Morgunn - 01.12.1922, Side 135
MORGUNN
229
fram hjá honum. Og árangursina af tilraununum með
E. N. var beðið með sérstakri óþreyju fyrir þá sök, að
um mörg ár hafði verið hörð barátta um hann í Dan-
mörk. Flokkur manna þar í landi var ekki í neinum
vafa um það, að hjá E. N. hefðu þeir fengið að Bjá hin
merkilegustu og furðulegustu fyrirbrigði, alveg svikalaust.
Meðal þeirra voru þeir menn, er viðstaddir höfðu verið
Hróarskeldu-fyrirbrigðin 1912—1913 og 1919, þau er getið
er um framar í þessu hefti. En að hinu leytinu hafði
E. N. átt mótstöðumenn, sem höfðu látlaust brugðið hon-
um um svik.
Þessar tilraunir í Kaupmannahöfn gengu vel. Grrune-
wald er vafalaust einn þeirra manna, sem leiknastir eru
í rannsókn sálrænna fyrirbrigða, hvar sem leitað er. Hann
hefir fundið upp hin fullkomnustu tæki, sem til eru í heimi,
til slíkra rannsókna, og notaði þau við rannsóknirnar á
E. N. Og félagar hans eru glöggir og gætnir sæmdar-
menn, sem fráleitt hafa haft neítt augnamið annað en
það að komast að sannleikanum.
í tilraunalok gáfu þeir rannsóknamenn, sem þegar
hafa verið nefndir, Einari Nielsen eftirfarandi vottorð:
»Vér undirritaðir höfum síðustu þrjá mánuðina haldið
tilraunafundi með miðiinum Einari Nielsen. Á þessum
fundum tókum vér þrásinnis eftir því, að hvítt efni kom
fram. Eftir því sem lengra leið, hertum vér varúðarráð-
stafanirnar á fundunum, eftir ákveðnum reglum, og á
síöa8ta fundinura, 10. des., var tilhöguninni þann veg
háttað, að það er vor afdráttarlaus sannfæring, að girt
hafi verið fyrir það, að unt væri að beita nokkurum
brögðum. Þetta eftirlit var í því fólgið, að hr. Nielsen
var með öllu kleeddur úr fötunum, allur líkaminn var
vandlega athugaður, og því næst saumaður utan utn hann
svartur nærskorinn prjónabúningur (trikot). Við þennan
búning var og saumuð slæðuhetta (tyll) utan um höfuð
og hendur. Að lokum var hann settur í byrgi með slæðu-
veggjum. Það hafði áður verið rannsakað, og innsiglað