Fréttablaðið - 16.10.2010, Side 86

Fréttablaðið - 16.10.2010, Side 86
54 16. október 2010 LAUGARDAGUR folk@frettabladid.is Ný stuttmynd eftir hönnuð- inn Ásgrím Má Friðriksson var frumsýnd við mikinn fögnuð í versluninni Kiosk á fimmtudaginn var. Ásgrím- ur er líklega þekktastur sem fatahönnuður en hann stundar nú nám við Kvik- myndaskóla Íslands. Hann er einnig einn af eigendum verslunarinnar Kiosk sem selur einstaka íslenska hönnun eftir unga og efni- lega hönnuði. - sm Flottir gestir á frumsýningu LEIKSTJÓRINN SÆLL Ásgrímur Már Friðriksson og Arna Sigrún Haraldsdóttir sæl á frumsýningunni. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK Hönnuðurinn Hlín Reykdal, María Björg Sigurðardóttir og Eygló Lárusdóttir hönn- uður voru á meðal gesta. Eva Gunnbjörnsdóttir og Vala Árnadóttir mættu á sýninguna. Systurnar Ýr og Erna María Þrastardætur létu sig ekki vanta. Kvikmyndin Órói var frumsýnd á fimmtudagskvöld í Sambíóun- um við Álfabakka. Aðstandendur myndarinnar mættu að sjálfsögðu á svæðið og voru í sannkölluðu hátíðarskapi. Órói þykir vel heppnuð mynd en hún er byggð á unglingabókum Ingibjargar Reynisdóttur. Hún fjallar um hinn sextán ára Gabrí- el, sem í byrjun myndarinnar er í sumarskóla í Bretlandi og kynnist þar Markúsi. Þar gerast ákveðn- ir hlutir sem leiða til þess að líf hans breytist. Þegar hann kemur til Íslands þarf hann að horfast í augu við þær breytingar. Með aðal- hlutverk fara Atli Óskar Fjalarson, Hreindís Ylva Garðarsdóttir Hólm og Haraldur Ari Stefánsson. Leik- stjóri er Baldvin Z og er þetta fyrsta kvikmynd hans í fullri lengd. Sjá gagnrýni á síðu 60 Hressileg unglingaskemmtun Á FRUMSÝNINGU Leikstjórinn Baldvin Z ásamt Kristínu Pétursdóttur, Hreindísi Ylfu Garðarsdóttur Hólm og Vilhelmi Þór Neto. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON Leikkonurnar Ísgerður Gunnarsdóttir og Hreindís Ylfa. Leikarinn Bergur Þór Ingólfsson ásamt dóttur sinni Urði Bergsdóttur. Sara Jakobsdóttir og Hálfdán Pedersen mættu á frumsýninguna. „Þetta var bara hræðilegt,“ segir Elvar Geir Sævarsson úr hljómsveitinni Hellvar. Fimm krakkar úr efstu bekkjum grunnskóla Reykjanesbæjar ætluðu að fylgjast með rokksveitinni Ham stilla saman strengi sína fyrir tónleika sína á Nasa á fimmtudagskvöld. Krakkarnir, sem eru í rokkáfanga hjá Elvari Geir, höfðu fengið leyfi hjá skipuleggjend- um Airwaves til að fylgjast með einni af uppáhaldshljómsveitum sínum. En þegar Ham-liðar þurftu að fresta undir- búningnum um fjóra klukkutíma vegna borgarráðsfundar söngvarans Óttars Proppé urðu krakkarnir, sem höfðu gert sér sérstaka ferð til Reykjavíkur, fyrir miklum vonbrigðum. „Ég veit að þetta var ákveðið kvöld- ið áður en ég veit ekki í hverra verka- hring var að láta vita af þessu,“ segir Elvar. Hann er sjálfur mikill Ham- aðdáandi og var mættur á tónleika sveitarinnar um kvöldið þrátt fyrir vonbrigðin fyrr um daginn. „Ég var með smá beiskt eftirbragð. Mér fannst þeir skömmustu- legir uppi á sviði. Það var eins og þeir hefðu slæma samvisku,“ segir hann í léttum dúr og vill taka skýrt fram að hann og krakkarnir beri engan kala til pilt- anna í Ham. Söngvara Ham, Óttari Proppé, þykir þetta mál mjög leiðinlegt og kennir samskipta- leysi hjá skipulagsaðilum hátíðarinnar um. „Ég hef ekki hugmynd um hvar í ferlinu þetta fór úrskeið- is en við viljum endilega bjóða þeim á næsta „sánd- tékk“, hvenær sem það verður.“ - fb Skólakrakkar misstu af Ham ELVAR GEIR SÆVARSSON Elvar Geir og nemendur hans úr Reykjanesbæ misstu af rokksveitinni Ham. > DRUKKIN AÐ VENJU Söngkonan Amy Winehouse mætti drukkin í blaðaviðtal á dögunum. Winehouse var svo drukkin að hún átti erfitt með að skilja spurning- arnar sem blaðamaðurinn lagði fyrir hana. Innt eftir því hvort hún væri hamingjusöm svar- aði hún: „Hvað meinarðu? Ég er hamingjusöm með þetta salat.“ Rokkaradóttirin Kelly Osbourne segist finna fyrir meiri andúð í sinn garð frá kynsystrum eftir að hún grenntist um 22 kíló. Osbourne vill meina að stelpur hafi hætt að finnast hún skemmti- leg og líti nú á hana sem keppi- naut. „Þær stelpur sem vana- lega heilsuðu mér eru hættar því núna,“ segir Osbourne í viðtali við netmiðla vestanhafs. Osbourne segir jafnframt að sér þyki nýtt útlit sitt ennþá fram- andi og að hún eigi eftir að venjast því að geta farið í þrönga kjóla án þess að vera á innsoginu. Hötuð fyrir megrun BARA KREISTA! H V ÍT A H Ú S IÐ /S ÍA – 1 0 -1 2 0 4
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.