Fréttablaðið - 16.10.2010, Blaðsíða 50
16. október 2010 LAUGARDAGUR6
Hæfniskröfur: Starfsmaður þarf að hafa góða kunnáttu í HTML, CSS, Visual Studio og Photoshop.
Reynsla af vef- og efnisstjórnun skilyrði. Einnig reynsla og/eða áhugi á markaðs- og auglýsinga-
málum. Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst. Áhugasamir sendi inn ferilskrá með
upplýsingum um menntun og fyrri störf á netfangið starf@nova.is fyrir 24. október.
Við leitum að öflugum einstaklingi sem hefur áhuga á að ná árangri í starfi og efla okkar hóp.
Um er að ræða mjög fjölbreytt starf í markaðsdeild Nova, m.a. HTML og CSS vinnu, vefþróun við
vefi Nova ásamt ýmsum öðrum verkefnum tengdum vef og markaðsmálum fyrirtækisins.
Starfsmaður í vefþróun,
HTML og CSS í markaðsdeild Nova
Verslanir Nova eru í Kringlunni, Smáralind, Lágmúla,
MM Selfossi og á Glerártorgi Akureyri | Þjónustuver 519 1919
www.nova.is | m.nova.is | Facebook | Twitter
Stærstiskemmtista›u
r
í heimi!
Sæktu um
fyrir
á starf@nova.is
okt.
24.
d
a
g
u
r
&
s
t
e
in
i
Viltu vinna á stærsta
skemmtistað í heimi?
Forstöðumaður fiskveiðistjórnunarsviðs Fiskistofu
Fiskistofa er þjónustu- og eftirlitsstofnun sem annast stjórn og eftirlit með veiðum fiskistofna í sjó og fersku vatni. Hlutverk fiskveiðistjórnunarsviðs Fiskistofu
er m.a. að annast útgáfu veiðileyfa og úthlutun aflaheimilda ásamt því að fylgjast með aflaheimildastöðu og staðfesta flutning aflaheimilda milli fiskiskipa.
Fiskveiðistjórnunarsvið annast eftirlit með fiskveiðum í íslenskri lögsögu og veiðum íslenskra skipa utan lögsögunnar, veitir fiskvinnslustöðvum og fiskmörkuðum
leyfi til vigtunar sjávarafla og hefur eftirlit með að afli sé réttilega veginn og skráður. Fiskveiðistjórnunarsvið hefur einnig eftirlit með fiskeldi og hvalveiðum.
Nánari upplýsingar má finna á www.fiskistofa.is.
Laus er til umsóknar staða forstöðumanns fiskveiðistjórnunarsviðs Fiskistofu á aðalskrifstofunni að Dalshrauni 1 í Hafnarfirði. Fiskveiðistjórnunarsvið er stærsta
svið stofnunarinnar með 44 starfsmenn í 7 starfsstöðvum víðs vegar um landið. Forstöðumaður fiskveiðistjórnunarsviðs heyrir beint undir fiskistofustjóra.
Um fullt starf er að ræða og æskilegt að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Helstu verkefni:
● Stjórnun fiskveiðistjórnunarsviðs og
daglegur rekstur þess
● Ábyrgð á starfsemi og verkefnum
sviðsins
● Þátttaka í stefnumótun og daglegri
stjórnun Fiskistofu
● Samskipti við opinbera aðila vegna
starfsins s.s. sjávarútvegs- og
landbúnaðarráðuneytið
● Samskipti við innlenda og erlenda
aðila vegna verkefna sviðsins
Menntunar- og hæfniskröfur:
● Lögfræðipróf eða annað
háskólapróf sem nýtist í starfi
● Stjórnunarreynsla
● Leiðtogahæfileikar og lipurð í
mannlegum samskiptum
● Frumkvæði og metnaður til að ná
árangri í starfi
● Gott vald á íslensku og ensku og
færni til að tjá sig í ræðu og riti
Æskilegt er að umsækjendur hafi þekkingu á fiskveiðistjórnun og reynslu af stjórnsýslu. Þekking á
íslenskum sjávarútvegi er einnig æskileg.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Eyþór Björnsson, fiskistofustjóri og Inga Þóra Þórisdóttir,
forstöðumaður starfsmanna- og gæðasviðs í síma 569 7900.
Umsóknir er hafa að geyma ítarlegar upplýsingar um menntun, fyrri störf, meðmælendur og
annað sem máli kann að skipta sendist á netfangið ingath@fiskistofa.is eða með bréfi til Fiskistofu,
Dalshrauni 1, 220 Hafnarfirði merktar “Forstöðumaður”
Umsóknarfrestur er til og með 1. nóvember 2010. Laun taka mið af kjarasamningi ríkisins við
viðeigandi stéttarfélag. Samkvæmt jafnréttisstefnu Fiskistofu eru konur jafnt sem karlar hvattar til að
sækja um.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.
- stuðningsaðili 2010
FASTEIGNASALI -
MILLJÓN Á MÁNUÐI
Sendið starfsferilsskrá á axel@domusnova.is
Turninum 12. hæð - Smáratorgi 3, 201 Kópavogi