðum,“
segir í Vísbendingu. Bændur eru
sagðir hafa brugðist við breyttum
aðstæðum með því að stækka bú
sín, kaupa vélar og bæta húsakost.
Bent er á að sé horft til sauðfjár-
og kúabúa saman komi í ljós að
stór bú framleiði að jafnaði þrjátíu
sinnum meira en þau litlu. Frá þeim
fimmtungi búanna sem minnst
framleiði komi aðeins 1,8 prósent
heildarafurða, en stærsti fimmt-
ungurinn framleiði 54 prósent
heildarafurða.
„Líklegt er að á minnstu býlun-
um verði hefðbundnum landbún-
aði fyrst hætt og því muni bænd-
um fækka mikið á næstunni,“ segir
í umfjöllun Vísbendingar.
Þá er sagt áhyggjuefni hversu
erfiður reksturinn hafi verið bænd-
um undanfarið og mikið tap bæði
í sauðfjár- og nautgriparækt árið
2008. „Í báðum tilvikum er skýr-
inga að leita í miklum fjármagns-
kostnaði, en skuldir bænda stór-
hækkuðu það ár vegna gengisfalls
krónunnar.“ Ólíklegt er talið að
meðalbú standi undir fjármagns-
kostnaði á næstu árum miðað við
að afkoma fyrir fjármagnsliði
verði svipuð á næstu árum og árið
2008.
Í greininni er allítarlega farið
yfir þróun landbúnaðar hér á landi
frá upphafi 20. aldar. „Í Bænda-
blaðinu mátti nýlega sjá þær upp-
lýsingar að finnskum bændum
hefði fækkað um helming frá því að
landið gekk inn í Evrópusambandið.
Ekki er ástæða til þess að efa að
þær upplýsingar séu réttar,“ segir í
Vísbendingu en um leið er bent á að
á sama tíma muni norskum bænd-
um hafa fækkað heldur meira. Þá
virðist þróunin hafa verið svipuð
hér á landi.
Fækkun starfa í hefðbundnum
landbúnaði er sögð langtímaþróun
í öllum vestrænum löndum og ólík-
leg til að stöðvast, hvort sem Íslend-
ingar verði utan eða innan ESB. Þá
er vísað í tölur Bændasamtakanna
um hækkandi meðalaldur búfjáreig-
enda, sem sé nú 54 ár, en hafi verið
52 ár fyrir nokkrum árum. „Þróun-
in virðist vera svipuð í öllum sýslum
landsins.“ olikr@frettabladid.is
RÉTTIR Í REYKJAHLÍÐ Í nýrri grein í Vísbendingu er bent á að þótt framleiðni í
íslenskum landbúnaði sé minni en í heitari löndum ráði ekki loftslagið eitt. Norskar
kýr gefi til dæmis af sér meiri nytjar en íslenskar. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Útlit fyrir töluverða
fækkun í bændastétt
Ólíklegt er að meðalbú standi undir fjármagnskostnaði á næstu árum verði
afkoma svipuð og síðustu ár. Bændum hefur fækkað um helming í Finnlandi á
tíu árum, meira í Noregi og svipað hér. Þróunin virðist svipuð í öllum sýslum.
UNGVERJALAND, AP Íbúar ung-
verska bæjarins Kolontar eru á
leið heim aftur eftir að eðjuflóð
skall á bænum í síðustu viku.
Stífla við úrgangslón álverk-
smiðju í nágrenninu brast og rauð
eitureðja flæddi um nærliggjandi
sveitir.
Íbúarnir hafa hafst við í
íþróttahúsi í nágrannabænum
Ajka síðan flóðið reið yfir. Níu
létust í flóðinu og um fimmtíu
eru enn á sjúkrahúsi.
Umhverfisverndarsamtökin
Greenpeace vöruðu við því að of
snemmt gæti verið fyrir íbúa að
snúa aftur, ekki hefði verið geng-
ið nægilega vel úr skugga um að
svæðið væri öruggt. - mþl
Hreinsunarstarfi miðar áfram:
Íbúar snúa heim
eftir eðjuflóð
EITUREÐJAN HREINSUÐ Búið er að reisa
vegg við Kolontar sem vernda á bæinn
fyrir frekari eðjuflóðum. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
DÓMSMÁL Kona hefur verið dæmd
í tólf mánaða fangelsi, þar af níu
á skilorði, fyrir að stinga fyrr-
verandi unnusta sinn ítrekað
með hnífi, þar sem hann lá undir
sæng á heimili sínu í Reykjavík.
Atvikið átti sér stað á nýársdag
2010. Konan játaði sök sína greið-
lega fyrir Héraðsdómi Reykja-
víkur. Dómurinn leit til þess, svo
og hins að áverkar mannsins voru
ekki miklir.
Konan hafði ekki áður gerst
sek um ofbeldisbrot. Samkvæmt
sakavottorði hafði hún verið sekt-
uð fimm sinnum fyrir brot gegn
umferðar-, fíkniefna- og hegning-
arlögum, síðast árið 2004. - jss
Tólf mánaða fangelsi:
Stakk fyrrum
unnusta ítrekað
Líklegt er að á
minnstu býlunum
verði hefðbundnum landbún-
aði fyrst hætt og því muni
bændum fækka mikið á
næstunni.
ÚR UMFJÖLLUN VÍSBENDINGAR
SVISS Skemmdir voru unnar
á hurð ræðismannsskrifstofu
Íslands í Bern í Sviss aðfaranótt
fimmtudags. Orðin „free rvk9“
voru úðuð með málningu á hurð-
ina og lásinn límdur aftur.
Ljóst þykir að skemmdar-
verkin hafi verið unnin í mót-
mælaskyni við ákærur á hendur
nímenningunum sem sakaðir eru
um árás á Alþingi í árslok 2008.
Ekki varð mikið tjón. - sv
Úðað á skrifstofu ræðismanns:
Stuðningur við
nímenninga
AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Hendrik Sigurðsson hendrik@frettabladid.is, Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Laila Awad laila@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is, Sigmundur Halldórsson sigmundur@frettabladid.is
ALLT SÍMI 512-5402: Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is, Henný Árnadóttir henny@365.is, Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5016: Sigríður Hallgrímsdóttir sigridurh@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynurs@365.is, Bjarni Þór Sigurðsson bthor@365.is, Benedikt Freyr Jónsson benediktj@365.is
RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Sigurlaug Aðalsteinsdóttir sigurlaug@365.is, Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Guðný Gunnlaugsdóttir gunny@365.is
GENGIÐ 15.10.2010
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
206,6864
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
110,34 110,86
177,19 178,05
155,27 156,13
20,821 20,943
19,183 19,295
16,808 16,906
1,3573 1,3653
174,3 175,34
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
Málverkasýning
Eddu Guðmundsdóttur
Árstíðir
Stendur yfir á Geysi Bistro, Aðalstræti 2
Til loka nóvember