Fréttablaðið - 16.10.2010, Blaðsíða 10
10 16. október 2010 LAUGARDAGUR
LISTAVERK Á SÝNINGU Sjálfsagt sýnist
hverjum sitt um þennan uppstoppaða
hund, sem sjá má á listsýningu í
London, með skilti sem á stendur: „Ég
er dauður.“ NORDICPHOTOS/AFP
Áfangastaðir
sumarið 2011
með ánægju
www.icelandexpress.is
Næsta sumar lítur vel út. Við verðum bókstaflega út um alla Evrópu og
gerum víðreist um Ameríku með flugi til Chicago, Boston, New York
og Winnipeg. Það verður því nóg að gera hjá starfsfólki Iceland
Express á næstunni. Vilt þú taka þátt í ævintýrinu?
Viltu vinna í háloftunum?
Framundan eru spennandi tímar hjá Iceland Express og því leitum
við að duglegu, skemmtilegu og samviskusömu fólki í störf flugliða.
Ef þú hefur stúdentspróf eða sambærilega menntun, talar ensku eins
og innfæddur, Norðurlandamál kinnroðalaust og getur bjargað þér
á þriðja tungumálinu, þá hvetjum við þig til að sækja um.
Flugliðar Iceland Express fást við fjölbreytt og skemmtileg
verkefni í líflegu starfsumhverfi. Gæti það verið rétta starfið
fyrir þig?
Umsóknarfrestur rennur út 25. október. Kynntu þér málið betur
á www.icelandexpress.is/jobs
Iceland Express leitar að flugliðum
Komdu um borð!
Okkur
bráðvantar
flugliða!
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
EFNAHAGSMÁL Umboðsmaður
skuldara, Ásta Sigrún Helga-
dóttir, fagnar þeim breytingum
sem Alþingi
samþykkti í
fyrradag um
greiðsluaðlögun
einstaklinga.
Þær séu mikil-
vægar.
Í breyting-
unni felst að
tímabund-
in frestun
greiðslna hefj-
ist þegar umsókn um greiðslu-
aðlögin hefur verið móttekin
hjá umboðsmanni skuldara, en
ekki þegar umsóknin er sam-
þykkt eins og áður var. Breyt-
ingin er afturvirk og mun ná til
allra umsókna sem umboðsmaður
hefur þegar tekið við. - sh
Umboðsmaður fagnar:
Greiðslur frest-
ast við umsókn
ÁSTA SIGRÚN
HELGADÓTTIR
MENNTAMÁL Meirihluti fulltrúa í
mannréttindaráði Reykjavíkurborg-
ar hefur lagt fram drög að ályktun
um samskipti leik- og grunnskóla
við trúfélög. Í drögunum er meðal
annars gert ráð fyrir að fermingar-
fræðsla skuli fara fram utan skóla-
tíma. Auk þess verða heimsóknir
starfsmanna trúar- og lífsskoðun-
arfélaga á frístundaheimili í leik og
grunnskóla óheimilar.
Mannréttindaráði hafa á liðn-
um árum borist fjöldi kvartana frá
foreldrum barna vegna aðkomu
trúar- og lífsskoðunarfélaga að
skólastarfi. Starfsmenn leik- og
grunnskóla hafa einnig óskað sér-
staklega eftir skýrum leiðbeining-
um frá borginni í þessum efnum.
Margrét Sverrisdóttir, formað-
ur mannréttindaráðs, segir að nú
sé reynt að koma til móts við þær
óskir sem og skerpa reglur til sam-
ræmis við mannréttindastefnu
borgarinnar.
Í skýrslu leikskóla- og mennta-
sviðs Reykjavíkurborgar frá 2007
segir meðal annars að í uppeldis-
og tómstundastarfi sé mikilvægt að
ganga ekki út frá því að allir aðhyll-
ist sömu trú þó svo hefðbundnar
trúarhátíðir lútersku kirkjunnar
séu haldnar hátíðlegar, svo sem jól
og páskar. - eh
Meirihluti mannréttindaráðs leggur til ályktun um samskipti trúfélaga og skóla:
Vilja banna trúboð í skólum
LOSNA ÞAU VIÐ TRÚBOÐIÐ? Verði álykt-
unin samþykkt mun trúboð í leik- og
grunnskólum heyra sögunni til.
FRÉTTABLAÐIÐ / ANTON
NÁTTÚRA Bæjaryfirvöld í Borgar-
byggð hafa ekki tekið ákvörðun
um hvort komið verði með bein-
um hætti að stofnun undirbúnings-
félags fyrir ferðaþjónustuverkefni
í Langjökli. Þau taka hins vegar vel
í hugmyndirnar og hafa veitt leyfi
til rannsókna á jöklinum.
Eins og Fréttablaðið hefur þegar
greint frá hafa ýmis ferðaþjónustu-
fyrirtæki, ásamt verkfræðistof-
unni Eflu, kynnt hugmyndir sínar
um að gera ísgöng og hella í Lang-
jökli til að höfða til ferðamanna.
Páll S. Brynjarsson, sveitarstjóri
Borgarbyggðar, segir í samtali við
Fréttablaðið að sveitarstjórn hafi
tekið jákvætt í hugmyndina eftir að
framkvæmdaaðilar kynntu verk-
efnið og því hafi verið samþykkt
að veita rannsóknarleyfi með fyr-
irvara um deiliskipulagsskyldu.
Samkvæmt kynningu með verk-
efninu er gert ráð fyrir að grafa
rannsóknargöng um 150 til 200
metra inn í ísinn, til að skera úr um
framtíðarmöguleika ganganna.
„Þetta eru afar áhugaverðar hug-
myndir og menn sjá mörg tækifæri
varðandi uppbyggingu á ferðaþjón-
ustu,“ segir Páll.
„En við erum að skoða það hvort
sveitarfélagið vilji eiga beina
aðkomu með því að taka þátt í
undirbúningsfélaginu.“ - þj
Bæjaryfirvöld í Borgarbyggð gefa leyfi fyrir rannsóknargöngum í Langjökli:
Jákvæð fyrir ísgangaverkefni
ÍSHELLIR Ferðaþjónustuaðilar hafa fengið jákvæð viðbrögð við hugmyndum um gerð
ísganga í Langjökli. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM Styrkir til náms í Japan
Watanabe-styrktarsjóðurinn við
Háskóla Íslands veitir styrki til
háskólanáms í Japan. Byrjað er
að taka við umsóknum um fyrstu
styrkina. Sjóðurinn var stofnaður í
september 2008 með tæplega 300
milljóna króna framlagi.
MENNTAMÁL
Happdrætti Blindrafélagsins
Blindrafélagið, samtök blindra og
sjónskertra á Íslandi, fjármagnar
starfsemi sína að miklu leyti með fé
úr happdrætti sínu. Allir landsmenn á
aldrinum 30 til 88 ára munu á næstu
dögum fá miða í heimabankann sinn.
HAPPDRÆTTI
Íslendingar um 320 þúsund
Um 318.000 manns bjuggu hérlendis
í lok þriðja ársfjórðungs þessa árs.
Engin fjölgun var frá fyrri ársfjórðungi.
Erlendir ríkisborgarar eru 21.500. Á
höfuðborgarsvæðinu búa 201.900
manns, eða 65 prósent þjóðarinnar.
MANNFJÖLDI
VIÐSKIPTI Ríkisendurskoðun telur
að sameining hlutafélaganna
Keflavíkurflugvöllur ohf. og
Flugstoðir ohf. í Isavia ohf. hafi
verið góð ákvörðun og markmið
sameiningar hafi verið skýr.
Ríkisendurskoðun telur að fjár-
hagsleg áhrif sameiningarinn-
ar hafi ekki verið metin á heild-
stæðan hátt, né heldur kostnaður
af henni. Þá hafi vegna óvissu
í rekstrarumhverfi ekki verið
gengið frá langtímaáætlun fyrir
Isavia áður en það tók til starfa.
- sv
Ríkisendurskoðun um Isavia:
Fjárhagsleg
áhrif vanmetin