Fréttablaðið - 16.10.2010, Qupperneq 84
16. október 2010 LAUGARDAGUR
Auglýst eftir
umsóknum um
Eyrarrósina
UMSÓKNUM SKAL FYLGJA:
Lýsing á verkefninu
Lögð skal fram greinargóð lýsing á verkefninu;
umfangi þess, sögu og markmiðum.
Tíma- og verkáætlun
Gera skal grein fyrir stöðu og áætlaðri framvindu
verkefnisins og áformum á árinu 2011. Skilyrði er að
verkefninu hafi nú þegar verið hleypt af stokkunum.
Upplýsingar um aðstandendur
Lagðar skulu fram ítarlegar upplýsingar um helstu aðila sem
að verkefninu standa og grein gerð fyrir þeirra þætti í því.
Fjárhagsáætlun
Tilgreina skal tekjur og gjöld verkefnisins á þessu ári.
Uppgjör ársins 2009 fylgi umsókn.
• Ef umsókn fylgja ekki ofangreindar upplýsingar
verður hún ekki tekin til greina
• Umsækjendur geta verið m.a. stofnun, safn,
tímabundið verkefni eða menningarhátíð
• Úthlutunarnefnd tilnefnir þrjú verkefni úr hópi
umsækjenda um Eyrarrósina 2011
• Eitt þeirra hlýtur viðurkenninguna, 1.500.000 kr.
og verðlaunagrip til eignar
• Viðurkenningin verður veitt í ársbyrjun 2011
á Bessastöðum
• Verndari Eyrarrósarinnar er Dorrit Moussaieff
forsetafrú
• Umsóknarfrestur er til 15. nóvember 2010
og verður öllum umsóknum svarað
• Umsóknir skal senda til Listahátíðar í Reykjavík,
pósthólf 88, 121 Reykjavík, merktar „Eyrarrósin“
Nánari upplýsingar fást hjá
Listahátíð í Reykjavík
í síma 561 2444, artfest@artfest.is
www.listahatid.is
Listahátíð í Reykjavík, Byggðastofnun og Flugfélag Íslands
standa saman að Eyrarrósinni, viðurkenningu sem veitt
er árlega einu afburða menningarverkefni á starfssvæði
Byggðastofnunar á landsbyggðinni.
Verðlaunahafar Eyrarrósarinnar frá upphafi eru:
2005 Þjóðlagahátíðin á Siglufirði
2006 LungA, Listahátíð ungs fólks á Austurlandi
2007 Strandagaldur á Hólmavík
2008 Aldrei fór ég suður, rokkhátíð alþýðunnar á Ísafirði
2009 Landnámssetur Íslands, Borgarnesi
2010 Bræðslan á Borgarfirði eystra
Hömlur ehf., dótturfélag Landsbankans, auglýsa til sölu lager með
eftirfarandi vöruflokkum:
Hestavara, ýmislegt fyrir hesta og hestamenn
Gjafavara, smávarningur úr gjafavöruverslun
Vörurnar eru staðsettar að Smiðjuvegi 1, Kópavogi (við miðju norðurhliðar) og
verða þar til sýnis þriðjudaginn 19. október 2010, kl. 13-16.
Óskað er eftir staðgreiðslutilboði með virðisaukaskatti sem greiðist við afhendingu.
Tilboðið skal miðast við að ekki fari fram talning við afhendingu.
Tilboð óskast í heilan vöruflokk eða í allan lagerinn í heilu lagi, en vöru- og
talninga listar eru ekki til staðar.
Vörurnar eru seldar án ábyrgðar og í því ástandi sem þær eru.
Tilboðum skal skila inn fyrir kl. 12 fimmtudaginn 21. október
til olafur.jonsson@landsbankinn.is.
Hömlur ehf. áskilja sér rétt til að taka hvaða tilboði sem er eða hafna
öllum tilboðum.
LAGER
TIL SÖLU
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
Laugardagur 16. október
➜ Tónleikar
13.00 Í Norræna Húsinu koma fram
hljómsveitirnar My Bubba and Mi, Nive
Nilsen, Zach & Foes og Útidúr í sam-
starfi við Iceland Airwaves. Tónleikarnir
standa frá 13- 17. Aðgangur er ókeypis.
15.00 Í Bókabúð Máls og menningar
verða tónleikar í samstarfi við Iceland
Airwaves. Fram koma hljómsveitirnar Of
Monsters & Men, Klassart, Save Public,
Prins Póló og Angel Deradoorian. Tón-
leikarnir standa frá 15 til 20.
20.00 Páll Rósinkranz verður með tón-
leika í Salnum, Kópavogi í kvöld undir
yfirskriftinni Brot af því besta í bland við
nýtt efni. Aðgangseyrir er 3.500 krónur.
22.00 Hljómsveitin Nýdönsk tekur fyrir
allt það besta frá sínum ferli á Græna
Hattinum á Akureyri í kvöld. Tónleikarnir
hefjast kl. 22.00 og er forsala á tónleik-
ana í Eymundsson.
22.00 Lame Dudes halda tónleika á
Kryddlegnum hjörtum í kvöld kl. 22.00
undir yfirskriftinni „A Lame Tribute to J. J.
Cale”. Á tónleikunum verður safnað fjár-
framlögum fyrir „Konur og krabbamein”.
➜ Opnanir
16.00 Sýning Piu Rakelar Sverrisdótt-
ur GRAPHIC LANDSCAPES verður opnuð
í Listasal Mosfellsbæjar í dag kl. 16 til
19, en sýningin stendur til 6. nóvember.
Aðgangur ókeypis.
➜ Sýningar
11.00 Hundaræktunarfélagið REX
heldur um helgina árlega haustsýningu
í Reiðhöll Gust við Álalind í Kópavogi.
Dagskrá stendur yfir frá 11-17.00 báða
dagana.
➜ Námskeið
17.15 Námskeið verður haldið í fram-
sögn – leikrænni tjáningu á vegum
Félags eldri borgara í Reykjavík. Það
mun verða á þriðjudögum kl. 17.15-
18.30 og hefst 19. október. Skráning er
hafin á skrifstofu félagsins, s. 588-2111.
Kínó klúbburinn og Listasafn Reykja-
víkur bjóða upp á námskeið í gerð
kvikmynda án notkunar myndavélar fyrir
börn á aldrinum 8-15 ára. Námskeiðið
er ókeypis.
➜ Leikrit
12.30 Þórunn Erna Clausen sýnir brot
úr einleiknum Ferðasaga Guðríðar í leik-
stjórn Maríu Ellingsen á Kjarvalsstöðum
í dag kl. 12.30. Sýningin er hluti af dag-
skrá samvinnuverkefnis Safnaskotta og
Listasafns Reykjavíkur. Ókeypis aðgangur.
14.00 Í tilefni af 20 ára afmæli sínu
býður Möguleikhúsið til afmælisfagn-
aðar fyrir alla fjölskylduna í Gerðubergi í
dag kl. 14.00. Aðgangur er ókeypis.
➜ Leiðsögn
14.00 Myndlistarkonan Aðalbjörg
Þórðardóttir/Abba verður með leiðsögn
um sýningu sína Hugarflug um helgina.
Sýningin er í Reykjavík Art gallerí, að
Skúlagötu 30. Leiðsögnin hefst kl. 14
bæði laugardag og sunnudag.
➜ Útivist
10.15 Hjólreiðaferð verður farin frá
Hlemmi á vegum LHM.is. Lagt er af
stað kl. 10.15 og hjólað í 1-2 tíma um
borgina. Allir eru velkomnir og þátttaka
ókeypis.
Sunnudagur 17. október
➜ Hátíðir
13.30 Menningarhátíð barna verður
haldin hátíðleg í Hofi á Akureyri undir
yfirskriftinni Börn fyrir börn. Aðgangur
að hátíðinni er ókeypis og hefst hún kl.
13.30.
➜ Opið Hús
14.00 Í dag, sunnudag á milli kl. 14-
16 verður sungið og kveðið í kaffihúsi
Gerðubergs. Að þessu sinni er þemað
álfar, tröll og vættir. Ókeypis aðgangur.
➜ Kvikmyndir
14.00 Í Norræna húsinu verður sýnd
heimildarmyndin Hærra ég og þú eftir
Bjarna Grímsson um hljómsveitina
Hjálma. Sýningin er í samstarfi við Ice-
land Airwaves. Aðgangur ókeypis.
➜ Dansleikir
20.00 Dansleikur Félags eldri borg-
ara í Reykjavík og nágrenni verður að
Stangarhyl 4, sunnudagskvöld kl. 20.00 -
23.00. Danshljómsveitin Klassík leikur
danslög við allra hæfi.
➜ Leiðsögn
14.00 Í dag kl. 14 verður farið í fjöl-
skylduleiðangur um sýninguna Að elta
fólk og drekka mjólk í Hafnarborg.
Aðgangur ókeypis.
14.00 Árdís Olgeirsdóttir sýningarstjóri
verður með leiðsögn í Hönnunarsafni
Íslands kl. 14 í dag, en á sýningunni eru
hlutir eftir Siggu Heimis.
14.00 Ólafur Ingi Jónsson forvörður
fjallar um efni og gerð nokkurra valinna
listaverka á sýningunni Áfangar, verk
úr safneign sem nú stendur yfir í Lista-
safni Íslands við Fríkirkjuveg. Leiðsögn
hefst kl. 14.00.
15.00 Hildur Hákonardóttir tekur þátt í
leiðsögn um sýninguna Með viljann að
vopni kl. 15.00. Aðgangur er ókeypis.
➜ Samkoma
14.00 Félagsvist er haldin í Breiðfirð-
ingabúð Faxafeni 14 og hefst kl. 14.00.
Upplýsingar um viðburði sendist á
hvar@frettabladid.is
Leikfélagið Peðið sýnir nú
í dag og á morgun, sunnu-
dag, kl. 16 leikritið Sögur af
mannlífsklakanum eftir Jón
Benjamín Einarsson í leik-
stjórn Björns Gunnlaugsson-
ar með tónlist eftir Magnús
R. Einarsson.
Sögur af mannlífsklak-
anum eru þrjú samtalsverk
úr hversdagsleikanum.
Þau fjalla í léttum dúr um
samskipti fólks á okkar
tímum óháð hruni og
myntkörfulánum.
Orðið Mannlífsklaki er
fengið að láni frá Jóhannesi
Birkiland, sem átti á sínum
tíma í brösum með samferða-
menn sína.
Bækistöðvar Peðsins voru
áður á Grand rokk en nú
sýnir það á Gallery bar 46 á
Hverfisgötu 46. Miða á leik-
ritið er hægt að panta í síma
561 0700.
Mannlífs-
klaki Peðsins