Fréttablaðið


Fréttablaðið - 16.10.2010, Qupperneq 70

Fréttablaðið - 16.10.2010, Qupperneq 70
38 16. október 2010 LAUGARDAGUR V ið vissum báðir fyrir- fram að við kæmum til með að sakna Íslands, enda nýtum við hvert tækifæri sem gefst til að skreppa heim, hitta vinina og hafa það gott. Það er helst í sumarfríum, jólafríum og þegar eru landsleikir, og er alltaf jafn gaman,“ segir Guðlaugur Victor Pálsson þegar blaðamaður tyllir sér niður með honum og Kristjáni Gauta Emils- syni á einni af fjölmörgum útikrám við Albert Dock, höfnina frægu við Mersey-fljótið í Liverpool. Knattspyrnumennirnir ungu eru báðir leikmenn stórliðsins Liverpool. Guðlaugur Victor var sautján ára þegar hann gekk til liðs við Liverpool frá AGF í Árósum í Danmörku í byrj- un árs 2009, en Kristján Gauti lék með FH þar til hann skrifaði undir samn- ing við Liverpool í desember síðast- liðnum, þá sextán ára gamall. Kristján Gauti segir það tvímæla- laust hafa haft áhrif á þá ákvörðun að ganga til liðs við Liverpool að fyrir hjá félaginu var annar Íslendingur. „Við þekktumst ekki neitt en Guð- laugur hringdi í mig um leið og hann frétti að ég væri á leiðinni, óskaði mér til hamingju og við kynntumst fljótt mjög vel. Þegar ég kom hingað hafði hann þegar verið hér í heilt ár og hefur því hjálpað mér mjög mikið við að kynnast félaginu og borginni.“ Guðlaugur bætir við að þeir félagar séu miklir vinir og eyði drjúgum tíma saman þrátt fyrir aldurs muninn, en Guðlaugur er tveimur árum eldri en Kristján. „Það er frábært að hafa annan Íslending hjá félaginu, ekki síst vegna þess að mæður okkar beggja búa hérna úti með okkur og líka litla systir mín. Þær ná líka mjög vel saman, þannig að koma Kristjáns hefur í raun hjálpað okkur öllum mikið.“ Námið heldur manni við efnið Eins og áður sagði voru félagarnir mjög ungir þegar þeir fluttust frá Íslandi vegna atvinnu sinnar. Guð- laugur flutti til Árósa strax að lokn- um 10. bekk grunnskóla, en Kristján Gauti nam við Flensborgarskólann í Hafnarfirði í eitt ár áður en hann flutti til Bítlaborgarinnar. Blaða- manni leikur forvitni á að vita hvernig ungum knattspyrnumönnum gengur að fóta sig í nýju umhverfi og kynnast nýjum siðum fjarri heimahögum. „Ég var skíthræddur fyrst, en þetta er fljótt að koma,“ segir Guðlaugur og bætir við að Íslendingarnir tveir hafi enn ekki eignast marga vini utan fótboltans. Annað hafi verið uppi á teningnum í Árósum, þar sem Guð- laugur stundaði fullt nám meðfram knattspyrnuæfingum og kynntist því mörgum góðum vinum og tók þátt í félagslífi á vegum skólans. „Hérna í Liverpool erum við fyrst og fremst fótboltamenn, við æfum eða spilum og förum svo heim að hvíla okkur, og það kemur fyrir að dagarnir séu dálítið lengi að líða. Reyndar stundum við báðir fjarnám við Fjöl- brautaskólann í Ármúla, tökum próf á netinu til að safna einingum til stúdents prófs, og það er fínt. Það er gott að hafa að einhverju að stefna í þessum málum.“ Aðspurður segir Guðlaugur það afar óalgengt að félagar þeirra í fót- boltanum stundi nokkurt nám. „Ég er sá eini í varaliðinu sem er að læra eitthvað. Ég get reyndar ekki sagt að mér þyki námið sérstaklega skemmti- legt, en það heldur manni við efnið,“ segir hann og hlær, en móðir Guð- laugs, Ásta Marta Róbertsdóttir, stundar einnig nám við Háskólann í Liverpool þar sem hún leggur stund á markaðsfræði. Segja má að líf þeirra snúist um fót- bolta og fátt annað allan ársins hring, og viðurkennir Kristján Gauti fúslega að þau tímabil komi þegar þeir verði leiðir á íþróttinni. „Það er helst þegar styttist í sumarfrí að við sjáum Ísland og vinina í hillingum, en svo er okkur farið að bráðlanga til að sparka aftur í bolta innan tveggja vikna. Fótbolt- inn er auðvitað vinnan okkar. Þetta er í blóðinu.“ Gerrard og Torres toppmenn Báðir segjast þeir Guðlaugur og Kristján kunna vel við sig í Liverpool þótt borgin sé nokkuð ólík því sem þeir hafa vanist hingað til. „Borg- in á auðvitað ekkert í Hafnarfjörð, þar sem ég ólst upp,“ segir Kristján, „en stærsti kosturinn er tvímæla- laust hversu vinalegt fólkið er. Ég þoli reyndar ekki þennan sérstaka „scouse“-hreim sem íbúar borgar- innar tala með, en Guðlaugur er alveg búinn að ná honum.“ Guðlaugur tekur undir það. „Það er eitthvað með mig og tungumál. Ég er mjög fljótur að tileinka mér mállýsk- ur og slíkt, enda varla annað hægt með alla þessa Liverpool-drengi í kringum sig. Gefum Kristjáni eitt ár í viðbót og þá kemur þetta hjá strákn- um.“ Guðlaugur og Kristján búa báðir ásamt fjölskyldum sínum í sömu göt- unni í nágrenni Sefton Park, stærsta lystigarðsins í Liverpool, þar sem for- eldrar Bítilsins Johns Lennon kynnt- ust meðal annars fyrir rúmum sjö- tíu árum. „Þetta er mjög fínt hverfi með röð bygginga sem fjöldi fótbolta- manna býr í,“ segir Kristján og nefna þeir félagar meðal annarra Liverpool- leikmennina Maxi Rodriguez, Milan Jovanovic, Christian Poulsen og Danny Wilson sem næstu nágranna sína. Guðlaugur hefur æft töluvert með aðalliði félagsins og lék meðal ann- ars með því í æfingaleikjum í Sviss á undirbúningstímabilinu. „Ég er Fyrst og fremst fótboltamenn Knattspyrnumennirnir Guðlaugur Victor Pálsson og Kristján Gauti Emilsson fluttu kornungir til útlanda og æfa nú og leika með stórliðinu Liverpool. Kjartan Guðmundsson hitti félagana á útikrá við Mersey-fljótið og fræddist um líf ungra atvinnumanna. Í LIVERPOOL Guðlaugur Victor og Kristján Gauti við Albert Dock við Mersey-fljótið, þar sem meðal annars má finna eitt af mörgum söfnum í borginni sem tileinkuð eru Bítlunum. Guðlaugur er þó lítið gefinn fyrir Bítlana. „En samt hef ég farið oft á Bítlasafnið, enda er afi minn mikill Bítlamaður og dregur mig á Bítlaslóðir í hvert sinn sem hann kemur í heimsókn.“ FRÉTTABLAÐIÐ/KJARTAN Kristján Gauti lék með FH þar til hann gekk til liðs við U-18 ára lið Liver- pool í janúar síð- astliðnum, en hann er einnig meðlimur U-19 ára landsliðs Íslands. Kristj- án Gauti hóf dvöl sína hjá Liver- pool með glæsibrag þegar hann skor- aði sigurmarkið gegn erkifjendunum í Manchester United í sínum fyrsta leik með liðinu. „Þessa stundina er markmiðið hjá mér að komast upp í varaliðið, en ég er ekkert að stressa mig á því strax. Það kemur,“ segir Kristján. SKORAÐI Í SÍNUM FYRSTA LEIK Miðvallar-leikmaður- inn Guðlaugur Victor æfði og lék með Fjölni í Grafarvogi þar til hann skipti yfir í Fylki árið 2004 og fór þaðan til AGF í Danmörku sum- arið 2007. Hann hóf æfingar með varaliði Liverpool í byrjun árs 2009 og lék meðal annars með meistara- flokki félagsins á undirbúningstíma- bilinu. Guðlaugur er einnig í U-21 árs landsliði Íslendinga, sem vann það afrek í vikunni að komast í loka- keppni Evrópumótsins, sem haldin verður í Danmörku næsta sumar. „Ég hef þegar náð mörgum af mínum markmiðum með því að vera í kringum aðallið Liverpool. Mig hungrar þó í meiri aðalliðsbolta og gæti hugsað mér að fara á lán í eitt- hvert neðrideildarlið til að spila meira,“ segir Guðlaugur Victor. LÉK GEGN SKOTUM í mjög góðu sambandi við danska varnar manninn Daniel Agger, enda eigum við tungumálið sameiginlegt, og svo spjalla ég við þessa gæja eins og Gerrard, Torres og Carragher þegar ég hitti þá á Melwood-æfinga- svæðinu. Þetta eru allt toppnáungar, bara venjulegir menn eins og aðrir,“ segir Guðlaugur. Kristján æfir á öðrum stað í borg- inni en leikmenn aðalliðsins og hefur því lítið haft af hinum heims- frægu stjörnum að segja hingað til. „Það kemur fyrir að ég, Gerrard og Torres kíkjum saman í bíó, en ekki oft,“ grínast hann og glottir. Afi mikill Bítlaaðdáandi Hefðbundinn dagur hjá þeim Guð- laugi og Kristjáni einkennist öðru fremur af æfingum eins og áður sagði, en þó finna þeir sér tíma til að gera sér dagamun endrum og eins. Að eigin sögn hefur Kristján mest gaman af því að fara í bíó og kíkja í búðir í hinni risavöxnu Liverpool One-versl- unarmiðstöð í hjarta borgarinnar, en Guðlaugur er mikill tónlistaráhuga- maður og sækir reglulega tónleika, bæði stóra og litla. „Nýlega hef ég til dæmis farið á tónleika með Muse og Jay-Z og svo sá ég Backstreet Boys um daginn ásamt mömmu og litlu systur minni. Það var rosalega gaman, enda var ég gríð- arlegur aðdáandi þeirrar sveitar á mínum yngri árum. Svo klikkar held- ur aldrei að skella smá karókí í gang þegar strákarnir kíkja í heimsókn í einn ískaldan,“ segir Guðlaugur og Kristján bætir við að Guðlaugur hafi mikla hæfileika á sviði söngs. „Hann er alveg ótrúlegur söngvari, sérstak- lega í Sing Star,“ segir hann og þeir félagar skella samtímis upp úr. Guðlaugur segist þó vera heldur lítið gefinn fyrir frægustu tónlistar- menn Liverpool, sjálfa Bítlana. „En samt hef ég farið oft á Bítlasafnið, enda er afi minn mikill Bítlamaður og dregur mig á Bítlaslóðir í hvert sinn sem hann kemur í heimsókn.“ Draumurinn rættist Þegar Guðlaugur Victor skrifaði undir samning hjá Liverpool á sínum tíma vakti það töluverða athygli að hann gekkst fúslega við því að hafa verið harður aðdáandi erkióvinanna í Manchester United alla tíð. Hann segir það hafa breyst eftir komuna til Liverpool. „Ég er í Liverpool og auðvitað held ég með mínu liði. En samt fylgist ég enn vel með Manchester United og vona að því gangi vel,“ segir Guð- laugur. Kristján Gauti hefur hins vegar alla tíð fylgt Liverpool að málum og segir Michael Owen, sem nú er leik- maður Manchester United, hafa verið sína helstu hetju á yngri árum. „Svo dýrkaði ég allar þessar stjörnur eins og Robbie Fowler, Steven Gerrard og Danny Murphy. Þetta var aðalliðið og það má segja að draumur minn hafi ræst þegar ég gekk til liðs við Liver- pool,“ segir Kristján Gauti að lokum. Svo klikkar heldur aldrei að skella smá karókí í gang þegar strákarnir kíkja í heim- sókn í einn ískaldan. KRISTJÁN GAUTI GUÐLAUGUR VICTOR
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.