Morgunn - 01.12.1922, Síða 128
222
MORGUNN
Mér fanst mér líða svo vel, og hjartað fyltist óumrœði-
legum fögnuði. Eg var eins og í leiðslu.
En svo komum við heim og eg skamtaði fólkinu
mínu, og tók svo pi’jónana mína og gekk út, því að
eg vildi helzt vera ein með minar hugsanir. Mér varð
þó reikað til næsta bæjar, sem er örskamt héðan; það
var óvanalegt, því að ekki átti eg neitt erindi. Þar
bjó mágur minn og kona hans. Þegar eg kom þar inn í
baðstofuna, sem var í einu lagi og mjög lág og lítil, lá
mágur minn uppi í rúminu sínu. Það var stafnrúm norðan-
megin i baðstofuuni. Hann svaf, en konan sat á sínu
rúmi, sem var stafnrúm að sunnan, og var að bæta
föt. Gluggi var á austurhlið baðstofunnar og borð undir
honum, rétt framan við rúmið. Gamalt kúfort stóð við
borðsendann, sem fjær var rúminu, og settist eg þar. Við
konurnar fórum svo að ræða um daginn og veginn; veðrið
var hið bezta og sólin skein inn um lítinn glugga, sera
var á vesturhlið baðstofunnar, og var lítill sólskinsblettur
á gólfinu framan við borðið. Nú vaknar bóndinn, geng-
ur að borðinu, litur út um gluggann, sem var yfir borð-
inu, og var hann að gá að lambánum sínum, sem voru á
beit alt í kringum bæinn. Alt var með friði og spekt að
sjá. Börnin þeirra hjónanna, sem voru mörg, voru lika
að leika sér þarna kringum bæinn. Þá gengur maður-
inn frá glugganum fram um baðstofudyrnar og út; en
þegar hann er rétt farinn, verður mér litið á gólfið, þar sem
hann hafði staðið við borðið, og sá eg þá, mér til mikillar
undrunar, fagurrauðan blóðdropa. Eg segi þá við kon-
una: »Sérðu ekki blóðið á gólíiuu, þarna i sporiiiu hans«.
í því myndast sporið í fullri stærð af dökku blóði, en
fagurrauði dropinn heldur sér innan i. Hann var kringlótt-
ur að iögun. Eg leit þá augnablik af þessu; en þá eru
komnir aðrir tveir blóðdropar áfastir hvor við annan og
lítið eitt aflangir, og rétt í því rennur þessi fagri dropi
úr sporinu að þessum tveimur, og sá eg ekkert far eftir
hann á gólfinu, þó að hann rynni að hinum tveimur.
Þarna myndaðist eins og þriggja laufa smári að lögun og