Fréttablaðið - 30.10.2010, Síða 70

Fréttablaðið - 30.10.2010, Síða 70
38 30. október 2010 LAUGARDAGUR Í ÞÁ TÍÐ... Kaffi, pósthús og Big Lebowski MYNDBROT ÚR DEGI | Miðvikudaginn 27. október | Tekið á Canon IXUS60 Tónlistarmaðurinn Jónas Sigurðsson gaf nýlega út aðra plötu sína, Allt er eitthvað, ásamt hljómsveitinni Ritvélar framtíðarinnar og hefur skífan hlotið frábærar viðtökur. Jónas brallaði ýmislegt á miðvikudaginn eins og ljósmyndirnar sýna. 1 Fullkominn morgunn byrjar á afslöppuðum morgunskrif-um með kaffibolla og teppi fyrir framan fartölvuna. Það er siður sem ég byrjaði á í Danmörku og hef reynt að halda í síðan þótt það gangi upp og niður. 2 Heimsókn í Stúdíó Sýrland til þeirra Benzín-bræðra Barkar og Daða. Þeir eru búnir að taka stúdíóið alveg í gegn og það er hrein unun að kíkja í heimsókn til þeirra í kaffi og spjalla um lífsins gögn og nauðsynjar. 3 Næsta stopp pósthúsið að senda tónlistaráhugamönnum, vinum og velvildaraðilum nýja diskinn. Í þetta sinn voru eintök að fara til Svartfjallalands, Englands, Danmerkur, Djúpavogs, Frakklands og víðar. 4 Heima beið lítil sæt frænka sem er í miklum metum á heim- ilinu og var nú komin í heimsókn. Meðal ann- ars til að kitla frænda sinn. 5 Elliðaárdalur er uppáhalds hlaupasvæðið. Góð leið til að rífa sig upp seinni part dags er að hlaupa góðan hring um dalinn. Þarna er ég á leiðinni niður aftur, Árbæjarmegin. 6 Eftir góðan dag og kvöldmat með fjölskyldunni fer dóttirin út á Skrekkæfingu og við Matti sonur minn tökum til við að horfa á The Big Lebowski sem við höfum verið að horfa á saman síðustu kvöld. Skemmtum okkur konunglega yfir henni og skríðum svo í háttinn. Fyrir réttum 50 árum hófst einn farsælasti atvinnumannaferill sög-unnar þegar ungur hnefaleikakappi frá Kentucky, Cassius Clay að nafni, sigraði í sínum fyrsta bardaga sem atvinnumaður. Eftir magnaðan feril sem áhugamaður þar sem hann vann 100 viðureignir á móti 5 töpum kom hann, sá og sigraði á Ólympíuleik- unum í Róm árið 1960 þar sem hann hlaut gullverðlaun í léttþunga- vigt. Clay, sem síðar tók nafnið Muhammad Ali, steig fyrst inn í hring- inn sem 18 ára atvinnumaður 29. október 1960 og mætti þar Tunney nokkrum Hunsaker. Hunsaker, sem var lögreglustjóri í smábænum Fayetteville í Vestur- Virginíuríki, mátti sín lítils, en stóð þó af sér orrahríðina og úrskurð- uðu dómarar að Clay væri sigurvegarinn eftir sex lotur. Augu Hunsakers voru svo bólgin eftir bardagann að hann sá ekki út úr þeim. Eftir á sagðist hann aldrei hafa séð annan eins hraða, hann hefði reynt öll trikkin sem hann kunni en til lítils. Hunsaker var þó enginn aukvisi því að Ali sagði sjálfur í ævisögu sinni að í þessum slag hefði hann fengið eitt þyngsta skrokkhögg sem hann hefði nokkru sinni upplifað, en ágætur kunningsskapur upphófst milli þeirra tveggja í framhaldinu. Ekki þarf að fjölyrða um feril Ali, sem varð einn mesti og umdeildasti íþróttamaður næstu tuttugu ára. Hann varð fyrst heims- meistari árið 1964 þegar hann sigraði Sonny Liston, en missti titilinn í síðasta sinn árið 1978. Ali er almennt álitinn besti hnefaleikakappi allra tíma. - þj Byrjaði með sigri Muhammad Ali lagði lögreglustjóra í fyrsta atvinnubardaganum. 1900ÁR 2010200019501960 INNTAKA NÝNEMA Í LÖGREGLUSKÓLA RÍKISINS Auglýst er eftir hæfum umsækjendum til að stunda almennt lögreglunám við grunnnámsdeild Lögregluskóla ríkisins. Umsóknarfrestur er til 15. nóvember 2010. NÁMIÐ Skiptist í bóknám og starfsnám og hefst þann 1. febrúar 2011. Það stendur yfir í a.m.k. tólf mánuði og þar af verður starfsnám a.m.k. fjórir mánuðir. RÉTTINDI SEM NÁMIÐ VEITIR Hver sá sem lýkur almennu lögreglunámi með fullnægjandi árangri er hæfur til að sækja um laus störf lögreglumanna í lögreglu ríkisins. Hann þarf að uppfylla skilyrði lögreglulaga til að geta hlotið skipun til slíkra starfa til fimm ára í senn. AÐ HVERJUM ER LEITAÐ Lögreglustarfið er um margt spennandi og krefjandi vettvangur fyrir dugandi fólk enda eru líklega ekki gerðar jafn fjölþættar kröfur til umsækjenda um mörg önnur störf. Gerð er krafa um lágmarks menntun en líka gott andlegt og líkamlegt atgervi því í lögreglustarfinu reynir á ýmsa ólíka eiginleika þeirra sem því sinna. Reyndin er sú að umsækjendur hafa fjölbreyttan bakgrunn og lögreglan hefur gegnum tíðina fengið til liðs við sig afbragðs starfsfólk með t.d. iðnmenntun og aðra fagmenntun auk þess sem háskólamenntuðum hefur fjölgað á síðustu árum. Þá er góður kostur að hafa fjölþjóðlega reynslu. Leitað er að skynsömum, jákvæðum, hraustum og reglusömum konum og körlum sem eiga auðvelt með mannleg samskipti. NÁNARI UPPLÝSINGAR Upplýsingar um inntökuskilyrðin, námið, feril umsókna, inntökuprófin, umsóknar- eyðublöð, læknisvottorð og handbók valnefndar er að finna á lögregluvefnum, www.logreglan.is undir Lögregluskóli ríkisins - Inntaka nýnema. Nánari upplýsingar veitir Gunnlaugur V. Snævarr, yfirlögregluþjónn hjá Lögregluskóla ríkisins og formaður valnefndar Lögregluskóla ríkisins, í síma 577 2200. 27. október 2010 RÍKISLÖGREGLUSTJÓRINN G ra fik a 10
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.