Fréttablaðið - 16.10.2010, Blaðsíða 54
16. október 2010 LAUGARDAGUR10
Starfssvið
» Forritun stórra rauntímakerfa
fyrir neyðarþjónustu
» Forritun landupplýsingakerfa
» Þróun og forritun á kerfum Samsýnar
Menntunar- og hæfniskröfur
» Háskólamenntun í tölvunarfræði
eða verkfræði
» Reynsla í C# forritun
» Reynsla í forritun gagnagrunnskerfa
» Frumkvæði, sjálfstæði og góðir
samskiptahæfileikar
Forritari
Við leitum að forritara
Umsóknarfrestur er til og með 1. Nóvember.
Ný störf
á sunnanverðum
Vestfjörðum!
Á sunnanverðum Vestfjörðum búa ríflega 1300 manns í tveimur sveitarfélögum, Vesturbyggð og Tálkna-
fjarðarhreppi. Stærstu byggðakjarnarnir eru: Patreksfjörður, Tálknafjörður og Bíldudalur.
Í sveitarfélögunum eru mjög góðir grunnskólar, leikskólar, tónlistarskólar og framhaldsdeild Fjölbrautar- skóla
Snæfellinga. Þrjú nýleg íþróttahús eru á svæðinu, tvær mjög góðar sundlaugar og frábær líkamsræktar-
aðstaða. Öflugt íþróttastarf er í sveitarfélögunum sem og menningar- og tónlistarstarf. Auðvelt er njóta
útivistar þar sem ægifögur náttúra Vestfjarða er alls staðar innan seilingar, s.s. Rauðasandur, Látrabjarg,
Ketildalir og Barðaströnd.
Samgöngur innan svæðisins eru mjög góðar. Flugfélagið Ernir flýgur alla daga nema laugardaga til Bíldudals
frá Reykjavík (tekur 30 mínútur) og Breiðafjarðarferjan Baldur fer alla daga nema laugardaga yfir vetrar-
tímann frá Stykkishólmi að Brjánslæk.
Mannlífið er gott og íbúarnir eru samstíga um að bjóða upp á kröftug, samheldin og framsækin sveitarfélög.
Forstöðumaður tæknideildar
í Vesturbyggð og Tálkna-
fjarðarhreppi
Staða forstöðumanns tæknideildar er nýtt
og áhugavert starf í Vesturbyggð og Tálkna-
fjarðarhreppi. Forstöðumaður verður yfir-
maður skipulags- og tæknimála og mun hafa
yfirumsjón með framkvæmdum og viðhaldi
á vegum sveitarfélaganna.
Helstu verkefni:
• Stefnumótun og gerð fjárhagsáætlana
fyrir tilheyrandi málaflokka.
• Framkvæmdaáætlanir.
• Viðhaldsáætlanir.
• Sorpmál.
• Skipulags- og byggingarmál.
• Götur, fráveitur, vatnsveitur og umferðar-
mál.
• Hafnarmannvirki.
• Eftirlit með eignum sveitarfélagsins.
Við leitum að vel menntuðum og duglegum
einstaklingi. Lögð er áhersla á frumkvæði og
sjálfstæði í starfi, sem og góða samskipta-
hæfni. Gerð er krafa um háskólamenntun og
starfsreynslu á sviði byggingarverkfræði,
byggingartæknifræði eða aðra sambærilega
menntun og reynslu sem uppfyllir skilyrði 48.
og 49. gr. skipulags- og byggingarlaga.
Nánari upplýsingar veitir Ásthildur Sturlu-
dóttir bæjarstjóri í síma 450 2300 eða
netfanginu baejarstjori@vesturbyggd.is.
Umsóknarfrestur er til 8. nóvember 2010.
Líffræðingur hjá Náttúrustofu
Vestfjarða
Náttúrustofa Vestfjarða óskar eftir að ráða
líffræðing í fjölbreytt starf með áherslu á
sjávarrannsóknir. Starfið verður í starfsstöð
Náttúrustofunnar í Vesturbyggð.
Umsóknir með upplýsingum um menntun og
starfsferil sendist til Náttúrustofu Vest-
fjarða, Aðalstræti 21, 415 Bolungarvík, eða
á netfangið the@nave.is fyrir mánudaginn
1. nóvember 2010.
Nánari upplýsingar veitir Þorleifur Eiríksson,
forstöðumaður, í síma 456 7005 eða
892 6005 eða netfanginu the@nave.is.
Sjálfstætt starfandi sjúkra-
þjálfari
Sjálfstætt starfandi sjúkraþjálfari óskast
í fullt starf við Heilbrigðisstofnunina
á Patreksfirði.
Upplýsingar fást hjá Margréti Brynjólfs-
dóttur sjúkraþjálfara í síma 698 9913 eða
netfanginu maggabr@gmail.com.
Tæknistjóri
Tæknistjóri óskast til starfa í verksmiðju
Íslenska kalkþörungafélagsins á Bíldudal.
Tæknistjóri starfar náið með framkvæmda-
stjóra við skipulagningu og samræmingu
á viðhaldsvinnu. Viðkomandi hefur umsjón
með varahlutalager og sér um viðhald og
viðgerðir á vélasamstæðum og vinnuvélum
fyrirtækisins. Hann hefur einnig eftirlit með
viðhaldsvinnu og viðgerðum verktaka.
Íslenska kalkþörungafélagið
er dótturfélag írska
fyrirtækisins Celtic Sea
Minerals sem hefur
starfrækt verksmiðju á
Bíldudal frá árinu 2007.
Starfsemi fyrirtækisins felst
í þurrkun og mölun á
kalkþörungum. Hjá fyrir-
tækinu starfa 16 manns.
Nánari upplýsingar veitir Guðmundur V.
Magnússon framkvæmdastjóri:
gudmundur@iskalk.is.
PI
PA
R\
TB
W
A
•
SÍ
A
•
10
25
6
5
Hjúkrunarfræðingur óskast í dagvinnu.
Laus er til umsóknar 60 til 80% staða hjúkrunarfræðings í
Maríuhúsi, Blesugróf 27 í Reykjavík frá og með 1. nóvember
n.k. eða eftir samkomulagi.
Maríuhús er dagþjálfun fyrir 20 einstaklinga með hei-
labilun. Umönnun og þjálfun skjólstæðinga Maríuhúss
er sinnt á þverfaglegum grundvelli sem miðar að því að
einstaklingurinn sé þar ávallt í öndvegi.
Skilyrði er að viðkomandi hafi reynslu af umönnun einstak-
linga með heilabilun og/eða aldraðra. Umsóknarfrestur er
til 22. október.
Upplýsingar veitir Sólborg Sumarliðadóttir forstöðumaður
í síma 5347100. Umsóknir sendist á netfangið mariuhus@
alzheimer.is
Vélvirki/Vélstjóri óskast.
Maritim Installasjon AS óskar að ráða vélvirkja/vélstjóra til
starfa í vélsmiðju sem staðsett er í Senjahopen í Noregi.
Norsku eða enskukunnátta æskileg. Aðeins vanur maður
sem getur unnið sjálfstætt kemur til greina.
Umsóknir ásamt ferilskrá sendist á andres@husanaust.is
eða nánari upplýsingar í síma 893 0011.
www.maritimeas.no
Starfsmaður í blikksmiðju
Límtré Vírnet í Borgarnesi óskar eftir að ráða til star-
fa blikksmið eða mann vanan blikksmiðjuvinnu. Um
er að ræða nýsmíði og viðhaldsvinnu í blikksmiðju
og úti hjá viðskiptavinum.
Nánari upplýsingar veitir Aðalsteinn Símonarson í
síma 412 5302 eða alli@limtrevirnet.is.
Vinna á eigin vegum!
Lærðu að hjálpa öðrum til að afla tekna. Árangurstengd laun.
Góðir tekjumöguleikar. Unnið heima með tölvu, internet og
síma við mannleg samskipti. Tungumálakunnátta nauðsynleg
þar sem enska og danska skipta mestu máli í hlustun og skrift.
Umsókn ásamt ljósmynd sendist á myjobin2010@gmail.com
(Ekki mlm markaðssetning) Öllum umsóknum verður svarað.
RE/MAX Bær
Malarhöfða 2
110 Reykjavík
Sölufulltrúar
RE/MAX Bær óskar eftir öfl ugum
sölufulltrúum til starfa.
Leitað er eftir jákvæðu og duglegu fólki með góða
starfsreynslu.
Umsóknum skal skilað að Malarhöfða 2 s. 512 3400
eða kristin@remax.is