Fréttablaðið - 16.10.2010, Blaðsíða 38
heimili&hönnun2
● SYKURSÆT og frumleg loftljós voru kynnt á
hönnunar- og húsgagnasýningunni í Mílanó á síð-
asta ári en ljósin eru hönnun slóvenska hönnuðarins
Nika Zupanc fyrir Moooil. Ljósin, sem kallast „Lolita“,
eru bjöllulaga og í mjúkum litatónum, meðal annars
ljósbleik og ljósfjólublá og hafa síðasta árið vakið
mikla athygli.
● AÐDÁENDUR JAMIE OLIVER
sem langar að Oliver-væða eldhúsið
sitt geta glaðst yfir vefverslunum nútím-
ans. Á heimasíðu matgæðingsins er rekin verslun
með úrvali ótal fallegra smáhluta í eldhúsið; alls
kyns krúsir, bollar, hnífapör, mortél og fleira. Slóð-
in er jamieoliver.com/jme/
● FERM LIVING er danskt hönnunar-
fyrirtæki sem hefur slegið í gegn með
skemmtilegum innanstokksmunum, gjarnan
með grafískum mynstrum og myndum. Púðar,
vegglímmiðar og borðbúnaður eru meðal þess
sem fyrirtækið hannar. Epal hefur nú ný hafið
sölu á hlutum frá Ferm Living
og meðal þess sem hægt
er að fá í versluninni eru
dýralímmiðar í barnaherbergið, bollar og púðar.
● STEFANO GIOVANNI ætti að vera Íslending-
um að góðu kunnur en svokallaðir „bombó“-
stólar hönnuðarins slógu í gegn hérlendis fyrir
nokkrum árum. Stólar hans sem fóru í fram-
leiðslu á síðasta ári virðast ætla að slá sambæri-
leg met erlendis en stólarnir bera skemmtileg-
an titil, „Vanity chair“, sem kalla mætti pjatt- eða
hégómastóla upp á íslensku. Stólarnir fást í alls
kyns litum en grind þeirra er hálfgegnsæ.
● Forsíðumynd: Valgarður Gíslason tók mynd af
Kristjáni Bjarnasyni smið á heimili sínu. Útgáfufélag:
365 miðlar ehf., Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík, s. 512 5000
Ritstjórar: Roald Eyvindsson roald@frettabladid.is og
Sólveig Gísladóttir solveig@frettabladid.is Auglýsingar:
Hlynur Þór Steingrímsson s. 512 5439 Útlitshönnuður:
Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is.
Þykkt og stórt túrkíslitt
handklæði, 100x150 cm.
Rúmfatalagerinn,
Smáratorgi 1.
Verð: 1.995
krónur.
Eldrauð sápu-
pumpa úr hinni
skemmtilegu Zone-
heimilislínu. Húsgagna-
höllin, Bíldshöfða 20.
Verð: 990 krónur.
Röndótt og
marg litt sturtu-
hengi, ljómandi til
að lífga upp á lit-
laust baðherbergi.
IKEA, Kauptúni 4.
Verð: 1.790 krónur.
„Það er að sjálfsögðu mjög skemmti-
legt að vera með í þessum góða hópi
og um leið mikil viðurkenning á
okkar starfi,“ segir Kristján Örn
Kjartansson, einn eigenda KRADS,
sem um er fjallað í nýrri bók þar
sem kynntar eru til sögunnar 45
ungar og upprennandi arkitekta-
stofur víðs vegar í heiminum.
Bókin kallast Worldwide Archit-
ecture – The Next Generation og er
gefin út af ítalska forlaginu Wolters
Kluwer í tengslum við Tvíæring-
inn í Feneyjum. Þar lét KRADS að
sér kveða og kynnti verkefni stof-
unnar í veglegri veislu, sem hald-
in var í tilefni af útgáfu bókarinnar
í borginni við síkin. Kristján getur
þess að KRADS sé eina stofan í bók-
inni sem er fulltrúi tveggja landa,
Íslands og Danmerkur. „Við erum
nefnilega með stofur í báðum lönd-
um,“ útskýrir hann.
Óhætt er að segja að KRADS
hafi vakið mikla athygli á
árinu, þar sem stofan var að
auki verðlaunuð á fjórða
alþjóðlega þríæringn-
um í Ósló. „Við lentum í
öðru sæti í hugmynda-
samkeppninni Man
Made Reformulate
fyrir tillögu að því
hvernig mætti lífga
upp á bílastæða-
húsin í Ósló. Okkur
þótti það ekki síður
ánægjulegt,“ segir
Kristján og getur þess að á dög-
unum hafi stofunni borist í hendur
veglegur bæklingur sem inniheldur
verðlaunatillögurnar, þar á meðal
frá KRADS.
Kristján segir þessa
viðurkenningu og
fleiri afrakstur af
mikilli hugmynda-
vinnu sem stofan
hafi farið í í kjölfar-
ið á samdrætti í bygg-
ingaiðnaði. „Við ákváð-
um að setja mikinn kraft
í að skapa stofunni ný og
spennandi verkefni. Okkur
hefur reyndar reitt ágætlega af
undanfarið þar sem við erum frem-
ur ung stofa, með lítinn mannskap
og útibú að auki í Danmörku þar
sem markaðurinn hefur ekki orðið
eins illa úti í kreppunni. Þar eru
verkefnin aðeins fleiri en þess utan
held ég að almennt sé farið að birta
aðeins til í þessum bransa,“ segir
hann og getur þess að stofan hafi
mörg járn í eldinum.
„Við erum nýbyrjaðir að vinna
með hönnuðum í New York að
spennandi verkefni í Istanbúl, sem
felur meðal annars í sér innanhús-
hönnun fyrir kvikmyndasal, hljóð-
stúdíó og útsýnisbar. Þá vorum við
með vinnustofu fyrir nemendur
arkitektadeildar LHÍ í vor, í sam-
vinnu við skólann og LEGO Concept
Lab. Við verðum með vinnustofuna í
Den Skandinaviske Designhøjskole
í Randers í Danmörku í nóvember
og ætlum að kynna hana í fleiri
skólum í Evrópu og Bandaríkjun-
um, svo fátt eitt sé nefnt.“
- rve
Á heimsmælikvarða
● Íslensk-danska arkitektastofan KRADS er á meðal upprennandi arkitektastofa sem
fjallað er um í nýrri bók sem hefur verið gefin út í tengslum við Tvíæringinn í Feneyjum.
„Við ákváðum að setja mikinn kraft í að skapa stofunni ný og spennandi verkefni,“
segir Kristján hjá KRADS, sem hefur vakið alþjóðlega athygli á árinu. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Kristján segir KRADS vera með mörg járn í eldinum. „Við höfum klárað okkar fyrsta einbýlishús í Danmörku, svokallað Villa G í
Randers á Jótlandi, og erum að hanna grunnskóla og íbúðarblokkir þar í landi.“
Nýtt undir sólinni
GÓÐ KAUP … fyrir baðherbergið
Worldwide
Architecture
er nú fáanleg
á netinu.
AÐVENTA 3
Aðventustemning, jólaglögg og hunangskökuilmur. Jólamarkaðir Þýskalands eru
víðfrægir, jólastemning er í borg og bæ. Ferðin hefst á flugi til Frankfurt en síðan
verður ekið til Niflungaborgarinnar Worms þar sem við gistum í eina nótt. Eftir
skoðunarferð um vinalegu borgina Worms er haldið til næstelstu borgar
Þýskalands, Kempten, en þess má geta að borgin er jafnframt heimaborg
fararstjórans Ingu og þekkir hún því þar hvern krók og kima. Förum í skoðunarferð
um borgina og á jólamarkaðinn, en auk þess í dagsferð til borgarinnar Augsburg
sem er einn áfangastaða Rómantísku leiðarinnar. Fjallabærinn Oberstdorf verður
sóttur heim, en þar væri upplagt að taka kláf upp á Nebelhorn og njóta
stórkostlegs útsýnis yfir Alpana. Eftir ánægjulega daga í Kempten höldum við til
Nürnberg þar sem elsti jólamarkaður Þýskalands er. Gistum þar í 2 nætur og
njótum dagsins í gömlu ríkisborginni áður en flogið er heim á leið.
Fararstjóri: Inga Ragnarsdóttir
Verð: 162.400 kr. á mann í tvíbýli. Örfá sæti laus!
Innifalið: Flug, skattar, hótelgisting, allar skoðunarferðir með rútu,
hálft fæði og íslensk fararstjórn. Spör
e
hf
.
s: 570 2790 www.baendaferdir.is
A L L I R G E T A B Ó K A Ð S I G Í B Æ N D A F E R Ð I R
Hálft fæði og allar skoðunarferðir innifaldar
29. nóvember - 6. desember
Aðventuferð
[ SÉRBLAÐ FRÉTTABLAÐSINS UM HÍBÝLI ]
heimili &
hönnun
október 2010
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Heimili Bítlanna
Húsgögn og munir í anda
sjöunda áratugarins. SÍÐA 6
KRADS á uppleið
Fjallað er um KRADS í
nýrri bók um upprennandi
arkitektastofur. SÍÐA 2
HANDLAGINN
HEIMILISFAÐIR
Heimili Kristjáns Brynjars Bjarna-
sonar og Erlu Bjargar Valgeirsdótt-
ur prýða heimasmíðuð húsgögn í
bland við gamalt og nýtt.
BLS. 4
Hágæða þvottavélar
Kolalaus mótor
Hljóðlátar og byggðar til að endast
OKTÓBER
TILBOÐ
Verð frá 119.990