Fréttablaðið - 16.10.2010, Blaðsíða 82
50 16. október 2010 LAUGARDAGUR50
menning@frettabladid.is
LILJA Í ÚTRÁS Þýski útgáfurisinn Rowohlt ætlar að gefa út bókina Spor eftir Lilju Sigurðardóttur á næsta ári. Lilja bar sigur úr
býtum í keppni Bjarts um hinn íslenska Dan Brown og kynning á bókinni, sem kom út fyrir síðustu jól, á bókamessunni í Frank-
furt gekk vonum framar. Von er á nýrri bók eftir Lilju í haust, sem ber titilinn Fyrirgefning.
„Þróunarland á Norðurlöndum?
Íslensk list á krepputímum“ er yfir-
skriftin á sýningu á verkum tíu
íslenskra myndlistarmanna, sem
verður opnuð í Östersund í Svíþjóð
í dag.
„Efnahagshrunið á Íslandi vakti sáralitla
athygli í Svíþjóð á sínum tíma,“ segir Jonat-
an Habib Engqvist, sýningarstjóri sýningar-
innar um tilurð hennar. „Hér voru allir bara
að spá í Eystrasaltslöndunum, þar sem pen-
ingarnir okkar voru. En mér fannst það engu
síður merkilegt, bæði í ljósi hinna norrænu
tengsla og vegna þess að Ísland var fyrsti
dómínókubburinn til að falla.“
Í kjölfarið vaknaði sú hugmynd að gera
atburðunum á Íslandi skil í gegnum listina.
„Listamenn eru auðvitað ekki fréttamenn
í hefðbundnum skilningi,“ segir Jonathan.
„En það má kannski segja að þeir greini frá
hinu mannlega hlutskipti og geta þannig sett
hlutina í nýtt og víðara samhengi.“
Listamennirnir sem eiga verk á sýning-
unni eru: Erla S. Haraldsdóttir, Gjörninga-
klúbburinn (The Icelandic Love Corporation),
Ragnar Kjartansson, Hildur Margrétardótt-
ir, Bjargey Ólafsdóttir, Högni Ingvar Ragn-
arsson, Rúrí, Magnús Sigurðarson, Hreinn
J. Stephensen og Pétur Thomsen.
Á sýningunni verða meðal annars víd-
eóverk, ljósmyndir, teikningar, málverk,
skúlptúrar og innsetningar. Elsta verkið er
gullbíll Rúríar frá 1974 en nýjustu verkin
voru búin til gagngert fyrir sýninguna. En
hvernig getur 30 ára myndlist fjallað um
lífið eftir hrun á Íslandi?
„Það kann að koma einhverjum spánskt
fyrir sjónir,“ segir Jonathan og hlær. „En
markmiðið var ekki að gera yfirlitssýn-
ingu yfir íslenska myndlist eftir hrun, held-
ur sýna verk sem bjóða upp á tengingu við
kreppuástandið. Gullbíllinn hennar Rúrí-
ar er til dæmis frá 1974, þegar það var líka
kreppa. Sum verkanna eru líka þess eðlis að
maður sér þau í öðru og nýju samhengi eftir
hrun; þau öðlast beinlínis nýja vídd.“
Jonathan segir að yfirskrift sýningarinn-
ar: „Þróunarland á Norðurlöndum?“ sé kald-
hæðnisleg skírskotun í ástandið á Íslandi
en jafnframt leit að nýju hugtaki sem fangi
neyðarástandið sem myndast þegar þróað
iðnríki fer á hausinn eins og það leggur
sig.
„Titillinn spratt upp af því að ég var
með Bjargeyju Ólafsdóttur, myndlistar-
manni í New York, þegar bankarnir hrundu
á Íslandi og krónan með. Hún hafði nýlega
fengið námsstyrk sem átti að duga henni í
fjóra mánuði en eftir hrun kom í ljós að hann
myndi ekki duga henni nema í þrjár vikur.
Hún hafði á orði í hálfkæringi að hún þyrfti
að fara til þróunarlanda í Suður-Ameríku til
að læra að lifa af þessu smáræði.
Ég fór að hugsa um þennan brandara og
það rann upp fyrir mér að við eigum ekkert
hugtak til að lýsa þessu ástandi; við tölum
um þróunarlönd og þróuð lönd, en það er
ekkert orð til yfir þróað land sem verður
hér um bil aftur þróunarland.“
bergsteinn@frettabladid.is
Þróunarlandið Ísland til sýnis í Svíþjóð
Bandaríski metsöluhöfundurinn
Scott Belsky er væntanlegur til
Íslands og mun halda morgun-
verðarfund í Salnum 22. október
næstkomandi. Belsky hefur rann-
sakað venjur og vinnubrögð óvenju
afkastamikilla einstaklinga og
hópa í ýmsum atvinnugreinum en
fyrirtæki hans, Behance, vinn-
ur að eflingu og skipulagi hins
skapandi heims.
Belsky er sérfræðingur á sviði
framkvæmda og framleiðni en
hann er þeirrar skoðunar að
hæfileikinn til að fylgja skap-
andi verkefnum til enda sé engum
meðfæddur.
Í bók sinni Frá hugmynd til
veruleika eru hugmyndir hans
og aðferðafræði kynnt en bókin
sem kom út í sumar varð metsölu-
bók í Bandaríkjunum. Hún kemur
út í íslenskri þýðingu 19. október
næstkomandi.
Morgunverður með
metsöluhöfundi
Guðrún Ingimarsdóttir, sópran,
Anna Guðný Guðmundsdóttir,
píanó, og Sigrún Eðvaldsdóttir,
fiðla, koma fram á tónleikum
Listafélags Langholtskirkju annað
kvöld klukkan átta. Á efnisskránni
eru verk þar sem þessar góðkunnu
listakonur koma fram allar saman
eða tvær og tvær.
Verkin sem verða flutt eru eftir
Bach, Händel, Holst, Villa-Lobos,
Mozart, Corelli og Tsjaíkovskí.
Listakonurnar hafa um árabil
verið í fremstu röð íslenskra tón-
listarmanna og hafa starfað saman
við ýmis tækifæri.
Þess má geta að Guðrún kemur
nú fram í Reykjavík eftir langa
dvöl erlendis við góðan orðstír.
Hún hefur tekið þátt í fjölmörgum
óperuuppfærslum í Þýskalandi,
Sviss og Englandi og meðal ann-
ars sungið Næturdrottninguna í
Töfraflautunni og Adele í Leður-
blökunni. Auk þess hefur flutn-
ingur kirkjutónlistar og óperettu-
tónlistar verið veigamikill í starfi
hennar í Þýskalandi og víðar.
Listakonur í
Langholtskirkju
KLASSÍK Í KIRKJU Anna Guðný Guðmundsdóttir, Sigrún Eðvaldsdóttir og Guðrún
Ingimarsdóttir flytja tónlist í Langholtskirkju annað kvöld.
Sýningar í
fullum gangi
Sýningadagar
Lau. 16/10 kl. 13 Ör
fá sæti
Sun. 17/10 kl. 14 Up
pselt
Lau. 23/10 kl. 13 Ör
fá sæti
Sun. 24/10 kl. 14 Up
pselt
Lau. 30/10 kl. 13 Ör
fá sæti
Sun. 31/10 kl. 14 Ör
fá sæti
GYLLTI BÍLLINN Jonatan Habib Engqvist setur upp verk sitt Gyllti Ruris-bíllinn. Verkið er samsett úr nokkrum
ljósmyndum af gylltum bíl. MYND / BJARGEY ÓLAFSDÓTTIR
TVÖ HREIÐUR Eitt fyrir fugl – annað fyrir mann.
MYND / BJARGEY ÓLAFSDÓTTIR