Fréttablaðið - 16.10.2010, Qupperneq 8
16. október 2010 LAUGARDAGUR
Framkvæmda- og eignasvið Reykjavíkurborgar ı Þjónustuver 411 1111 ı www.reykjavik.is/fer
Óskað er eftir hugmyndum að starfsemi og tilboðum í leigu turnsins
á Lækjartorgi. Við val á væntanlegum leigutaka verður horft til þess
að starfsemin bæti við framboð í miðborginni og gæði hana þannig
meira lífi.
Vakin er athygli á að ekki getur verið um hefðbundna matsölu að
ræða þar sem turninn uppfyllir ekki heilbrigðiskröfur um slíka
starfsemi.
Nánari upplýsingar um eignina er að finna á vefsíðu Framkvæmda-
og eignasviðs, www.reykjavik.is/fer. Turninn verður til sýnis í samráði
við Framkvæmda- og eignasvið, sími 411 1111.
Tilboðum ásamt upplýsingum um fyrirhugaða starfsemi skal
skila í upplýsingaþjónustuna í Ráðhúsi Reykjavíkur fyrir kl. 16.15,
29. október 2010.
Turninn á Lækjartorgi
opinn fyrir nýjum hugmyndum
Til leigu
Nefnd um vist- og meðferðarheimili
Viðtöl við einstaklinga sem dvöldu á Upptökuheimili ríkisins 1945-1978
og Unglingaheimili ríkisins 1978-1994
Með erindisbré i, dags. 2. apríl 2007, skipaði forsætisráðherra nefnd á grundvelli laga nr. 26/2007
um skipan nefndar til að kanna starfsemi vist- og meðferðarheimila fyrir börn (vistheimilanefnd).
Hlutverk hennar er að kanna hver tildrög þess ha i verið að börn voru þar vistuð, hvernig opinberu
eftirliti ha i verið háttað með starfsemi viðkomandi stofnunar og hvort börn sem þar voru vistuð ha i
sætt illri meðferð eða o beldi á meðan á dvöl þeirra stóð.
Um þessar mundir er vistheimilanefnd að kanna starfsemi Upptökuheimilis ríkisins 1945-1978 og
Unglingaheimilis ríkisins 1978-1994.
Á starfstíma Upptökuheimilis ríkisins fór starfsemi þess fram að Elliðahvammi í Kópavogi, í starfs-
mannabústað við Kópavogshæli og á Kópavogsbraut 17 og Kópavogsbraut 9 í Kópavogi. Á starfstíma
Unglingaheimilis ríkisins fór starfsemi þess fram að Kópavogsbraut 17 og Kópavogsbraut 9 í Kópavogi,
Sólheimum 7, Sólheimum 17 og Efstasundi 86 í Reykjavík, Smáratúni í Fljótshlíð og Torfastöðum í
Biskupstungum. Auk þess var starfrækt á vegum Unglingaheimilis ríkisins meðferðarstöð fyrir unga
vímuefnaneytendur á Tindum á Kjalarnesi.
Vistheimilanefnd óskar vinsamlegast eftir því að þeir sem dvöldu sem börn eða unglingar á ofangreind-
um stofnunum á einhverjum tíma á árunum 1945-1994, og hafa áhuga á því að veita nefndinni viðtal
og upplýsa hana um reynslu sína af dvölinni, ha i samband við nefndina fyrir 1. desember n.k. í síma
563 7016 eða á netfangið vistheimili@for.stjr.is.
HARMAGEDDON
ALLA VIRKA DAGA
KL. 15 – 17:30
VIÐSKIPTI Marel á í formlegum
viðræðum við takmarkaðan
fjölda alþjóðlegra banka um hag-
kvæmari fjármögnun fyrirtækis-
ins til lengri tíma litið. Í tengslum
við fyrirhugaða fjármögnun mun
Marel hefja viðræður við eigend-
ur skuldabréfa um hugsanlega
uppgreiðslu lána, að því er fram
kemur í tilkynningu.
Greiningarfyrirtækið IFS
segir viðræðurnar jákvætt skref.
Núverandi fjármögnun sé þung
þar sem skuldir séu enn umtals-
verðar þrátt fyrir að hafa lækkað
síðustu misseri. - jab
Marel ræðir við erlenda banka um hagkvæmari fjármögnun:
Uppgreiðsla lána rædd
KJÚKLINGASLÁTRUN Marel framleiðir
meðal annars vélar til vinnslu á
kjúklinga kjöti. FRÉTTABLAÐIÐ/ÓKA
STJÓRNMÁL Þingkosningar fara
fram í Bandaríkjunum 2. nóvem-
ber og er kosningabaráttan vestan-
hafs í fullum klíðum. Kosið verð-
ur um öll 435 sætin í fulltrúadeild
þingsins og 37 af 100 sætum í öld-
ungadeildinni. Demókratar hafa
haft meirihluta í báðum deildum
frá árinu 2006 en útlit er fyrir að
kjósendum hugnist repúblikanar
betur í þetta skiptið.
Þegar síðast var kosið fyrir um
tveimur árum unnu demókratar
stórsigur og juku við meirihluta
sinn í báðum deildum þingsins
auk þess sem Barack Obama var
kjörinn forseti Bandaríkjanna
með nokkrum yfirburðum. Virt-
ust Bandaríkjamenn vera orðn-
ir þreyttir á Repúblikanaflokkn-
um eftir átta ára veru George W.
Bush í Hvíta húsinu auk þess sem
alþjóðlega fjármálakrísan sem þá
var í algleymingi hafði verulega
dregið úr trúverðugleika flokks-
ins í efnahagsmálum. Obama
og demókratar buðu fram með
slagorðum um breytingar og von
og fengu skýrt umboð frá kjósend-
um. Nú tveimur árum seinna hafa
vinsældir flokksins dvínað mikið.
Margir telja Obama ekki hafa tek-
ist upp sem skyldi í baráttunni við
kreppuna en atvinnuleysi er 9,6
prósent og hefur lítið lækkað und-
anfarið ár. Breytingar Obama á
bandaríska heilbrigðiskerfinu hafa
auk þess farið illa í marga.
Kannanir benda til þess að
demókratar muni því missa meiri-
hlutann í fulltrúadeildinni þó þeir
haldi sennilega yfirráðum í öld-
ungadeildinni með naumindum.
Nái repúblikanar meirihluta í
fulltrúadeildinni mun það gera
Obama erfiðara fyrir en áður að
koma stefnumálum sínum í gegn-
um þingið og óttast margir að
samskipti þingsins og Hvíta húss-
ins verði eins og um miðbik tíunda
áratugsins þegar eins konar kalt
stríð geisaði milli þingsins, undir
stjórn repúblikana, og Hvíta húss
Bill Clinton.
Frambjóðendur sem kenna sig
við hina svokölluðu teboðshreyf-
inguna hafa að ýmsu leyti stolið
senunni í aðdraganda kosning-
annna. Um er að ræða andófs-
hreyfingu innan Repúblikana-
flokksins sem spratt upp í kjölfar
kjörs Obama. Fulltrúar hreyf-
ingarinnar unnu sigra í mörgum
af prófkjörum flokksins í vor en
þeir þykja róttækari en gengur og
gerist í bandarískum stjórnmál-
um. Eru þeir taldir njóta góðs af
því að demókratar og hófsamir
repúblikanar hafa margir hverj-
ir lítinn áhuga á kosningunum í
nóvember.
Þrátt fyrir að nokkuð ljóst
þyki hvernig meirihlutar í deild-
um þingsins muni verða að lokn-
um kosningunum fer því fjarri að
engin spenna sé í þeim. Í Banda-
ríkjunum eru einmenningskjör-
dæmi og má vart á milli fram-
bjóðenda sjá í óvenjustórum hluta
þeirra. magnusl@frettabladid.is
Kosningar í
skugga kreppu
Kosið er til þings í Bandaríkjunum á næstunni.
Demókratar eiga undir högg að sækja og munu lík-
lega tapa meirihluta sínum í fulltrúadeild þingsins
en halda yfirráðum í öldungadeildinni naumlega.
TEBOÐSHREYFINGIN Mótmæli hinnar svokölluðu teboðshreyfingar hafa sett mikinn
svip á kosningabaráttuna. Telur hreyfingin Barack Obama vera róttækan sósíalista og
vill vinda ofan af þeim breytingum sem Obama hefur gert frá því að hann var kjörinn
forseti. NORDICPHOTOS/AFP