Fréttablaðið - 16.10.2010, Page 74

Fréttablaðið - 16.10.2010, Page 74
 16. október 2010 LAUGARDAGUR42 timamot@frettabladid.is GUÐBERGUR BERGSSON rithöfundur er 78 ára í dag. „Ellin er afar heillandi og áhrif hennar, ef manni tekst að losa sig við rótgróna fordóma gagnvart henni.“ Merkisatburðir 1612 Eldgos brýst út í Kötlu. 1793 Marie Antoinette Frakk- landsdrottning, eigin- kona Loðvíks XVI., er hálshöggvin í kjölfar Frönsku byltingarinnar. 1902 Í Reykjavík er Landa- kotsspítali tekinn í notk- un, hann var reistur og rekinn af Sankti Jósefs- systrum. 1905 Verzlunarskóli Reykja- víkur, sem seinna var nefndur Verzlunarskóli Íslands, tekur til starfa. 1923 Walt Disney stofnar Disney-fyrirtækið ásamt bróður sínum Roy. 1973 Olíukreppa hefst á Vest- urlöndum vegna verð- samráðs Samtaka olíu- framleiðenda. 1978 Karol Józef Wojtyła verður páfi sem Jóhann- es Páll II. „Mér líður svolítið eins og ég sé að undirbúa fimmtíu ára afmæli móður minnar. Mér fyndist það bara eðli- legt!“ segir Sólveig Eiríksdóttir, sem gjarnan er kennd við Grænan kost en töfrar nú fram heilsurétti á Gló í List- húsinu Laugardal, þar sem hún held- ur fimmtugsafmælisveislu í dag. „Ég ætlaði ekki að halda upp á afmælið,“ segir hún afsakandi. „En maðurinn minn og vinkona voru byrjuð að undir- búa og bjóða þannig að ég kom bara inn í ferlið. Ég elska að fagna með öðrum en þegar ég sjálf á í hlut liggur við að ég hugsi: „Allt í lagi, ég skal vera í eld- húsinu. En eflaust hef ég gott af því að skipta aðeins um hlutverk.“ Sólveig er dóttir Eiríks Hjartarson- ar, íþrótta- og þýskukennara, og Hild- ar Karlsdóttur píanókennara, Vestur- bæingur í húð og hár en var öll sumur í Kerlingarfjöllum framan af, því faðir hennar var einn þeirra sem stofnuðu skíðaskólann. „Sjálf var hún alltaf ákveðin í að verða handavinnukenn- ari eða leikfimikennari. „Samt fór ég í Samvinnuskólann á Bifröst. Þar kynntist ég fyrsta manninum mínum og fór beint til Danmerkur með honum og bjó þar í sjö ár. Þar lærði ég handa- vinnukennslu, kynntist jóga og breytti um mataræði. Þarna fór nefnilega frjóofnæmi að herja á mig í fyrsta sinn því þegar voraði heima á Íslandi fór ég beint upp í fjöll.“ Hún kveðst reyndar hafa alist upp við heilsusamlegan lífs- stíl hjá foreldrum sínum, sem séu flott- ar fyrirmyndir. „En áhuginn hjá mér kom ekki fyrr en ég þurfti á honum að halda,“ segir hún. Í Danmörku vann Sólveig fyrir sér með saumaskap. „Við vorum nokkrar skólasystur sem leigðum húsnæði á St. Peters Stræde og saumuðum föt til að selja. Þar í nágrenninu var lítill heilsu- veitingastaður sem ég varð ástfangin af og þegar ég síðar opnaði Grænan kost með Hjördísi Gísladóttur, vinkonu minni, þá var hann fyrirmyndin.“ Er Sólveig flutti til Íslands eftir útivistina byrjaði hún að vinna hjá Dóru Einarsdóttur fatahönnuði. „Ég var til dæmis með í að sauma fyrstu Eurovision-búninganna,“ rifjar hún upp. „Það var skemmtilegt að vinna hjá Dóru, hún var skapandi og dálítið á undan sinni samtíð.“ Í framhaldinu fór Sólveig í Mynd- lista- og handíðaskólann og útskrifað- ist sem textílhönnuður. Eitt af því sem fáir vita um hana er að hún vann hönn- unarkeppni hér á landi árið 1991, svo- kallaða Smirnoff-keppni, og var full- trúi Íslands í keppni milli tugþúsunda hönnunarnema. „Búningaskúlptúrar sem ég bjó til úr Álafossull og silki- prenti vöktu mikla athygli og ég end- aði í þriðja sæti, fékk heljarinnar við- tal á MTV og í fjölda erlendra blaða en hér heima var prentaraverkfall þannig að ekki kom stafur um keppnina. Áður en ég fór bauð Stöð 2 mér reyndar í við- tal en ég var svo upptekin og stressuð að ég neitaði.“ Lokaverkefni Sólveigar í Mynd- lista- og handíðaskólanum þótti til þess fallið að fara með það í verk- smiðjur Álafoss til frekari vinnslu en þegar að því kom átti verksmiðjan í rekstrarerfiðleikum. „Á þessum tíma var ég að vinna á grænmetisstaðnum Á næstu grösum með skólanum og þar vantaði kokk í fullt starf. Ég sló til,“ segir hún. „Þannig urðu straumhvörf í lífi mínu nánast á einni nóttu og ég fór úr ullinni í kálið.“ Í framhaldi af þessari kúvendingu stofnaði Sólveig fyrirtækið Grænan kost með Hjördísi og er núna á veit- ingastaðnum Gló. Hún segir skólalær- dóminn hafa nýst henni vel, kennslan hafi komið að notum á matreiðslunám- skeiðunum og hönnunin bæði í sauma- skap og matreiðslu. „Það var líka gott fyrir mig að hafa viðskiptamenntun í farteskinu þegar ég fór út í rekstur. Einhvern veginn fléttaðist þetta óvart allt saman.“ gun@frettabladid.is SÓLVEIG EIRÍKSDÓTTIR: HELDUR UPP Á FIMMTUGSAFMÆLIÐ Í DAG Úr ullinni í kálið á einni nóttu 78 FIMMTUG Í FULLU FJÖRI „Ég elska að fagna með öðrum en þegar ég sjálf á í hlut liggur við að ég hugsi: Allt í lagi, ég skal vera niðri í eldhúsi!“ segir Sólveig. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Magnús Stephensen landshöfð- ingi opnaði formlega telefón- samband milli Reykjavíkur og Hafnarfjarðar þennan dag, árið 1890. Hann var staddur í enda- stöð málþráðarins, eins og sumir kölluðu símann þá, Reykjavíkur- megin. Það var í Aðalstræti 3, hjá Helga Jónssyni kaupmanni. Hafnarfjarðarendinn var í versl- un Chr. Zimsen, kaupmanns við Reykjavíkurveg, og þar sat Jón Þórarinsson þennan dag og átti samtal við landshöfðingjann. Téður Jón Þórarinsson hafði vakið athygli á menningarlegu gildi talsíma og þýðingu hans fyrir viðskiptalíf í blaðinu Ísafold 19. apríl þetta ár. Stuttu síðar var stofnað hlutafélag um að leggja telefón milli Reykjavíkur og Hafnarfjarðar, halda honum við og hagnýta hann. Á þessum tíma var einungis krókóttur götu- slóði milli bæjarfélaganna og hesturinn eina farartækið. Fyrsta daginn sem fónninn var opnaður töluðu fjörutíu manns í hann og eftir fimm daga var tala notenda komin upp í 140. Mikil upphefð þótti að tala í þessa töfravél. Heimild: Söguþættir símans/Heimir Þorleifsson. ÞETTA GERÐIST: 16. OKTÓBER 1890 Málþráður milli bæjarfélagaerf idr yk kjurG R A N D Hlýlegt og gott viðmót á Grand hótel. Fjölbreyttar veitingar lagaðar á staðnum. Næg bílastæði og gott aðgengi. Grand Hótel Reykjavík Sigtún 38, 105 Rvk. Sími: 514 8000 www. grand.is erfidrykkjur@grand.is Verið velkomin Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, Haraldur Þorsteinsson lést á hjúkrunardeild Hrafnistu í Hafnarfirði þann 5. október sl. Útför hans fer fram frá Neskirkju þriðjudaginn 19. október nk. kl. 13.00. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir. Sigurður Haraldsson Jóna Guðjónsdóttir Þorsteinn Haraldsson Lára V. Júlíusdóttir Ingibjörg Haraldsdóttir Sturla Þorsteinsson Ástráður Haraldsson Eyrún Finnbogadóttir barnabörn og barnabarnabörn. Gjótuhrauni 8, 220 Hafnarfirði Sími: 571 0400, legsteinar@gmail.com GRANÍT OG LEGSTEINAR Fallegir legsteinar á einstöku verði Frí áletr un Frændi okkar Andrés Tómasson Hólmgarði 38, Reykjavík er látinn. Útför hans fer fram frá Fossvogskirkju mánudaginn 18. október kl. 13.00. Áslaug Andrésdóttir Kristín Jóhannsdóttir og aðrir ættingjar Útfararþjónustan ehf. Stofnað 1990 Símar: 567 9110 & 893 8638 www.utfarir.is • runar@utfarir.is Alhliða útfararþjónusta Rúnar Geirmundsson Sigurður Rúnarsson Elís Rúnarsson Þorbergur Þórðarson Tilkynningar um merkis- atburði, stórafmæli og útfarir má senda á netfangið timamot@frettabladid.is. Litla gjörningahátíðin 2010 stendur yfir í Vogum á Vatns- leysuströnd og í dag klukkan 15 flytur aðalgestur hátíðar- innar, Essi Kausalainen, verk sitt í Hlöðunni við Egilsgötu 8. Það nefnist Birds, Insect, Seeds – The Shared Struggle of Existence. Essi Kausalainen er meðal þekktustu gjörningalista- manna yngri kynslóðarinnar í Finnlandi og hefur tekið þátt í sýningum og hátíðum víða um heim. Fyrr á árinu hélt hún einkasýninguna Performance Portraits í Muu gallery í Helsinki. Í gær voru Íslendingar atkvæðamiklir á hátíðinni. Nýhil- skáld fluttu ljóðagjörninga víðs vegar um bæinn og verkið Bíltúr jeppi í flutningi Áka Ásgeirssonar, Halldórs Úlfars- sonar og Páls Ivans Pálssonar var í Hlöðunni í gærkveldi. Gjörningahátíð í Hlöðunni Hlaðan er menningarhús í Vogunum. Dagskrá hennar er á www. hladan.org
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.