Morgunn - 01.12.1922, Page 27
MORGUNN
121
að lækna þá, eða til hins, að hugga þá og hughreysta
með vissunni um nálægð og aðstoð og ástríki hins ósýni-
lega heims.
Þá skal eg að eins víkja að því með örfáum orðum,
að auðvitað greinir menn á um það, hver Dr. Beale sé.
Sumir vilja gera hann að undirvitund þeirra Bósu og
ungfrú Forest. Ef til vill er réttara að orða það svo, að
þeir geri sér í hugarlund, að hjá Rósu sje um ekkert ann-
að að tefla en tvískifting persónuleikans, og Dr. Beale sé
ekki annað en þáttur úr sálarlífi hennar, og að þegar
ungfrú Forest sér hann daglega við lækningatilraunirnar,
þá sje það ekki annað en ofsjónir.
Mór er ókleift að taka þá getgátu til athugunar í
kvöld. Til þess þyrfti að minsta kosti einn sérsakan
fyrirlestur, en að líkindum fleiri, ef ganga ætti frá efninu
rækilega.
Sjálfsagt er að benda á það, að Dr. Beale hefir ekki
sannað sig með neinum endurminningasönnunum Hvern-
ig sem á því stendur, er það sjaldgæft, ef ekki dæma-
laust, að helztu miðla-stjórnendurnir haíi sannað sig. »Im-
perator* gerði það ekki, hvorki hjá Stainton Moses né hjá frú
Piper, né »Dr. Phinuit* hjá frú Piper, né »Konráð« hjá Ind-
riða Indriðasyni, né Dr. Beale hjá Rósu. Konráð gerði þá
þágreinfyrir þvíviðokkur.að verk sitt væri meira og vanda-
samara en svo, að hann gæti í viðbót tekið að sér að
koma með endurminninga sannanir, sem væri líka vanda-
samt verk. Mér virðist sú skýring alls ekkert ósennileg.
Vegna þessa sannanaleysis stjórnendanna hafa jafnvel
sumir þeirra manna, sem hafa sannfærst um, að sam-
band haíi fengist við ósýnilegan heim, hallast að þeirri
tilgátu, að aðalstjórnendurnir séu þættir úr vitund miðl-
anna, þó að framliðnir menn kunni að gera vart við sig
líka hjá þeím miðlum. Eg hefi ekki getað séð, að nein-
ar verulega sennilegar líkur sóu færðar að þeirri tilgátu,
og því síður eru nokkurar sannanir til fyrir henni. En
rétt þykir mjer að hinu leytinu að geta þess, að sá mað-