Morgunn - 01.12.1922, Blaðsíða 66
160
MORGUNN
erfítt að gera osb nokkra greinilega hugmynd um það
ástand, sem þeir eru i, eða flytja fregnir yflr i efnisheim-
inn um útlit og ásigkomulag hins andlega heims, eins og
hann er í raun og veru. Þær fregnir hljóta að meira
eða minna leyti að vera fólgnar í líkingum, enda virðist
reynslan staðfesta að svo sé. Fregnirnar um ásigkomu-
lag annars heims geta verið sannar eigi að síður, þvi
allar líkingar fela i sér sannleika og hann einatt meir en
lítinn.
Til þess að geta gert vart við sig hjá þeim, sem enn
eru í likamanum, verður hinn fratnliðni að sjálfsögðu
undir flestum kringumstæðum að nota mannsheila, því
þetta áhald vort, til þess að breyta vitundarlífi voru í
hugsun, er vitanlega úr sögunni hjá hinum framliðna.
Þess vegna meðal annars er það næsta eðlilegt, að fyrir-
brigðin, sem sögð eru að stafa frá öðrum heimi, séu að
mestu leyti fólgin i því að lýsa endurminningum frá jarð-
vistinni og að sýua sig og sanna eins og maður var með-
an dvalið var í jarðneska likamanum. Heili miðilsins á
vafalaust langauðveldast með að flytja þau skeytin inn í
skynheiminn, sem í fyrsta lagi lýsa sendanda eins og hann
var hér í lífi eða eins og vér þektum hann, sem í öðru
lagi snerta þær hugsanir og þau mál, sem næst standa
sendanda eins og vér þektum hann hér á jörðunni og l
priðja lagi þau, sem fjalla um mannleg efni þ. e. a. s.
þau efni, sem snerta oss hér í heimi. —
Skeytunum að handan hefir líka einatt verið fundið
það til foráttu, að þau væru oft svo lítilmótleg, að þau
þegar af þeirri ástæðu gætu ekki stafað frá öðrum heimi.
En þegar betur er að gáð, er það i hæsta máta eðlilegt,
að það séu einmitt hversdagslegu hlutirnir, sem hægast
er að koma í gegn, eða öllu heldur, að með aðstoð híns
hversdagslega takist best að koma hinum óumræðilega
mikilvægu sannindum um veruleik hins ósýnilega heims
til vor. Hinsvegar neitar vist enginn því, sem þekkir
nokkuð að ráði af þeim fregnum, sem borist hafa handan