Fréttablaðið - 30.10.2010, Blaðsíða 8

Fréttablaðið - 30.10.2010, Blaðsíða 8
8 30. október 2010 LAUGARDAGUR aðra leiðina + 990 kr. 22. okt. – 7. nóv. 2010 (flugvallarskattur) Þetta einstaka tilboðsfargjald gildir til allra áfangastaða Flugfélags Íslands innanlands er fyrir börn, 2 –11 ára, í fylgd með fullorðnum og í sömu bókun býðst eingöngu þegar bókað er á netinu, www.flugfelag.is ferðatímabil 22. okt. – 7. nóv. 2010 bókanlegt frá 21. okt. 2010 1 króna fyrir barnið www.flugfelag.is | 570 3030 VÍSINDI Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra telur að stefna eigi að því að hlutfall opin- berra fjármuna til rannsókna og þróunarstarfs fari að meira leyti í gegnum samkeppnis- sjóði en nú er gert. Hún segir það opinbera stefnu stjórn- valda og telur að öll ráðuneyti ættu að fylgja þeirri stefnu. „Þetta er stefna Vísinda- og tækniráðs, sem er sá aðili sem markar stefnu stjórnvalda,“ segir Katrín í samtali við Fréttablaðið. „Hlutur samkeppnissjóða hefur verið að aukast undanfarið þótt það hafi ekki alfarið komið til af góðu. Samkeppnissjóðir hafa verið skornir niður um fjögur prósent síðustu þrjú ár á meðan framlög til háskóla hafa verið skorin niður um sextán prósent. Það sýnir okkar forgangsröðun, en við vildum helst sjá þetta hlutfall fara upp í um það bil þriðjung, sem er svipað og er í nágrannalöndum okkar.“ Eins og fram hefur komið í Fréttablaðinu upp á síðkastið hefur fyrirkomulag rannsóknarsjóða og opinberra framlaga til rannsókna og þróunarstarfs sætt gagnrýni í fræðasamfélaginu. Þar er kallað eftir því að fjármunum sé dreift í gegnum samkeppnissjóði. Það felur í sér að óháð faglegt ráð, skipað alþjóðlega viðurkenndum vísindamönnum, meti umsóknir um styrki og fylgi því eftir með mati á verkefnunum, sem sé svo lagt til grundvallar þegar viðkom- andi sæki um styrki að nýju. Sérstaklega hafa spjótin staðið á Jóni Bjarnasyni, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, sem hefur tæplega 2,4 milljarða króna til rannsóknarstarfs. Þar af renna um 1,3 milljarðar til Hafrann- sóknastofnunar, en afgangurinn fer meðal annars í gegnum hina ýmsu sjóði. Í svari við fyrirspurn Frétta- blaðsins fyrr í mánuðinum sagði Jón að ekki stæði til að breyta fyrirkomulaginu, til dæmis með því að færa sjóðina undir Rann- sóknarsjóð. Með núverandi skipu- lagi væri „stuðlað að beinni teng- ingu við atvinnuvegina“, sem væri í samræmi við óskir aðila í sjávar- útvegi og landbúnaði, og ráðuneyt- ið styddi þeirra sjónarmið. Katrín segir hins vegar að stjórnvöld skuli fylgja sömu stefnu hvað varðar framlag til rannsókna og þróunarstarfs, óháð ráðuneyt- um. „Ég lít á það þannig. Í Vísinda- og tækniráði sitja margir ráðherr- ar. Þar er stefna stjórnvalda mótuð og það skiptir máli að fylgja því eftir.“ thorgils@frettabladid.is Öll ráðuneytin eiga að fylgja stefnu Vísindaráðs Menntamálaráðherra segir stjórnvöld stefna að eflingu samkeppnissjóða. Staðinn hafi verið vörður um slíka sjóði í niðurskurði. Núverandi fyrirkomulag hefur sætt mikilli gagnrýni í fræðasamfélaginu. KATRÍN JAKOBSDÓTTIR RANNSÓKNIR Menntamálaráðherra styður eflingu samkeppnissjóða í úthlutun opin- berra framlaga til rannsókna og þróunarstarfs. Myndin tengist fréttinni ekki beint. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM Vísinda- og tækniráð hefur það hlutverk að efla vísindarannsóknir, vísinda- menntun og tækniþróun í landinu og markar stefnu stjórnvalda í vísinda- og tæknimálum til þriggja ára í senn. Forsætisráðherra fer fyrir ráðinu en þar sitja einnig iðnaðarráðherra, mennta- málaráðherra og fjármálaráðherra auk sextán fulltrúa sem eru tilnefndir af ráðuneytum, háskólum og aðilum vinnumarkaðarins auk þess sem forsætis- ráðherra getur skipað fjóra ráðherra til viðbótar. Í stefnu ráðsins fyrir árin 2009 til 2012 segir: „Ítrekað hefur verið bent á að hér á landi fari of lítill hluti opinberra fjárveit- inga til rannsókna og nýsköpunar í gegnum samkeppnissjóði.“ „Samkeppnissjóðir sem byggjast á vönduðu gæðamati umsókna og nánu samstarfi á milli háskóla, rannsóknastofnana og fyrirtækja, eru forsenda fyrir öflugu rannsókna- og nýsköpunarstarfi. Standa þarf vörð um og efla samkeppnissjóðina á næstu árum og sameina sjóði þar sem það á við. Samkeppnissjóðir þurfa að vinna nánar saman að ákveðnum verkefnum.“ Hvað er vísinda- og tækniráð? VIÐBURÐIR Dr. Michael Porter, prófessor við Harvard-háskóla og einn helsti fræðimaður heims á sviði stefnumótunar og samkeppnis- hæfni þjóða, sækir landið heim eftir helgi. Hann kom hingað síðast árið 2006. Næsta mánu- dag kynnir Porter á ráð- stefnu í Háskólabíói nýja rann- sókn sem unnin var undir for- ystu hans á klasamyndun í íslenskum jarðvarmageira. Erindi hans nefnist: Icelandic Geothermal: Turning the Clust- er into an engine of renewed Icelandic growth. Dagskrá er að finna á www. icelandgeothermal.is. - óká Ráðstefna haldin á mánudag: Kynna klasa í jarðvarmageira MICHAEL PORTER ÖRYGGISMÁL Ítarlegri kröfur um öryggiskerfi og laugargæslu eru gerðar í nýrri reglugerð um sund staði sem Svan dís Svavarsdóttir umhverfis ráðherra hefur undir- ritað. „Þá eru aukn- ar kröfur gerðar um öryggi barna og sérstakar kröfur gerðar til sundlaugavarða, kennara og þjálfara,“ segir í til- kynningu umhverfis ráðu neytisins. Við hönnun nýrra lauga og endur- gerð eldri skal gera ráð fyrir nauð- synlegri lýsingu og öryggiskerfi á borð við myndavélar. Þá eiga sundstaðir að hafa stöðuga laugar- gæslu meðan gestir eru í laug. - óká SVANDÍS SVAVARSDÓTTIR Ný reglugerð undirrituð: Öryggi sund- staða aukið 1 Hversu hátt verður áætlað gjald fyrir ferðamenn á Hakinu við Almannagjá á Þingvöllum? 2 Í hversu mörgum eintökum verð- ur ævisaga Jónínu Benediktsdóttur prentuð? 3 Verður næsta Batman-mynd í þrívídd? SVÖR REYKJAVÍKURBORG Fulltrúar minnihluta sjálfstæðismanna og VG í borgarráði vilja svör um möguleg viðbrögð Reykjavíkur- borgar við því að fræðslu- og ferðaþjónustuverkefni Orku- veitu Reykjavíkur hafi verið aflögð. Mikill safnkostur liggi undir skemmdum ef ekkert verði aðhafst. Lokun gestamóttöku í Hellis- heiðarvirkjun geti haft afdrifa- ríkar afleiðingar fyrir ferðaþjón- ustuna. Huga þurfi að varðveislu safnkosts í Elliðaárdalnum. „Að sama skapi þarf að gera ráðstaf- anir til að tryggja að áfram geti innlendir og erlendir ferðamenn kynnt sér jarðvarmaverkefnin í kringum höfuðborgar svæðið,“ segir í bókun fulltrúanna. - gar Minnhluti borgarráðs vill svör: Hver fræðir um orkumálin? 1. 200-300 krónur 2. Tíu þúsund eintök- um 3. Nei VEISTU SVARIÐ?
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.