Fréttablaðið - 16.10.2010, Page 34
34 16. október 2010 LAUGARDAGUR
Páll Baldvin las bókina um Dísu ljósálf sér til ánægju í æsku en hugmyndin að leikriti
byggðu á henni kviknaði árið 2001. „Þá var ég á
milli starfa og var að vinna í ýmsum leiktextum.
Eitt af því sem ég gerði í þessu millibilsástandi var
að ég tók þessa gömlu myndasögu og bjó til úr
henni leikgerð sem var fyrir tólf leikara og tuttugu
börn. Hún þótti of umfangsmikil og fór beint ofan í
skúffu. Í endurmenntunarleyfi hjá Fréttablaðinu fór
ég ofan í skúffuna og ákvað að vinna verkið upp á
nýtt. Í staðinn fyrir að skrifa beinlínis leikgerð upp
úr þessari sögu þá má eiginlega segja að ég hafi
samið söngleik frá grunni, það er að segja texta
og söngtexta. Þetta er eiginlega sjálfstætt verk þó að það dragi dám af
bókinni um álfameyna,“ segir Páll Baldvin sem snýr nú til leikhússins eftir
langt hlé.
Í framhaldinu varð úr að Gunnar Þórðarson semdi tónlist við verkið.
Uppfærslan er minni í sniðum en upphafleg leikgerð Páls Baldvins var, en
þó býsna umfangsmikil. Auk sjö leikara sem taka þátt í verkinu dansa átta
dansarar í því undir stjórn Helenu Jónsdóttur. María Ólafsdóttir sér um
búningana og Gunnar Þórðarson stjórnar hljómsveitinni.
Söngleikurinn er settur upp í Austurbæ. Páll Baldvin segir tilgang sinn
hafa verið að setja saman verk sem öll fjölskyldan hefði gaman af, frá fjög-
urra ára aldri og upp úr. Þó að stytta hafi þurft söguna verði allar eftirminni-
legustu persónurnar á sviðinu í Austurbæ. Verkið verður frumsýnt eftir viku.
Æ
vintýrið um Dísu ljósálf fjallar um
álfastúlku sem verður viðskila við
móður sína. Í kjölfarið taka skóg-
arhöggshjón hana heim með sér og
þar er hún hneppt í varðhald. Til að
tryggja að hún sleppi ekki frá þeim
klippir maðurinn af henni vængina og hefur mynd-
in af þeim gjörningi brennt sig í barnsminni margra
Íslendinga sem seint fá gleymt þessum grimmilegu
örlögum.
Þráður verksins snýst um leit Dísu að móður sinni og
lendir hún í miklum hremmingum á þeirri leið, er ekki
fyrr laus úr einni prísund þegar hún lendir í annarri.
Hún sýnir útsjónarsemi og sjálfstæðan vilja, trúir á hið
góða í þeim sem allir fordæma, og sér óréttlæti í með-
ferð vina sinna froskanna á storki nokkrum sem heldur
inn á þeirra áhrifasvæði. Þannig sver sagan sig í ætt
við ævintýri þar sem söguhetjan eflist og þroskast á
vegferð sinni.
Bókin um Dísu er eftir hollenskan höfum G. T. Rot-
man. Hann er einn frumkvöðla í teiknimyndagerð.
Tengingin við teiknimyndir verður enn ljósari þegar
sagan er skoðuð í Morgunblaðinu árið 1927 þar sem
hún birtist fyrst. Þann 11. nóvember gefur að líta í
aukablaði sem fylgdi Morgunblaðinu söguna Ljósálf-
urinn litli, og má þar sjá fyrstu tólf myndir sögunnar
en hún birtist í blaðinu sem framhaldssaga.
Ári síðar kom sagan út á bók og hefur verið gefin út
sex sinnum síðan, árið 1956, 1986, 1991, 1993, 1999 og
2008. Má ætla að eftir að nýrri útgáfa hófst á árinu
1986 séu hið minnsta um fimmtán þúsund eintök til
á heimilum landsmanna – eru þá ótalin gömul eintök
sem til eru lúin og snjáð í hillum víða um land. Síðast
þegar bókin var gefin út, árið 2008, endaði hún sem
þriðja mest selda bókin á Íslandi það árið. Sigþrúður
Gunnarsdóttir, ritstjóri barna- og unglingabóka hjá
Forlaginu sem gefur bókina út, segir að svo virðist
sem hvergi hafi hún náð jafn mikilli hylli og hér.
Dagný Kristjánsdóttir, prófessor í bókmennta-
fræði, segir skýringuna á vinsældum sögunnar
um Dísu ljósálf hér á landi að hluta til þá að fáar
myndskreyttar bækur hafi verið til þegar bókin
kom út í fyrstu. „Það var hvert einasta barn á
Íslandi í klessu út af myndinni þegar verið er að
slíta vængina af Dísu,“ segir hún og bendir á
að bókin hafi verið verið mjög áhrifarík, börn
verið þyrst í myndskreyttar bækur og lesið
þær upp til agna.
Ævintýraheimurinn sé án landamæra og
ungir íslenskir lesendur ekki átt í vandræðum
með að samsama sig ævintýrum litlu álfameyj-
arinnar. Bókin hafi svo náð að lifa með kynslóð-
unum og eldri kynslóðir séð til þess að gefa þeim
yngri bókina um Dísu.
Tvö ævintýri Rotmans eru þekkt hér á landi
auk Dísu, Alfinnur álfakonungur og Dvergurinn
Rauðgrani og brögð hans. Þau hafa einnig verið
endurútgefin nokkrum sinnum.
Lærir að standa á eigin fótum
Bókin um Dísu ljósálf var ein af mínum uppá-haldsbarnabókum,“ segir Álfrún Helga Örnólfs-
dóttir leikkona sem fer með hlutverk Dísu í söngleikn-
um. „Hún var lesin fyrir mig sem barn og mér fannst
hún mjög heillandi persóna. Hún lendir í ýmsum krögg-
um en þroskast gegnum söguna og lærir að standa á
eigin fótum. Myndirnar í bókinni eru líka svo grípandi
að aðrar persónur eins og moldvarpan, froskarnir og
storkurinn verða svo eftirminnilegar. Það er líka svo
spennandi þegar söguhetjur lenda í vanda og hvað gæti
verið dramatískara en að týna mömmu sinni.“
Ævintýri sem heillað
hefur kynslóðir
Ævintýrið um Dísu ljósálf kom fyrst út á íslensku árið 1928. Söngleikur byggður á bók-
inni verður frumsýndur eftir viku. Sigríður Björg Tómasdóttir veltir fyrir sér vinsældum
verksins og ræddi við leikstjórann og höfund söngleiksins, Pál Baldvin Baldvinsson.
■ AFTUR Í LEIKHÚSIÐ MEÐ LJÓSÁLF
Páll Baldvin Baldvinsson skrifar söngleik fyrir alla fjölskylduna
■ FRUMKVÖÐULL Í TEIKNIMYNDASÖGUM
Listaskólagenginn höfundur sem naut mikilla vinsælda.
Höfundur Dísu ljósálfs, G. T. Rotman var mjög þekktur á sínum tíma. Hann var listaskólagenginn, lærði í akademíunum í Amsterdam og
Haag. Að loknu námi og hermennsku í fyrri heimsstyrjöldinni sá hann sér
farborða með kennslu en hóf teiknimyndasögugerð að áeggjan vinar síns.
Fyrsta myndasagan hans fjallaði um músasystkini og birtist í hollensku
dagblaði. Hún varð afar vinsæl rétt eins og fleiri sögur sem hann samdi í
kjölfarið. Rotman lést árið 1943 fimmtugur að aldri. Hann var lítt hrifinn af
uppgangi nasismans og segir á heimasíðunni Lambiek.net, þar sem finna
má ýmis konar fróðleik um frumherja teiknimyndasagna, að sköpunar-
kraftur hans hafi lamast eftir valdatöku nasista.