Morgunn - 01.12.1922, Page 8
102
MORG UNN
ura eftir aö þær voru komnar inn til hennar sagðist
Rósa ætla að fara úr líkamanum og lofa Dr. Beale að
koma. Hún lokaði augunum, fjekk eins og ofurlítinn
titring og á næsta augnabliki var farið að tala af vörum
hennar með djúpri karlmannsrödd, sem var gjörólík rödd
Rósu. »Jæja, eg var ekki lengi að því að koma, eða
hvað finst ykkur?* var sagt.
Dr. Beale spurði tafarlaust eftir hlutunum, sem frú
B. hafði meðferðis, hjelt þeim hvorum eftir annan upp
að enninu á Rósu og tók að lýsa einkennum sjúkdóms-
ins og segja sögu hans. Hann talaði svo hátt, að frú B.
fór að verða hrædd um að fólk mundi fara að þyrpast
að dyrunum á herberginu og hlusta; mönnum mundi
þykja það undarlegt, að ekki hefðu farið inn í herbergið
aðrir en þrjár konur, og nú væri hávær karímaður far-
inn að tala þarna. Hún sagði, að bezt mundi vera að
ljúka upp hurðinni og líta fram á ganginn, en hinn ósýni-
legi komumaður fullyrti brosandi, að hann sæi gegnum
hurðina og enginn væri fyrir utan. Þá hjelt hann áfram
nákvæmri lýsingu á fyrverandi og þáverandi heilsufari
sjúklingsins. Vandlega hafði verið varast að láta frú
Fair eða Rósu fá nokkra vitneskju um það, hvernig sjúk-
dóminum væri háttað.
Dr. Beale sagðist halda, að gæti hann komið miðl-
inum til sjúklingsins, mundi hann geta hjálpað, og að
hann ætlaði að byrja á því að reyna að koma blóðrás-
inni i betra lag. Hann gaf fyrirskipanir um meðöl og
matarhæfi. Frú B. spurði, livort hann mundi geta haft
miðiliun hiá sjúklingnum að staðaldri, til þess að geta
komið lækningunni í framkvæmd. Hann kvaðst hræddur
um að þess yrði langt að bíða — sjálfsagt af því að
hann hafði svo marga sjúklinga; hann gæti ekki meira
gert, en komið með miðilinn eitt eða tvö kvöld, í því
skyni að komast í nánara samband við sjúklinginn og
gefa nákvæmari fyrirmæli um lækninga-aðferðina. En
hann lagði til, að fengin yrði kona, sem kynni nudd-