Fréttablaðið - 16.10.2010, Blaðsíða 6
6 16. október 2010 LAUGARDAGUR
15.000 tonna síldarkvóti
Jón Bjarnason, sjávarútvegs- og
landbúnaðarráðherra, hefur tekið
ákvörðun um að úthluta 15.000 lesta
afla í sumargotssíld fyrir fiskveiðiárið
2010/2011. Er það upphafsúthlutun
í sumargotssíld fyrir fiskveiðiárið en
ákvörðun um endanlega úthlutun
heildarafla liggur ekki fyrir.
SJÁVARÚTVEGUR
FRÉTTASKÝRING
Þarf að breyta leigumarkaðnum?
„Bankar og Íbúðalánasjóður verða
að taka sig saman og búa til félag
sem kaupir fasteignir og setur á
laggirnar þróað leigufélag. Það gæti
verið í eigu lífeyrissjóða, verkalýðs-
félaga eða fjárfesta,“ segir Svanur
Guðmundsson, formaður Félags
löggiltra leigumiðlara og fram-
kvæmdastjóri leigumiðlunarinnar
Húsaleiga.is.
Fréttablaðið sagði í vikunni teikn
á lofti um að íbúðafélög að norrænni
fyrirmynd, sem keypti fasteignir og
leigði þær áfram, væru í mótun.
Svanur tekur undir að þörfin sé
mikil á þróuðu íbúðaleigukerfi;
fram til þessa hafi það verið bund-
ið félagslegu leiguhúsnæði sveitar-
félaga og Búsetakerfi auk leigu-
íbúða háskólanema. Nú hafi almenni
leigumarkaðurinn eflst mikið. Þeir
sem hafi misst íbúðarhúsnæði sitt
í hendur bankanna síðustu mán-
uði þurfi á leiguhúsnæði að halda.
Þá kjósi margir að leigja fremur
en að kaupa fasteignir. Bankarnir
hafi ekki komið til móts við þörfina;
þeir virðist fremur vilja eiga tómar
íbúðir en bjóða þær til leigu.
Svanur segir að samtímis því sem
eftirspurn eftir leiguhúsnæði hafi
aukist umfram framboð skorti mik-
ilvægar upplýsingar um hana. „Ég
barðist fyrir því heillengi að láta
taka saman upplýsingar um fjölda
leigusamninga,“ segir Svanur. Af
því varð ekki og því liggur ekkert
fyrir um stöðu leigumarkaðarins.
Svanur segir að þegar íbúðaverð
hafi tekið að rjúka upp fyrir nokkr-
um árum hafi verið nauðsynlegt að
stíga fyrstu skrefin í átt að breyttu
íbúðaleigukerfi. Það hafi ekki verið
gert. Afleiðingin varð sú að fólk sem
Lífeyrissjóðir setji á
fót íbúðaleigufélög
Mun minna framboð er af leiguhúsnæði en eftirspurn. Á sama tíma er lítið
vitað um leigumarkaðinn hérlendis. Formaður Félags löggiltra leigumiðlara vill
að bankar og Íbúðalánasjóður taki sig saman og setji á fót þróað leigufélag.
kom sér upp þaki yfir höfuðið með
fasteignakaupum sökk í skuldafen. Í
raun hafi verið hagstæðara að leigja
í stað þess að kaupa fasteign.
„Umræðan um leigumarkað hér
hefur verið þröngsýn. Það er út af
því að mikill hluti þeirra sem hafa
verið í leiguhúsnæði hefur verið í
félagslega kerfinu. Fólk hefur fram
til þessa talið íbúðaleigu jafngilda
því að kasta peningum á glæ. En
hrunið hefur fengið fólk til að hugsa
öðruvísi,“ segir hann.
jonab@frettabladid.is
GAZA Styrktarsjóður var stofnaður á Gaza
í gær sem ber heitið Maríusjóðurinn. Fjár-
magn sjóðsins rennur til Aisha, félags til
verndar konum og börnum á Gaza-svæðinu.
Sveinn Rúnar Hauksson, læknir og for-
maður félagsins Ísland-Palestína, er stadd-
ur á Gaza og afhenti í gær fyrsta framlagið
til Maríusjóðsins, 5.000 Bandaríkjadali sem
samsvara rúmlega hálfri milljón íslenskra
króna. Maríusjóðurinn er nefndur í höfuðið
á Maríu M. Magnúsdóttur hjúkrunarfræð-
ingi, sem starfaði í hálfa öld í Lundúnum,
meðal annars á stríðsárunum.
Félagið Aisha rekur sambærilega starf-
semi á Gaza og Stígamót gera hér á landi
og er starfsþjálfun og endurhæfing fyrir
konur einnig undir sama þaki. Sveinn
Rúnar segir að starfsemi félagsins sé til
fyrirmyndar og hafi í fimmtán ár verið
rekin undir hinum þekktu Geðhjálparsam-
tökum á Gaza, en muni frá næstu áramótum
starfa sjálfstætt.
Sveinn Rúnar segir að stefnt sé að því að
safna áskrifendum sem vilji styðja konur
og börn á Gaza, sem orðið hafi fyrir kyn-
ferðislegu eða heimilisofbeldi, með föstu
mánaðarlegu framlagi.
Lagt er til að framlagið verði á bilinu
2.400 til 12.000 krónur mánaðarlega, en er
þó frjálst. Stefnt er að því að leggja inn í
sjóðinn 5.000 Bandaríkjadali mánaðarlega
í þrjú ár til að byrja með. - sv
Félagið Ísland-Palestína stofnar Maríusjóðinn, félag til styrktar konum og börnum á Gaza:
Afhenti hálfrar milljóna króna framlag
FRAMLAGIÐ AFHENT Sveinn Rúnar Hauksson, formað-
ur FÍP, afhendir Naimu Rawagh forstöðukonu fyrsta
framlagið í Maríusjóðinn, 5.000 Bandaríkjadali.
Baldur
Óskarsson
Halldóra Guðrún
Hinriksdóttir
Elías Blöndal
Guðjónsson
Halla Björg Evans
Inga Lind Karls-
dóttir
Sigþrúður Þor-
finnsdóttir
Guðjón Sigurðs-
son
Þeir sem vilja láta framboðs síns
getið í Fréttablaðinu geta sent
tilkynningu ásamt mynd á ritstjórn
blaðsins.
Framboð til stjórnlagaþings
BORGARBYGGÐ Þrír fulltrúar
minnihlutans í sveitarstjórn
Borgarbyggðar vilja að sveitar-
félagið selji hlut sinn í Orkuveitu
Reykjavíkur. Ljóst sé að Borgar-
byggð geti ekki lagt fram það
fjármagn sem þurfi til að tryggja
rekstur fyrirtækisins.
„Það er engum blöðum um það
að fletta að sveitarstjórn Borgar-
byggðar er ekki ábyrg fyrir
þeim pólitísku ákvörðunum sem
hafa orðið til þess að staða OR
er eins og hún er. Því er ótækt
að ætlast til þess að sameigna-
fé íbúa Borgarbyggðar sé notað
til að greiða fyrir þau afglöp sem
pólitískir stjórnendur OR undan-
farin ár, hafa unnið á undanförn-
um árum,“ segir í bókun fulltrúa
Samfylkingar og Framsóknar-
flokks. - gar
Vilja selja Orkuveituhlut:
Borga ekki fyrir
pólitísk afglöp
LÖGREGLUMÁL Lögreglan í Búðar-
dal leitaði í gær bifreiðar sem
var talin geta tengst innbrotum í
sex fyrirtæki á staðnum í fyrri-
nótt. Óþekkt bifreið sást lónandi í
bænum sömu nótt.
Jóhannes B. Björgvinsson lög-
reglumaður sagði að fyrirtækin
væru öll við sömu götuna í Búðar-
dal. Innbrotin eru talin hafa átt
sér stað frá klukkan tvö aðfaranótt
föstudags til sex um morguninn.
Talsverðu var stolið af peningum.
Þá létu þjófarnir greipar sópa þar
sem þeir komust í tölvubúnað og
verkfæri.
Lögregla biður þá sem hafa
orðið varir við grunsamlegar
mannaferðir á þessu tímabili að
láta vita í síma 433-7620. - jss
Sex innbrot í Búðardal:
Leitað að grun-
samlegum bíl
FÆREYJAR Janus Petersen, banka-
stjóri Bank Nordik, áður Föroya
Bank, hefur tekið við sem for-
maður Vinnuveitendasambands
Færeyja.
Portalurinn, fréttavefur fær-
eyska ríkisútvarpsins, segir Pet-
ersen taka við af Marner Jacob-
sen, fyrrverandi bankastjóra Eik
bank, sem stóð upp úr formanns-
sætinu á nefndarfundi sambands-
ins í síðustu viku í kjölfar alvar-
legra fjárhagsvandræða bankans.
Jacobsen var látinn taka poka
sinn hjá bankanum, sem nú er í
höndum dönsku bankasýslunnar.
- jab
Færeyingar hafa sætaskipti:
Nýr formaður
vinnuveitenda
JANUS PETERSEN Bankastjóri Bank
Nordik hefur tekið við sem formaður
Vinnuveitendasambands Færeyja.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
SAMFÉLAGSMÁL Samfélagssjóður
Alcoa færði tíu félagasamtökum
í tíu löndum tíu þúsund Banda-
ríkjadala í styrk sunnudaginn 10.
október. Það er um 1,2 milljónir
íslenskra króna. Björgunarsveit-
in Ársól á Reyðarfirði varð fyrir
valinu á Íslandi.
Sveitin fékk styrkinn afhentan
þegar starfsmenn Alcoa, ásamt
fleira fólki, unnu að svokölluðu
ACTION-verkefni, sem er sjálf-
boðaliðaverkefni sem starfsmenn
Alcoa standa fyrir. Það fólst
meðal annars í því að mála húsa-
kynni björgunarsveitarinnar að
innan, klæða eldri hluta hússins
að utan og helluleggja stétt við
húsið. - shá
Samfélagssjóður Alcoa:
Tíu í tíu löndum
fengu 10 þúsund
GENGIÐ TIL VERKA Húsakynnin fengu
andlitslyftingu í sumarblíðu.
MYND/ALCOA Á ÍSLANDI
JERÚSALEM, AP Ísraelsk yfirvöld hafa bundið enda
á óformlegt bann við byggingu landnemabyggða í
austurhluta Jerúsalem. Framkvæmdir á svæðinu
höfðu legið niðri undanfarna mánuði en þær eru
horn í síðu Palestínumanna, sem hefur fundist
þrengt að sér í palestínska hluta borgarinnar.
Friðarviðræður þjóðanna hófust aftur í september
fyrir tilstilli Bandaríkjamanna en hafa að mestu
legið niðri undanfarnar vikur. Benjamin Netanjahú,
forsætisráðherra Ísrael, hefur neitað að verða við
kröfu Palestínumanna um framlengingu á banni við
byggingu landnemabyggða sem rann út í september.
Palestínumenn neita að setjast við samningaborðið
fyrr en Ísraelar verða við þeirri kröfu.
Yfirvöld í Ísrael hafa ekki tjáð sig um málið en
Saeb Erekat, yfirsamningamaður Palestínumanna,
sagði ákvörðunina vera skýrt merki þess að
Netanjahú veldi landnemabyggðir umfram frið.
Palestínumenn eru stærstur hluti íbúa í austur-
hluta Jerúsalem en um 180 þúsund Ísraelar hafa
flutt á svæðið síðan Ísrael náði yfirráðum þar af
Jórdaníu árið 1967. Palestínumenn vilja að Austur-
Jerúsalem verði höfuðborg palestínsks ríkis í fram-
tíðinni en Ísraelar vilja halda yfirráðum yfir sínum
byggðum. Hefur deilan um þessar byggðir verið
einn helsti ásteytingarsteinn friðarviðræðnanna
undanfarin ár. - mþl
Friðarviðræður Ísraela og Palestínumanna í uppnámi:
Landnemabyggðir rísa á ný
FRAMKVÆMDIR HAFNAR Framkvæmdirnar hafa enn aukið
spennu milli Ísraela og Palestínumanna. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
„Við töldum þetta vera næsta skref, að fólk myndi leigja
til langs tíma. Við ákváðum því að koma til móts við
markaðinn og bjóða leigusamninga, lengri uppsagnar-
frest og aukið öryggi,“ segir Teitur Jónasson, fram-
kvæmdastjóri Meira-leiguhúsnæðis. Félagið er í eigu
bandaríska fjárfestisins Michaels Jenkins, sem keypti
fasteignir í Hafnarfirði, Garðabæ og Kópavogi af verk-
takafyrirtækjum fyrir nokkru. Íbúðirnar eru með þremur
til fjórum herbergjum og geta leigjendur gert breytingar
á þeim, svo til eftir eigin höfði.
Leigja til margra ára ára í senn
Meðalleiguverð á 50 til 60 fermetra íbúð í Reykjavík hljóðar upp á um 2.000
krónur á fermetrann. Það jafngildir allt frá 100 til 150 þúsund króna á íbúð.
Allt fer þetta eftir staðsetningu. Fermetraverðið er í kringum 1.000 krónur í
stærri eignum í úthverfum höfuðborgarinnar eða utan hennar. Við leigu-
verðið bætist gjarnan gjald í hússjóð og kostnaður við hita og rafmagn. Allt
fer það þó eftir samkomulagi.
Hvað kostar að leigja?
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Hefur þú keypt þér nýtt raftæki
á þessu ári?
Já 46%
Nei 54%
SPURNING DAGSINS Í DAG:
Sækir þú einhverja tónleika á
Airwaves í ár?
Segðu skoðun þína á Visir.is
KJÖRKASSINN